Morgunblaðið - 04.12.1986, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
í leit að sannleika
Bókmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Ast og útlegð.
Höf.: Isaac Bashevis Singer.
Útg.: Setberg.
Þýð.: Hjörtur Pálsson.
Ást og útlegð er nokkurs konar
sjálfsævisaga Singers. Hún er þó
allfrábrugðin þeim sjálfsævisögum
sem maður á að venjast því hann
rekur lítið atburði og samskipti við
annað fólk, nema í tengslum við
vangaveltur um lífið, manninn, Guð
og tilveruna. Sjálfur kallar hann
bókina „andlega sjálfsævisögu,
skáldsögu á grunni staðreynda".
Víst er að bókin líkist sjálfsævi-
sögu að forminu til, en efnið er
frábrugðið því sem maður á að venj-
ast í sjálfsævisögum. Singer skiptir
bókinni upp í fjóra þætti; Byijunin,
Lítill drengur í leit að Guði, Úngur
maður í leit að ást og Ráðvilltur í
Ameríku. Bókin spannar fyrstu 35
ár ævi hans og það er dálítið
skemmtilegt að Singer skuli skipta
henni upp í þessa þætti, því hann
er alveg frá upphafi að byija á ein-
hverju nýju, hann er alltaf að leita
að Guði, alltaf að leita að ást og
hann er alla tíð skemmtilega ráð-
villtur.
Singer virðist aldrei vita hvort
hann er að koma eða fara. Hann
leitar stöðugt að algóðum Guði,
Guði sakleysis, mannúðar, sann-
leika, mildi og gæsku, en fínnur
hvergi þannig Guð. Hann leitar líka
stöðugt að hinni sönnu ást; sak-
lausri og hreinni sveitastúlku sem
hann finnur heldur aldrei.
Hann leitar að Guði í mönnunum
sem Guð skapaði í sinni mynd, en
alls staðar sér hann ofbeldi, kúgun,
morð og óréttlæti í mannanna verk-
um. Þegar hann er spurður „hvað
er manneskjan eiginlega?“ svarar
hann: „Skopmynd af Guði, eftirlík-
ing andans, eina fyrirbrigði Sköp-
unarverksins sem kalla mætti lygi.“
Singer er alinn upp á heimili þar
sem trúin, gyðingdómurinn, var það
loft sem hann andaði að sér. Faðir
hans var rabbíni eins og allir hans
forfeður og hann fékk trúarlegt
uppeldi í einu og öllu. Strax í bam-
æsku er Singer farinn að hugsa um
Guð vegna allrar þeirrar þjáningar
sem hann sér í kringum sig og les
um.
Þegar hann sér mótsagnimar
veé-
izM*0** eiö*.
*#>**£***. et
0**$£*t&
ViaDD a __ Viana
ÆSKAN
Isaac Bashevis Singer
milli Lögmálskenninganna annars-
vegar og lífsins hinsvegar sækir á
hann þunglyndi. Hann byijar sína
ævilöngu leit að einum algildum
sannleika. Hann leitar í trúarkenn-
ingum, heimsbókmenntunum og hjá
heimspekingunum. Hann er haldinn
eldlegum áhuga á því sem hann
les, því hann vonar að í sérhverri
bók finni hann svarið sem hann
leitar. En hann verður stöðugt fyrir
vonbrigðum og hrapar niður í djúp
örvæntingarinnar.
Þunglyndi hans á oft rætur sínar
að rekja til óbærilegrar samúðar
með þeim sem orðið höfðu að þola
þjáningar, kynslóð fram af kynslóð.
Og það em ekki aðeins þjáningar
mannanna heldur líka dýranna sem
verða honum kvöl.
Hann les kenningar Malthusar
um að dýr fæðist aðeins til að
deyja, því að öðrum kosti myndi
heimurinn fyllast af svo mörgum
lífverum að þær syltu allar f hel,
eða yrðu troðnar undir. Stríð, drep-
sóttir og hungursneyð héldu við
lífínu á þessari jörð. Darwin heim-
færði kenningar Malthusar uppá
mennina og hélt því fram að allar
tegundir ættu uppruna sinn að rekja
til látlausrar baráttu fyrri fæðu eða
kynlífi. Kósakkamir sem slátruðu
gyðingunum, Rússamir, tartaramir
og allir ættflokkamir sem héldu
áfram að drepa hveijir aðra hegð-
uðu sér í rauninni í samræmi við
tilgang sköpunarverksins.
Kenningar Malthusar stönguðust
á við allar fullyrðingar Ritningar-
innar um að Guð hefði andstyggð
á blóðsúthellingum. Hann hafði
beinlínis skapað heiminn þannig að
blóði hlaut að verða úthellt, böm
hlutu að svelta í hel og villidýr hlutu
að éta hvert annað. Singer spyr:
„Hvemig getur reginvald viskunnar
látið sér fátt um fínnast þjáningar
saklausra skepna?"
Frá sex til sjö aldri hefur Singer
spurt þessarar spumingar og víst
er að sambúðin er ríkur þáttur í
bókum hans. Hann sér sífellt marg-
ar hliðar á öllum málum og veltir
þeim fyrir sér fram og til baka.
