Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986 61 Minning: Inga Rún Vig- fúsdóttir Fædd 26. september 1935 Dáin 3. nóvember 1986 Það var einn harðan vetrardag að viðkvæmt móðurhjarta bað Drottinn - fyrir bðmum sínum, fóður þeirra og framtíð. (Höf. Vigfús Einarsson Mig langar að minnast með nokkrum orðum bróðurdóttur minnar, Ingu Rúnar Vigfúsdóttur Garcia, sem andaðist 3. nóv. sl. í Kaliforníu í Bandaríkjunum, eftir erfið veikindi. Inga Rún var einka- barn foreldra sinna, hjónanna Valgerðar Jónsdóttur, ættaðri frá Akureyri, og Vigfúsar Einarssonar, sem ættaður var frá Ólafsvík á Snæfellsnesi. Tvö hálfsystkin átti Inga Rún, sitt frá hvoru foreldri. Hákon Tryggvason, cand. mag. og Mar- gréti Vigfúsdóttur, húsmóður, sem búsett er í Maryland í Bandaríkjun- um. Margar eru minningamar sem leita á hugann, minningar frá æsku- og unglingsárum okkar beggja, þótt nokkurra ára aldursmunur væri á okkur. Minningar frá þeim árum þegar bróðir minn blessaður gegndi afahlutverkinu með elsta bami Ingu Rúnar, Kristínu. Það var dásamlegt að fylgjast með því fagra mannlífí sem í því hlutverki fólst. Kristín átti hér fyrstu fímm ár ævi sinnar undir vemdarvæng ömmu sinnar, því þær mæðgur Valgerður og Inga Rún bjuggu saman þessi fyrstu æviár Kristínar litlu eða þar til Inga Rún giftist eftirlifandi eigin- mani sínum, John J. Garcia, og fluttist með honum vestur um haf. Það var að vonum erfítt að sjá á eftir þeim mæðgum svo langt í burtu, en það reyndu þau Valgerður og Vigfús að bæta sér upp með því að heimsækja fjölskylduna eftir því sem efni og aðstæður leyfðu. Af þeim ferðum bróður míns til dætr- anna tveggja í Bandaríkjunum naut ég og flölskylda mín öll svo sannar- lega góðs. Inga Rún var pabba sínum alltaf innan handar við val á þessum varningi. Fyrir þetta og allt annað gott og fagurt frá þeim feðginum vil ég nú þakka af heilum huga. Arið 1975 gafst okkur hjónunum tækifæri til þess að heimsækja Ingu Rún og fjölskyldu hennar til Banda- ríkjanna en sú heimsókn stóð aðeins yfir í tvo daga, tvo eftirminnilega daga. Inga Rún var mjög glaðsinna og hafði létta lund, en þó sagði hún mér að hitamir fæm alltaf þannig í sig að hún yrði skapvond. Ekki bar samt á því þá tvo daga sem við vorum þarna, þó að miklir hitar væru þar þá. Hún var kát og elsku- leg og lék á als oddi. Fjölskyldan öll, nema Kristín sem ekki var heima, fór með okkur upp í fjöll og í dýragarðinn í Washington. Kvöld- unum eyddum við svo við að borða góðan, grillaðan mat í dásamlega hlýju og fallegu umhverfí á verönd- inni heima hjá þeim og við að fara í gönguferðir um nágrennið í því hverfí sem þau bjuggu í þá. Þar hlustaði ég í fyrsta og eina skiptið á ævinni á hljóð skordýranna í hlýrri kvöldkyrrðinni. Þessar minn- ingar verða aldrei frá mér teknar. Inga Rún var mjög hamingjusöm í sínu einkalífí. Hún átti góðan mann og fjögur elskuleg böm, þijár stúlkur og einn dreng, sem hún þráði að fá að lifa lengur fyrir. Elsta dóttirin, Kristín, er orðin tveggja bama móðir og býr ekki lengur heima. Hin bömin þijú em öll heima, Michelle 20 ára, Jóhanna + Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, FREYJU JÓNSDÓTTUR, Skúlaskeiði 14, Hafnarflrðl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki St. Jósefsspítala, Hafnar- firði. Sigurður Magnússon, Hjördís Hentze, Sigfús Þór Magnússon, Elfsabet Valgeirsdóttlr, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega hlýhug og samúð við andlát og útför ÓLAFÍU I. JOCHUMSDÓTTUR, Melhaga 13. Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarliöi Landspítal- ans fyrir góða umönnun. Matthfas Jochumsson, Ásta Fjeldsted, Magnús Jochumsson og frændsystkini. + Þökkum þeim sem heiöruðu minningu eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS JÓHANNESSONAR, Patreksfirði. Erla Hafliðadóttir, Erlendur, Kristfn, Ólafur Arnar, Bára, Björn, Jökull, Björk, tengdabörn og barnabörn. