Morgunblaðið - 04.12.1986, Síða 49

Morgunblaðið - 04.12.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986 49 Menntamálaráðuneytið: Uthlutun styrkja úr Menn- A _ ingarsjóði Islands og Finnlands STJÓRN Menningarsjóðs íslands og Finnlands kom saman til fundar 19. og 20. þ.m. í Helsingfors í Finn- landi til að ákveða árlega úthlutun styrkja úr sjóðnum. Umsóknarfrest- ur var til 15. október sl. og bárust alls 123 umsóknir, þar af 101 frá Finnlandi og 22 frá Islandi. Úthlut- að var samtals 105.000 finnskum mörkum eða rúmlega 800 þúsund krónum, og hlutu eftirtaldir um- sækjendur styrki sem hér segir: 1. Ferðasjóðurjarð-oglandfræði- nema í Háskóla íslands, 5.000 mörk, til náms- og rannsóknar- ferðar til Finnlands. 2. Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri, 5.000 mörk, til hljómleikaferðar til Finnlands. 3. Guðrún Bjartmarsdóttir, cand. mag., 4.000 mörk, til að kynna sér þjóðfræðirannsóknir í Finnlandi. 4. Gunnar Salvarsson, skólastjóri, 5.000 mörk, til að kynna sér gerð og notkun fréttaþátta fyr- ir heymarlausa við útvarps- stöðina í Rovaniemi í Finnlandi. 5. Marjatta Isberg, fil. maist., 5.000 mörk, til Finnlandsfarar vegna þýðingar og útgáfu bók- ar á finnsku um islenska þjóðhætti. 6. Sigurlaug Jóhannesdóttir, vef- ari, 5.000 mörk, til að setja upp einkasýningu í Helsingfors haustið 1987. 7. Þorgeir Ólafsson, dagskrár- Bókln um létt vín gerðarmaður, 4.000 mörk, ferðastyrkur til að kynna sér gerð fraaðslu- og menningar- þátta við sænskudeild Ríkisút- varpsins í Helsingfors. 8. Messíana Tómasdóttir, lista- maður, og Patrick Kosk, 5.000 mörk, til að undirbúa leikgerð á verkinu „7 reflections“. 9. Félagsstofnun stúdenta við Háskólann í Ábo, 3.000 mörk, vegna þátttöku 2 íslenskra myndlistarmanna í myndlistar- sýningu með Boekie-Woekie- lokknum. 10. Helsingin Juniorijouset (strengjahljómsveit unglinga), 5.000 mörk, til að kaupa verk til flutnings eftir Hafliða Hallgrímsson 11. Mikko Perkoila, vísnasöngvari, 4.000 mörk, til hljómleikaferð- ar til Islands. 12. Heikki Arppo og Maijatta Nu- oreva, grafíklistamenn, 5.000 mörk, til að halda grafíksýn- ingu á Islandi. 13. Sirkka Könönen, textíllista- maður, 4.000 mörk, til að halda sýningu á íslandi. 14. Olli Tamminen, lektor við List- iðnaðarháskólann í Esbo, 4.000 rriörk, til að kynna sér nytjalist á íslandi. 15. Tammerfors-háskóli, 5.000 mörk, til gestaleiksýningar á Íslandi. 16. Lasse Hjelt, leikari, 3.000 mörk, til að vinna að gerð leik- rits fyrir brúðuleikhús í sam- vinnu við íslenska aðila. 17. Maj-Lis Holmberg, lektor, 5.000 mörk, til að vinna að nýrri sýnisbók á sænsku um íslenska nútímaljóðlist. 18. Dr. Pekka Lankinen, dr. Ja- akko Lumme og Ari Riihimaa, fíl. kand., 5.000 mörk, til rann- sókna á bananaflugum (Dro- sophila melanogaster) á íslandi. 19. Pertti Hurme, fll. lic., 2.000 mörk, til hreinritunar og útgáfu á ritgerð um framburð íslenskr- ar tungu. 20. Caj Westerberg, rithöfundur, 5.000 mörk, til að dvelja um skeið á Islandi og safna efni í bók. 21. Eila Erkkila, ritstjóri,_ Öster- myra, 4.000 mörk, til íslands- ferðar til að kynna sér og skrifa um íslenskan heimilisiðnað. 