Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986 Módelsmíði er ekki eingöngu tómstundagaman; Birgir og Skjöldur við likanið af Malbikunarstöð Reykjavikur, sem þeir vinna að um þessar mundir. Gamli bærinn hans afa - Nú Hta flestir á módelsmiði sem tómstundagaman. Er nægi- lega stór markaður til að hafa af henni fulla atvinnu? Birgir verður fyrir svörum. “Frá því við byijuðum á þessu, fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan, höf- um við haft nóg að gera. Mér sýnist einnig að markaðurinn sé að opnast meira en verið hefur, enda eru möguleikamir óþijótandi í svona líkanasmíði. Við höfum til dæmis hugsað okkur að bjóða ein- staklingum og félagasamtökum upp á líkön sem minjagripi. Það má til dæmis hugsa sér að fljótlega standi til að rífa gamla bæinn sem afi og amma bjuggu í og bömin hafí áhuga á að eiga skemmtilega og lifandi minningu um bæinn fyrir afkomenduma. Þá getum við gert líkan af bænum, sem stendur þann- ig eftir í smækkaðri rnynd." — Hvað gæti slíkt líkan kost- að? „Það er erfitt að segja fyrir um slíkt, án þess að vita hvemig verk-. efnið er. En við getum tekið sem dæmi sveitabæ af venjulegri stærð- argráðu, og túnskika í kring, með hæðum, hólum og öðmm sérkenn- um staðarins. Slíkt líkan myndi kosta á bilinu 80.000—120.000 krónur. Þá förum við á staðinn, tökum myndir, mælum, teiknum upp og skoðum allt nákvæmlega áður en hafist er handa við verkið. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir hjá fólki, félagasamtökum og fyrir- tækjum. — Hvemig er vinnudagurinn þjá ykkur? „Við emm alltaf komnir hingað klukkan átta á morgnana og fömm um sjöleytið á kvöldin," segir Skjöldur. Birgir bætir því við að þeir vinni yfirleitt líka á laugardög- um. „Og við tökum okkur aldrei kaffitíma, heldur hellum við á könn- una inni hjá mér og höfum bara standandi kaffi hér allan daginn. Svo ef það er ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu á kvöldin og mér ieið- ist, kem ég oft hingað út í skúr og fer að vinna.“ Skjöldur sagði hér að framan að líkanasmíði væri hans helsta áhuga- mál. Birgir segist hins vegar vera „hálfgerður flautaþyrill", eins og hann sjálfur orðar það. „Ég veð úr einu áhugamálinu í annað," segir hann. „En þau eiga það flest öll sameiginlegt að tengjast ferðalög- um á einn eða annan máta. Um síðustu helgi tók ég til dæmis þátt í rally, en ég hef alltaf haft gaman af því að ferðast og nota hvert tækifæri sem gefst til að skoða mig um. Tólf tegundir af grasi — Hvernig skildi það ganga að finna hentug efni í líkönin? Þeir félagar sögðu það ekki eins auðvelt og æskilegt væri. „Við kaupum mikinn hluta þess ^fnis sem við notum í Þýskalandi, eða pöntum þau þaðan. Það er bara svo erfitt að kaupa eftir pöntunalistum, því þú sérð ekki nægilega vel hvað „Sköpun þúsund skóga felst í einu akarni,“ mælti Emerson eitt sinn og það má með sanni segja að þessi orð hans eigi við þá flaga Skjöld Sigurðsson og Birgi Pétursson í Garða- bænum, en þeir hafa þann starfa að smíð líkön. Stundum ? af bátum, stundum af flugvélum og stundum af heilu mannvirkjunum. „Við hugsum svo smátt,“ varð Birgi að orði við blaðamann og ljósmundara Morgunblaðsins sem litu við á vinnuofunni í fyrirtæki þeirra, Model sf.í Faxt- úni 26 nú á dögunum. eim sem sáu tæknisýninguna sem haldin var í Borgarleikhús- inu í sumar, í tilefni af afmæli borgarinnar, er eflaust í fersku minni líkan af Sundahöfn, sem var 25 fermetrar að stærð og afar full- komið. Það eru þeir Skjöldur og Birgir sem eiga heiðurinn af Sunda- borgarlíkaninu og mörgu öðru forvitnilegu. Þeir Birgir og Skjöldur hafa vinnustofu sína í bílskúr Birgis við Faxatún í Garðabænum. Vinnustof- an er björt og vistleg og þar er hver hlutur á sínum stað. Látum, lími og öðrum efnum er raðað skipu- lega í hillumar og á borði í miðjum skúmum er stórt líkan af Malbikun- arstöð Reykjavíkur. „Við byijuðum á þessu líkani í júní,“ segir Skjöldur aðspurður. „En við höfum verið-í öðrum verkefnum með þessu svo það er erfitt að segja nákvæmlega hversu margir tímar hafa farið í þetta." Birgir segir að þeir verði þó að Ijúka við líkanið fyrir 15. nóvember því þá sé haustfundur hjá malbikunarstöðinni. „Þetta er langt komið og við ijúkum við þetta í tíma, það er engin hætta á öðru,“ segir Birgir ákveðinn. Rafvirki og húsgagnasmið- ur — Eruð þið menntaðir í mód- elsmiðum, eða einhverju öðru sem tengist þessu starfi? „Nei, ekki beinlínis," segir Slqöldur. „Ég er húsgagnasmiður og Birgir er rafvirki. Ég hef aftur á móti haft áhuga á módelum ftá því ég man eftir mér og dunda mér við það í frístundum að setja saman flugmódel með fjarstýribúnaði og mótor. Það er óneitanlega gott að geta haft áhugamál að atvinnu. — Þú ert ekkert hræddur um að verða leiður á áhugamálinu með því að starfa við það allan daginn? „Nei, ég er ekkert hræddur um það og hef ekki orðið var við neinn leiða enn sem komið er. Annars vinn ég við annars konar mód- elsmíði á daginn, því þá gerum við fyrst og fremst líkön af mannvirkj- um og bátum, auk svonefndra skipulagslíkana, sem eru oft notuð á fundum og ráðstefnum. Arkitekt- ar nota einnig mikið þessháttar líkön til að kynna viðskiptavinum sínum hugmyndimar á sem skýr- astan hátt. í frítíma mínum smíða ég hinsvegar flugvélalíkön. Sjáðu til dæmis þessa hérna," segir Skjöldur og sýnir okkur gullfallega gula flugvél,sem er 2,30 metrar á lengd og með fullkomnu mæliborði að innan. „Vænghafið verður 3,60 metrar, en vængimir eru enn ekki tilbúnir,-" upplýsir Skjöldur og sýnir okkur stoltur hvemig hægt er að opna flugvélina, eins og um alvöru- flugvél væri að ræða. Módelsmíði á greinilega alian hans hug. Morgunblaðia/Emil bór Likanið af Sundahöfn, sem sagt er frá f greininni, og þeir félagar gerðu á tíu mánuðum. Myndin er tekin á tæknisýningunni, sem haldin var í Borgarleikhúsinu í sumar f tilefni afmælis Reykjavíkurborgar. Lfkanið er 25 fermetrar að stærð og alls fóru 700 lítrar af vatni í „sjóinn“. Veruleikinn í smækkaöri mynd Litið viðá vinnustofu Skjaldar Sigurðssonar og Birgis Péturssonar í Garðabænum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.