Eins og aðdáendur Singers vita, em
ekki til alvondar eða algóðar per-
sónur í bókum hans. Hann skrifar
um margþætta persónuleika, fulla
af þversögnum, sem eru sjálfum sér
ósamkvæmar ef svo ber undir.
Singer hefur einstaka hæfileika
til að setja flóknar, trúarheimspeki-
legar vangaveltur þannig fram að
þær verða hvetjum manni skiljan-
legar. Ekki þurrar kenningaþulur,
heldur lifandi hugsun, sem hann
setur í samband við atburði úr lífí
sínu og samskipti við annað fólk.
Kærleikurinn er drifkraftur hans
og öll skrif þessa mikla svartsýnis-
manns eru full af hlýju og mannúð.
Kærleikurinn og konumar eru
alveg sérkapítuli hjá Singer. Vegna
áhrifa frá uppeldi veit hann að hann
vill aðeins giftast ungri, saklausri
og óspjallaðri sveitastúlku, sem er
alin upp í sönnum gyðingdóm. En
í kvennamálunum koma mótsagn-
imar í honum sjálfum skýrast fram.
Hann flytur til Varsjár, þar sem
síst er að fínna slíkan kvenkost.
í Varsjá er upplausnarástand,
sérstaklega meðal gyðinga. Fátækt,
hungur og óvissa um framtíðina
setja mark sitt á öll mannleg sam-
skipti. Fólk reynir að njóta hverrar
mínútu eins og hún sé stolin. Að
elska og njótast er lífsspursmál.
Bikar munúðarinnar er drukkinn til
botns, án þess að spurt sé um fram-
haldið.
í Varsjá kynnist Singer Gínu,
konu sem er heilli kynslóð eldri en
hann og hefur lagt fyrir sig ýmsar
atvinnugreinar, sumar jafnvel vafa-
samar. Hjá Gínu fær hann kynferð-
islegt uppeldi sitt og hann kemst
að því að kynorka hans er næsta
ótæmandi. Á vissan hátt fyrirverður
hann sig fyrir þessa staðreynd og
hann vill ekki að bróðir hans kom-
ist að ástarsambandi þeirra Gínu.
Á eftir Gínu koma Stefa, Maríla
og Lena. Lena er ofsóttur kommún-
isti í felum. Hún á yfír höfði sér
fangelsisdóm vegna pólitískra skoð-
ana og hennar eina von er að verða
ófrísk. Singer eyðir með henni hluta
af sumri úti í sveit og Lena fær ósk
sína uppfyllta, hún verður ófrísk.
Þegar Singer flýr til Bandaríkjanna
upp úr 1936 er Lena farin frá hon-
um og hann veit ekkert um afdrif
hennar.
Hann felur einkalíf sitt rækilega
fyrir félögum sínum í Rithöfunda-
klúbbnum og fyrir bróður sínum.
Hann hefur orð á sér fyrir að vera
einrænn og forðast mannleg sam-
skipti, en það er öðru nær. Singer
skammast sín einfaldlega fyrir
líkamlegar hvatir sínar þótt hann
ráði ekki við þær.
En hvert leiða allar þessar mót-
sagnir hann í leit að algildum
sannleika um Guð og manninn? Ef
Guð er almáttugur og skapar mann-
inn í sinni mynd; manninn sem er
eirðarlaus, magnlaus, fullur af mót-
sögnum og þjáist stöðugt, hver er
þá Guð? Sú lausn sem hann fínnur
í þessari miklu ráðgátu er að þver-
sagnimar séu líka partur af Guði.
Guð sé bæði samræmi og ósam-
ræmi. Guð sé ekki sjálfum sér
samkvæmur og það sé skýringin á
öllum mótsögnunum í Lögmálinu, í
manninum og allri náttúrunni. Guð
sé sjálfur ekki fullskapaður, ekki
alfullkomin vera í eitt skipti fyrir
öll. Þrátt fyrir allt lifír vonin.
Ást og útlegð er ógleymanleg
bók. Maður les hana aftur og aftur
og fínnur alltaf fullt af nýjum
spumingum, fullt af nýjum svörum.
Singer er hreinskilinn og berorður.
Hann er sérkennilega fyndinn og
skemmtilegur í allri sinni svartsýni.
Singer verður stöðugt fyrir mót-
læti en klöngrast í gegnum lífíð á
einhvem óskiljanlegan hátt með
hugann við allt annað en praktíska
hluti. Hann veit aðeins eitt; hann
vill skrifa. Allt annað eru aukaat-
riði.
Þýðing Hjartar Pálssonar er al-
veg með ágætum. Það sem má
kannski helst fínna að er að hann
er dálítið varfærinn í orðavali þegar
kemur að frásögnum Singers á ást-
arlífínu. Hér og þar í bókinni eru
líka orð á jiddísku sem ekki er
hægt að þýða á íslensku og hefði
ekki skaðað að hafa skýringar á
þeim aftast í bókinni.