22. Suvi Ahola, ritstjóri, Helsing- fors, 4.000 mörk, til íslands- farar til að kynna sér íslenskar nútímabókmenntir. 23. Lýðháskólinn í Austurbotni, 5.000 mörk, til íslandsfarar nemenda til að kynnast æsku • lýðsstarfi á ísiandi. 24. Juko Hemmi, ferðamálafulltrúi í Rovaniemi, 4.000 mörk, til að undirbúa skiptiferðir til ís- lands. Stofnfé sjóðsins var 450.000 fínnsk mörk sem fínnska þjóðþingið veitti í tilefni af því að minnst var 1100 ára afmælis byggðar á íslandi sumarið 1974. Stjóm sjóðsins skipa Matti Gustafson, deildarstjóri í finnska menntamálaráðuneytinu, formaður, Juha Peura, fíl. mag., Kristín Þórarinsdóttir Mántylá,. skrifstofustjóri og Þórann Braga- dóttir deildarstjóri. Varamaður af fínnskri hálfu er Ann Sandelin, fíl. mag., en af íslenskri hálfu Þórdís Þorvaldsdóttir borgarbókavörður. •; f, f l|fC p ÞAÐ MÆLIR ALLT MEÐ ÞVI AÐ ÞU BREGÐIR ÞÉR MEÐ BEINU FLUGI TIL ORLANDO. Bókum léttvín BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg- ur hefur gefið út Bókina um létt vín eftir Pamelu Vandyke Price í þýðingu dr. Araar Ólafssonar. Ritstjórar Gestgjafans, þau Elín Káradóttir og Hilmar B. Jónsson, rita formála bókarinnar og segja þar m.a.: „Það er okkur bæði ljúft og skylt að fylgja þessari bók úr hlaði með nokkrum orðum. Ljúft, þar sem fyrir löngu var orðið tfma- bært að út kæmi á íslensku bók með almennri fræðslu um vín, vínvið og vínræktun. Skylt, þar eð við lögðum lítilsháttar að mörkum við þýðingu þessarar bókar og við að fínna og búa til ýmis hugtök um vín.“ Og ennfremur „Til þess að geta boðið upp á rétt vín með mat þarf gestgjafinn að vita eitthvað um vín og Pamela Vandyke Price er góður leiðbeinandi. Bók hennar ætti því að geta frætt fáfróða um allt er lýtur að víni, eytt fordómum og ýmsum misskilningi um vín og aðstoðað lesendur bókarinnar til þess að verða, ef ekki hinn full- komni gestgjafí, þá allt að því.“ Bókin um létt vín er sett og umbrotin hjá Ljóshnit. Kassagerðin annaðist filmuvinnu og prentun en Amarfell sá um bókbandið. Þaðersagtað veðrið hafi aldrei veriðbetra. Eittervíst. Verðiðhefur sjaldan verið betra. Dollarinn erá góðu verði - ogþín bíða lystisemdir Flórída, allt frá dýrindis mat og ævintýraheimi Walts Disneys til tónleika og skemmtana undir berum himni. Líttu til dæmis á þennan útreikning: Ver ð* Hótel Staður Dvöl A Kr.21.488 Days Inn Orlando 11 dagar B Kr, 23.952 Dayslnn Orlando 18dagar C Kr. 23.766 Gateway St. Pete 11 dagar D Kr. 27.686 Gateway St. Pete 18dagar Innifalið flugferðir, akstur til og frá flugvelli og gisting. * Verð á mann í 4ra manna fjölskyldu (tvö böm undir 12 ára aidri). Gildir til 15. des. 1986. 'é T) I £ »> Ótal fleiri ótrúlega ódýrir möguleikar. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, umboösmenn og ferðaskrifstofur. Söluskrifstofan Lækjargötu sími 690100, Hótel Esju sími 690100, Alfabakka 10 sfmi 690100. V ' , * -■Id FLUGLEIDIR Upplýsingasími: 25100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.