Morgunblaðið - 23.11.1986, Side 48

Morgunblaðið - 23.11.1986, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986 + Kannski erfðasyndin - og þó. Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Nemendur í dönsku við háskól- ú$nn sýndu í Norræna húsinu: Sandhedens Hævn eftir Karen Blixen Leikstjóri Lisa von Schmalensee. B ARA skemmtilegt og virðingar- vert framtak, sem nemendur í dönsku sýna með þessari litlu leik- sýningu. Leikritið mun hafa verið gefið út 1926, en ekki leikið á sviði, fyrr en í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn, æði löngu síðar, eða 1960. í tilkynningu hópsins segir, að það sé flutt nú í hefð- bundnu formi og Karen Blixen hefði ia/Uið það„utan laga og réttar." Blixen hóf að skrifa þetta litla leikverk þegar hún var á æsku- skeiði og setti það upp, með aðstoð systkina sinna heima hjá sér, rétt upp úr aldamótunum. Hún gerði umbætur á því hvað eftir annað, áður en það var síðan gefið út 1926, eins og fyrr segir. Vel má taka undir það að leikverkið megi túlka sem létta grín og gleðiballöðu. En einhveijir hafa haft þá skoðun að það sé mikilvægur þáttur í heim- spekiiegri arfleifð listakonunnar varðandi sök og erfðasyndina sjálfa. Séu menn hallir undir þá skoðun er megininntakið, að erfðasyndin sé ekki neinn endanlegur maratrað- arveruleiki, sem við verðum að dragnast með. Öllu heldur séum við öll að taka þátt í kómedíu, sem við getum ekki bara samið sjálf, eins og ein persónan segist gera, heldur getum við einnig leikstýrt henni uppi á sviði. Það sem skipti sköpum sé að komast að niðurstöðu um, hvaða hlutverk maður eigi að leika. Þetta er að mínu viti ekki bráð- nauðsynlegt að finna einhveija dýpri merkingu í leikverkinu. Létt írónían og grátbroslegur harmur persónanna nægði mér fullkomlega. Leikendur fóru hressilega með hlut- verkin. Dönskuframburðurinn var ágætur hjá sumum þeirra. Ég veitti athygli, umfram aðra Jónu Ingólfs- dóttur. í fljótu bragði sýnist mér sem Lisa von Schmalensee sendi- herrari og leiðbeinandi þessarar sýningar hafi unnið hið ágætasta og þarfasta verk og varð ekki ann- að séð en viðstaddir skemmtu sér, hvort sem þeir hölluðust að kenn- ingunni um erfðasyndina eða eitt- hvað ögn auðmeltara. SAMDHEdens Hæva/" V\ ---- " T=----==-_ú \lof\on 13! ixen 1 ■B Skrifstofutæknir Eitthvað fyrir þig? Innritun í námið fer fram 24.-28. nóvember. Nánari uplýsingar í síma 687590. TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúnl 2B Ævintýrabók frá Namíu ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér nýja barna- og ungl- ingabók eftir C.S. Lewis, þriðju hókinn í ævintýraflokki hans frá Narníu. Þýðandi er Kristfn R. Thorlacius og myndirnar eftir Pauline Baynes. í fréttatilkynningu frá AB segin „Hér er Játvarði og Lúsíu enn á ný stefnt inn í töfralandið Namíu, í þetta sinn fara þau þangað f gegnum mynd af skipinu Dagfara. Með þeim í för er dálítið leiðinlegur frændi þeirra, Elfráður Skúti. Bömin hitta Kaspfan konungsson á skipinu. Hann er ásamt fríðu föru- neyti á siglingu austur á bóginn í leit að sjö vinum sínum sem hafa horfið. Þau finna og kanna ókunn lönd og lenda f ýmsum vanda, ekki sfst Elfráður. Sú reynsla sem bömin verða fyrir hefur á þau mikil áhrif og þegar þau sigla heim eftir að hafa komist austur undir heimsenda eru þau breytt fólk, að minnsta kosti Elfráður Skúti." Bókin er 259 bls. með möigum myndum. Prentverk Akraness hefur annast prentvinnu og bókband. Full búð af nfjum vorum Vellíðan fylgir fötunum frá Líneik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.