Morgunblaðið - 23.11.1986, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 23.11.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986 23 Við rómanskar menjar i Pompei. Björg i vinnu- stofu sinni á Seltjarnar- nesi að vinna að höggmynd. Myndin var tekin er Björg var á högg- myndanám- skeiði i Myndlistar- skóla Reykjavíkur. mjög gaman að því þegar einn háttsettur maður í höllinni kom til mín og sagðist vona að íslendingar kysu Vigdísi í embættið. „Það er alltaf þannig fyrir forsetakosningar, að frambjóðendur stæra sig af eiginkonum Sínum. Mér fínnst að íslendingar ættu að kjósa þessa konu, því hún býður eingöngu sjálfa sig fram til embættisins." Þetta þótti mér afar vænt um að heyra og Svíamir voru flestir mjög ánægðir eftir að ljóst var að Vigdís hafði náð kjöri. Það var skemmtilegt þégar hún kom til Svíþjóðar í fyrsta sinn í opinbera heimsókn. Við erum gamlar skóla- systur og unnum saman hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Allt samstarfsfólk mitt í höllinni var mjög hrifíð af Vigdísi og hún vakti mikla athygli hvar sem hún fór. Það var virkilega gaman að vera íslendingur þá. Búningagerð í Bandaríkjunum Ég hef alla tíð verið með búningagerð á heilanum og sumarið 1982 fór ég að heim- sækja frænku mína sem býr á Long Island. Mér leist vel á staðinn og vildi vita hvort ein- hveijir möguleikar væru á að fá vinnu þar við búningagerð. Því fór ég þangað um vetur- inn og gekk á milli safna og leikhúsa til að byija með. Síðan bauðst mér vinna hjá stóru búningafyrirtæki sem gerir búninga, leik- í íbúðinni i starfsmannahúsi sænsku krún- unnar þar sem Björg bjó um tveggja ára skeið. Með henni á myndinni er Sigríður Björnsdóttir art therapisti, æskuvinkona Bjargar. Bak við þær eru tvö málverk Bjargar. myndir og annað fyrir öll stóru leikhúsin og óperuhúsin vítt og breitt um Bandaríkin. Ég vann þar sem sérfræðingur í tímabundnum búningum, frá ýmsum tímabilum. Starfínu var þannig háttað að ég tók mál af leikurum og söngvurum og sneið síðan búningana. Ég var nokkurs konar verkstjóri og hafði nokkr- ar saumakonur undir minni stjóm. Þetta var allt frábært fagfólk sem kunni vel til verka. Það var alltaf mjög vel vandað til búninganna og ég man sérstaklega eftir einum, sem var fyrir óperuna La Bohéme sem var flutt í óperuhúsi í Dallas. Þegar upp var staðið kost- aði sá búningur heila sjö þúsund dollara, eða um 280.000 krónur. Ég hafði góð laun þama og þetta var besti skóli sem ég gat hugsað mér í búningagerð. Starfsemin fór fram á fjórum hæðum og þama vora sjö verkstæði þar sem fjöldi manns vann eingöngu við að sníða búninga. það er mjög gaman fyrir fólk sem hefur áhuga á leikhúsi að fá tækifæri til að vinna þama, en það kom að því að ég þurfti að hætta. Eftir nokkura mánaða starf hjá þessu fyir- tæki kom mikil deyfð í alla starfsemi á Broadway og það var svo skrítið að það var eins og öll leikhúsin fylgdu í kjölfarið. Það var almenn lægð í leikhúslífí á þessu tímabili og því gat ég ekki fengið varanlegt atvinnu- leyfí. Það er erfítt að vinna í Bandaríkjunum ef maður hefur ekki tilskiiin leyfi og því kaus ég að fara aftur til Svíþjóðar. Ég var aldrei ákveðin í að setjast að í Svþjóð og mér lýst ágætlega á að vera kom- in aftur heim til íslands. Það er mikið af ungu fólki hér á landi sem hefur menntað sig í búningahönnun og leikmyndagerð og mér virðist þetta vera mjög efnilegt fólk. Ég vildi gjaman fá tækifæri til að hanna búninga hjá leikhúsum hér heima, en ég hef ekki fengið neitt tækifæri ennþá, segir Björg og skellir upp úr. Annars kysi ég frekar að vinna í lausa- vinnu en hjá einu ákveðnu leikhúsi. Launin í þessu starfí era ekkert sérlega glæsileg, en mér fínnst það ekki skipta svo miklu máli. Núna þegar bömin mín era uppkomin og ég þarf ekki lengur að sjá fyrir öðram en sjálfri mér. lít ég öðravísi á málin. Viðhorfin breyt- ast með aldrinum. Mer þykir mikilvægast núna að geta unnið við það sem ég hef ánægju af. Ég hef alla tíð reynt að nýta tíma minn eins vel og mögulegt er, og á sumrin mála ég alltaf mikið. Ég verð með sýningu myndum mínum í bókasafninu á Akranesi fljótlega, en það era myndir sem ég hef mál- að á hinum ýmsu stöðum í heiminum og við ýmsar aðstaeður. Þegar ég verð komin með svolítið samstæðara safn af myndum, hef ég áhuga á að fá mér góðan sal í Reykjavík og halda einkasýningu, sagði þessk atorkumikla kona uppfull af lífskrafti og geislandi af lífsgleði. Viðtal: Bryiýa Tomer ÚRVALS vörur ÚRVALS verð SALERNI. Við bjóðum þér vönduð salerni af ýmsum gerðum. Ásamt ýmsum áhöldum á baðherbergið. Sérlega hagstætt verð. BAÐMOTTUR. Mikið úrval af baðmottum og ýmsum gerðum af bað- hengjum. Svo og öðrum smáhlutum á baðherberg- ið. STÁLVASKAR. Vandaðir stálvaskar í ýms- um stærðum og gerðum. GUFUBÖÐ. Bjóðum nú gufu og sauna- böð, er henta hvaða heimili sem er. Allt í einum pakka. BLÖNDUNARTÆKI. Ótrúlegt úrval af blöndun artækjum. Stflhrein/falleg. STURTUKLEFAR. Sturtuklefar er ganga hvar sem er. Af öllum stærðum og gerðum. LÍTIÐ VIÐ - VANDIÐ VALIÐ. VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966 mldas
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.