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar ög ráðgjöf um gerð og val legsteina. ii S.HELGASONHF STEINSmlðJA SKBvWUVEGI 48 SlMI 7G677 16 ára og John Thomas sem er yngstur og aðeins 10 ára gamall. Inga Rún þráði að fá frest á því sem koma skyldi til þess að geta lokið uppeldishlutverkinu. En því miður, fínnst okkur eigingjömum Btómmíofa Friófinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 kvöld tll kl. 22,- elnnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. mönnum, fékkst sá frestur ekki. Ég trúi því að hún hafí verið kölluð til enn mikilvægari starfa hjá Guði sínum á öðru tilvemstigi. Inga Rún og fjölskyldan öll komu hingað nokkrum sinnum. í næstsíð- ustu heimsókn sinni hingað fylgdu henni þijú yngri bömin og eigin- maðurinn, þá gafst okkur tækifæri til þess að fara dagsferð austur í sveit og nutum við þeirrar ferðar mjög vel. Við fómm einnig í Árbæj- arsafn, en litla kirkjan þar var í miklu uppáhaldi hjá Ingu Rún. Þar hafði Kristín, elsta dóttirin, verið skírð. Síðasta ferð Ingu Rúnar hing- að til lands var eins konar hraðferð. Þá kom hún ásamt eiginmanninum John til þess að vera viðstödd há- tíðahöld á Akureyri í tilefni 25 ára stúdentsafmælis síns. Þá talaði hún aðeins við mig í síma, kát og hress að vanda. Stuttu síðar hófust átök- in við veikindin. Síðan em liðin um það bil þijú ár. Vigfús, faðir Ingu Rúnar, andað- ist 23. nóvember 1973, en Valgerð- ur lifír dóttur sína. Ég bið móður, eiginmanni, bömum, litlu bama- bömunum og systkinum guðs blessunar og styrks í þeirra mikla missi. Mig langar til þess að enda þessi minningarorð með öðm erindi úr kvæðinu „Örlagabikar", sem ér eft- ir pabba hennar, úr bókinni „Þræðir" sem höfundur gaf út sjálf- ur á sínum ungdómsámm. Fylgdu þeim á lífsins hálu leið. Lýstu þeim í hverri sorg og neyð, helgi faðir, föður bama minna frelsa þú, lát storminn dagsins linna. Faðir, heyr þú málið mitt! Miskunna þig yfir bamið þitt. (Höf. Vigfús Einarsson), Fari hún í friði. Guðrún S. Einarsdóttir Clausen Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta »o (0 3 (0 a (0 l Xi 3 (0 '3 o> >i »0 (0 3 tr Ui LÆKKAÐ VERÐ Afsl. Málning ........... 15% Penslar, bakkar, rúllusett ......... 20% Veggfóður og veggdúkur...... 40% Veggkorkur ........ 40% Veggdúkur somvyl .. 50% LÆKKAÐVERÐ til hagræðis fyrir þá sem eru að BYGGJA - BREYTA EÐA BÆTA Líttu við í LITAVERI því það hefur ávallt borgað sig. m 3 c fi> o» cr »< (O (O Ð>' or © * fi> I XT fi> fi> O er Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta LÖGGILTIR EMDURSKOÐENDOR VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR HAGFRÆÐINGAR LÖGFRÆÐINGAR • REKSTRARVERKFRÆÐINGAR REKSTRARTÆKNIFRÆÐINGAR Með lögum nr. 12/1986 var ríKisendursKoðun flutt um set T stjórnsKipun landsins. Frá 1. janúar 1987 mun 5tofnunin starfa á vegum Alþingis og er frá þeim tíma óháð ráðuneytum og öðrum handhöfum framKvæmdavaldsins. AuK hefðbundinnar endursKoðunar á sviði reiKningssKila og að reiKningar séu T samræmi við heimildir fjárlaga og annarra laga verður T auKnum mæli lögð áhersla á svonefnda stjórnsýsluendursKoðun, með Könnunum á nýtingu og meðferð rTKisfjár. FyrirKomulag þetta Krefst breyttra starfshátta og starfsmanna með sér- þeKKingu á ýmsum sviðum oþinberrar stjórnsýslu og atvinnumála þjóðarinnar. RTKisendursKoðun er á höttunum eftir starfsmönnum sem hafa þeKKingu og getu til að taKast á hendur verKefni af þessu tagi. hefur þú áhuga á ► að geta bent á hvað úrsKeiðis fer T reKstri rTKisins og gera tillögur um úrbætur? ► að taKa þáttT nýjum vinnubrögðum og móta þau? Þá stendur þér til boða ► að starfa að meiri háttar verKefnum þar sem sKyggnst er um gervallt stjórnKerfi rTKisins. ► að fá útrás fyrir framtaKssemi og frumKvæði við lausn óþrjótandi verKefna. Ef áhugi er fyrir hendi, sendið þá sKriflegar uþþlýsingar um æviferilsatriði (nafn, aldur, menntun og fyrri störf) til rTKisendursKoðanda, og veitir hann allar nánari upplýsingar. RÍKISENDURSKOÐUN Laugavegi 105 —sTmi 22160— 150 ReykjavTK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.