Morgunblaðið - 04.12.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 04.12.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986 Síðustu sýningar á „Hin sterkari og sú veikari“ SÍÐUSTU sýningar Alþýðuleik- hússins á einþáttungnm Augusts Strindbergs og Þorgeirs Þor- geirssonar, „Hin sterkari og sú veikari“ verða í kjallara Hlað- varpans að Vesturgötu 3 í kvöld fimmtudaginn 4. desember og sunnudaginn 7. desember kl. 21.00. Leikarar eru Margrét Ákadóttir, Anna Sigríður Einarsdóttir, Elfa Gísladóttir og Harald G. Haralds- son. Leikstjóri er Inga Bjamason og Vilhjálmur Vilhjálmsson sá um leikmynd og búninga. Fyrir sýningar og í hléi leikur Páll Eyjólfsson gítarleikari verk eftir Mist Þorkelsdóttur og Fern- ando Sor. Sigfús Þór Elíasson, prófessor í tannlækningum: ’Böm og unglingar ■m í* • rll * þuría mjólk -tannanna vegnii" Meö skynsamlegu mataræði, flúoruppbót og góðri munnhiröu er má forðast flestar tannskemmdir og megnið af tannvegssjúkdómum. I nýrri rannsókn, sem prófessor Sigfús Þór Elíasson geröi, kom fram aö tannheilsu íslenskra skólabama er mjög ábótavant. Foreldrar, skólar og aörir, sem sjá um uppeldi bama og unglinga þurfa aö spyma við fótum og sjá til þess að börnin borði rétta fæðu og hirði tennur sínar. Jafnframt þarf að vera á verði gagnvart nútíma matvælaiðnaði þar sem sykri er bætt í fæðuna. ViÖ eðlilegar aöstæöur* dregur mjólk úr tannskemmdum. Prótein í mjólkinni og hið háa kalk- og fosfórinnihald mjólkurinnar er vemdandi fyrir tennumar. Mjólkin dregur þannig verulega úr áhrifum sýru, sem myndast með gerjun ítannsýklunni, hindrar úrkölkun vegna sýruáhrifa og hjálpar til við endurkölkun á byrjandi tannskemmd. Þessir eiginleikar mjólkurinnar koma skýrt í Ijós, þegar hennar er neytt með sykurríkum mat, t.d. verður minni sýrumyndun í munninum ef mjólk er sett út á morgunkom, sem inniheldur sykur. Mjólk ætti að vera hluti af hverri máltíð, bæði heima og í skólanum - tannanna vegna, til vaxtar þeirra og vemdunar. * Varast skal að láta börn sofa með pela. (svefni hægir á munnvatnsrennsli og jafnvel mjólk sem inniheldur einungis lítinn mjólkursykur getur valdið skaða á tönnunum ef hún situr langtímum saman í munninum. MJÓLKURDAGSNEFND 'O E > c: o > tz '03 CD Hvað er hæfileg mjólkurdrykkja? eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Ráðlagður Hæfilegur Aldurshópur dagsskammtur mjólkurskammtur ár (RDS)af kalki ímg (2,5 dl glös) Böm1-10 800 2 Unglingar11-18 1200 3 Fullorönir karlar og konur* 800 2 ' Margir sérfræðingar telja aö kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf sé mun hærri eöa 1200-1500 mg/dag. Reynist það rétt er hæfilegur mjólkurskammtur ekki undir 3 glösum á dag. íris Ólafsdóttir veit hversu mikilvægt það er að borða réttan mat og hirða tennurnar vel. Hún drekkur mjólk og tryggir tönnunum þannig þaö kalk sem þær þurfa. ELSKHUGINN Skáldsaga eftir Marguerite Duras ELSKHUGINN eftir franska höfundinn Marguerite Duras er komin út í íslenskri þýðingu Hallfríðar Jakobsdóttur. I fréttatilkynningu frá Iðunni segir: „Bók þessi hefur slegið eftir- minnilega í gegn meðal lesenda og fyrir hana hlaut höfundur bæði Goncourt-verðlaunin árið 1984 og Ritz-Hemingway-verðlaunin árið 1986. Marguerite Duras, sem er meðal fremstu rithöfunda Frakka í dag, byggir hér á minningum frá uppvaxtarárum sínum í Indókína. Elskhuginn er sagan um fyrstu ástina, raunsönn frásögn ungrar, franskrar skólastúlku um samband hennar við sér eldri og auðugan aðdáanda af kínverskum ættum. Þetta er saga hinnar forboðnu, þöglu ástríðu þar sem gleði og sorg, ást og ótti endurspegla andstæður mannlífsins. Elskhuginn er jafnframt saga hinnar fordæmdu fjölskyldu, saga flóttans frá sársaukanum, sektinni, fátæktinni, flóttans frá hinu óum- flýjanlega sem skilur eftir sig djúp spor í hugum Iesenda." Sigurður H. Þorsteinsson. „íslensk frí- merki 1987“ komin út ÚT ER komin hjá ísafoldarprent- smiðju bókin íslensk frímerki 1987 eftir Sigurð H. Þorsteins- son. Þessi bók ætti að vera sérstak- lega mikill fengur fyrir alla frímerkjasafnara því nú í ár var ráðist í það vandasama verk í fyrsta skipti að litprenta öll íslensk frímerki í bókinni. Þetta er 31. útgáfa bókarinnar og jafnframt er hún í fyrsta skipti litprentuð í tilefni 110 ára afmælis ísafoldarprentsmiðju 1987. Bókin er 102 bls. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.