Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986
5
Sólrún Bragadóttir sópransöngkona:
Boðin staða
við óperuna í
Kaiserslautern
SÓLRÚNU Bragadóttur, söngkonu, hefur verið boðin staða
fyrsta sóprans við óperuna í Kaiserslautern í Þýskalandi.
I samtali við Morgunblaðið sagði Sólrún að hún hefði tek-
ið þá ákvörðun að undirrita samning við óperuna til tveggja
ára. Hún lýkur mastersgráðu í óperusöng næsta vor frá
tónlistarháskóla í borginni Bloomington í Indinanafylki í
Bandaríkjunum, og tekur við starfinu haustið 1987. „Þetta
tilboð kom mér algjörlega á óvart, þvi baráttan um hveija
stöðu er svo hörð. Heppnin fellst í þvi að vera rétt rödd
á réttum stað,“ sagði Solrún.
Sólrún og eiginmaður hennar
Bergþór Pálsson, barítónsöngv-
ari, hafa nú verið við nám í
Bloomington í fjögur ár. „Þar
sem starfssamningar við óperu-
húsin eru gerðir með árs fyrir-
vara þurftum við að „stelast" úr
skólanum til að prufusyngja fyr-
ir umboðsmenn hér í Evrópu,“
sagði Sólrún sem var stödd í
Vínarborg þegar blaðamaður
ræddi við hana. „Erfiðasti hjall-
inn er að fá viðtal við þekkta
umboðsmenn, því það eru þeir
sem velja úr hópi hundruða um-
sækjenda. Við vorum sex sópran-
ar valdir til að prufusyngja í
Kaiserslautem, og mér einni boð-
in staða að því búnu. Fyrsta
hlutverk mitt verður líkega Nini
í „La Bohéme", en ég kem til
með að syngja í 3-4 óperum á
ári.“
Hún sagðist gera ráð fyrir því
að leita sér að starfi annarstaðar
í Evrópu að gildistíma samnings-
ins liðnum. „Auðvitað dreymir
mann alltaf um að geta komið
og unnið heima. En því miður
eru tækifærin fá, og ekki hægt
að framfleyta sér á óperusöng á
Islandi," sagði Sóirún. íslending-
ar fá þó að hlýða á söng Sólrúnar
bráðlega, því 4. desember mun
hún syngja einsöng í 4. sinfóníu
Mahlers með Sinfóníuhljómsveit
íslands. „Ég hlakka mikið til tón-
leikanna, það er einstakt tæki-
færi að fá að syngja þetta verk
með hljómsveitinni,“ sagði Sól-
rún.
Verslun Rafha í gamla verksmiðjuhúsinu að Lækjargötu 22 í Hafnarfirði.
Rafha hefur opnað nýja
700 fermetra verslun
RAFHA hefur opnað verslun í
700 fermetra húsnæði að Lækj-
argötu 22 í Hafnarfirði, þar
sem fyrsta verksmiðja fyrir-
tækisins var til' húsa um
áratugabil. í versluninni verður
seld framleiðsla fyrirtækisins,
auk raftækja sem fyrirtækið
flytur inn.
Verslunin er opnuð af því til-
efni að 50 ár eru liðin frá því
fyrirtækið var stofnað hinn 29.
október árið 1936. Þá ríkti kreppa
hér á landi og þótti stofnun fyrir-
tækisins mikið framtak á sínum
tíma. Fyrirtækið framleiðir margt
annað auk eldavéla, svo sem raf-
hitara, flúorsentlampa, málm-
glugga, ragmagnsviftur,
hitaskápa og fleiri stærri tæki
fyrir skip, hótel og veitingahús.
Nú á afmælisárinu er kynnt ný
gerð af eldavélum og verður hún
Séð yfir hluta verslunarinnar.
sett á markað hérlendis sem er-
lendis.
Auk eigin framleiðslu verður
reynt að hafa á boðstólnum í þess-
ari nýju verslun Rafha allt sem
til þarf í eldhúsið, innréttingar
rafmagnstæki og annað. Að sögn
forráðamanna fyrirtækisins verð-
ur verslunin sennilega stærsta
sérverslun með rafmganstæki á
landinu.