Morgunblaðið - 17.01.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
Sandgerði:
Minning--
arathöfn
í Hvalsnes-
kirkju
Grindavík.
MINNINGARATHÖFN um skip-
verjana sem fórust með vélbátn-
um Amari ÍS 125 frá Sandgerði
fer fram frá Hvalsneskirkju í
dag, laugardaginn 17. janúar, kl.
14.00.
Þeir sem fórust voru Jón
Eðvaldsson til heimilis að Suður-
götu 28, Sandgerði, og Jóhannes
Pálsson til heimilis að Suðurgötu
16, Sandgerði. Báturinn fórst þann
23. nóvember við Selatanga og hef-
ur leit að mönnunum engan árangur
borið.
— Kr.Ben.
Sex skákir af sjö unnust í umferðinni
HELGI Ólafsson stórmeistari vann fyrstu skák sina á skákmótinu í
Wijk aan Zee í Hollandi, sem hófst i gær. Helgi tefldi við stórmeist-
arann Gutman frá ísrael og vann í 43 leikjum. Fjórtán skákmenn,
þar af 12 stórmeistarar, taka þátt í mótinu og athygli vakti að sex
skákir af sjö unnust í fyrstu umferðinni.
Úrslitin í fyrstu umferð mótsins,
sem er í 13. styrkleikaflokki, urðu
þau að Short frá Bretlandi vann
Viktor Kortsnoi, Flear frá Bretlandi
vann van der Wiel frá Hollandi,
Nogueras frá Kúbu vann Hulak frá
Júgóslavíu, van der Sterren frá
Hollandi vann Ljubojevic frá Júgó-
slavíu, Zapata frá Cólombíu vann
Miles frá Bretlandi, Helgi vann
Gutman og Anderson frá Svíþjóð
og Sosonko frá Hollandi gerðu jafn-
tefli. Allir þátttakendumir em
stórmeistarar í skák nema Flear og
van der Sterren.
í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Helgi, sem stjómaði hvítu
mönnunum í skákinni, hafa unnið
Gutman nokkuð örugglega, þótt
skákin hafí dregist á langinn. Hann
sagði að mótið legðist vel í sig,
þótt hann hefði tekið sér hlé frá
skákinni eftir að Ólympíumótinu í
Dubai lauk.
Það vakti athygli að hrein úrslit
fengust í sex skákanna og sagði
Helgi að flestir þátttakendanna
væru ekki hræddir við að tefla til
vinnings. Til samanburðar nefndi
hann að nýlokið er sterku stórmeist-
áramóti á Spáni, þar sem sigurveg-
arinn, Ribli, fékk 6,5 vinninga af
11 mögulegum og vann aðeins tvær
skákir en gerði 9 jafntefli. Fjórir
skákmenn, þar á meðal Boris
Spassky, urðu jafnir í 2. sæti með
6 vinninga, og allir unnu þeir að-
eins eina skák en gerðu 9 jafritefli.
Önnur umferð mótsins í Wijk aan
Zee verður tefld í dag og þá teflir
Helgi við Anthony Miles frá Bret-
Iandi og hefur svart.
rammi kaupir
Þórleif Jóns-
son SI
ÞORMÓÐUR rammi á Siglufirði
hefur fest kaup á frystitogaran-
um Þórleifi Jónssyni SI 80.
Skipið verður skráð undir nafn-
inu Stapavík SI 5 og fer á
rækjuveiðar á næstunni. Að sögn
Runólfs Birgissonar skrifstofu-
stjóra er ekki hægt að gefa
verðið upp að svo stöddu.
Runólfur sagði að kaupin hefði
borið brátt að. Eigandi togarans var
Þorleifur Bjömsson og var togarinn
skráður á Höfn í Homafirði þar til
í fyrra er hann var fluttur til Siglu-
íjarðar. Skipið er 385 lestir að
stærð.
Stapavík verður þriðja skipið í
eigu Þormóðs ramma, hin eru
Stálvík SI 1 og Sigluvík SI 2. Einn-
ig hefur Sveinborgin lagt upp hjá
fiskvinnslustöðinni að undanfömu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Atkvæðin talin
ATKVÆÐI í allsheijaratkvæðagreiðslu um sjómannasamning-
ana voru talin á skrifstofu ríkissáttasemjara síðdegis i gær.
Myndin var tekin þegar unnið var við talningu á atkvæðum
yfirmanna. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari og einn
úr samninganefnd Farmanna- og fiskimannasambandsins hella
úr kjörkössum. Guðmundur Vignir Jósefsson fylgist með.
AIDA FRUMSYND
Morgunblaðið/Þorkell
ÓPERAN Aida eftir Verdi var frumsýnd hjá íslenzku óperunni í gærkvöldi. Á myndinni slaka leikarar á í hléi eftir fyrsta þátt.
Sigríður Ella, sem syngur hlutverk Amneris, fær sér hressingu, en félagar hennar klappa hressilega. Áhorfendur kunnu vel að
meta sýninguna og fögnuðu innilega í leikslok.
Verkfall farmanna:
Mörg kaupskípanna
stöðvast á næstunni
Pilturinn sem
fórst í Star-
dalshnúki
PILTURINN, sem lést af völdum
áverka sem hann hlaut eftir fall
úr klettum í Stardalshnúki í
Mosfellssveit í fyrradag, hét
Guðmundur Jökull Jensson,
nemi, til heimilis að Fálkagötu 5
í Reylgavík.
' Guðmundur Jökull var 17 ára,
fæddur 6. febrúar 1969. Hann bjó
í foreldrahúsum.
Unnið er að rannsókn slyssins á
vegum Rannsóknarlögreglu ríkisins
og liggja niðurstöður ekki fyrir.
Astæður slyssins eru þó kunnar.
Festing sigbúnaðar piltanna, svo-
kölluð hneta, brast.
LÍK sjómannanna þriggja frá
Grænhöfðaeyjum, sem fórust
með tankskipinu Syneta, verða
jarðsett í Fossvogskirkjugarði
næsta miðvikudag.
Að sögn Davíðs Osvaldssonar hjá
Líkkistuvinnustofu Eyvindar Ama-
sonar, barst um þetta beiðni frá
KAUPFÖR Skipadeildar Sam-
bandsins verða flest stöðvuð í
innanríkisráðuneytinu á Græn-
höfðaeyjum, með milligöngu full-
trúa útgerðarfélags Syneta í
London.
Davíð sagði að jarðarför sjó-
mannanna færi að öllum líkindum
fram í Fossvogskirkjugarði klukkan
10.30 n.k. miðvikudag.
Reykjavíkurhöfn um næstu helgi
standi verkfall farmanna enn.
Fossar Eimskipafélagsins verða
í förum fram eftir mánuðinum,
en um þessa helgi stöðvast Eyr-
arfoss og Reykjafoss. Forráða-
menn skipafélaganna segjast
viðbúnir langri vinnudeilu.
Ríkisskip hefur ekki haft neitt
skip í siglingum frá því á fyrstu
dögum verkfallsins. Eimskipafélag-
ið hefur haldið úti sínum skipum
að Ljósafossi undanskildum sem
varð innlyksa þegar verkfallið hófst.
Að sögn Þórðar Sverrissonar munu
skip félagsins halda áfram sigling-
um fram í fyrstu viku febrúar, en
tvö leiguskip með erlendum áhöfn-
um eru í förum fyrir það. Af
Sambandsskipum eru Stapafell og
Hvassafellið nú í höfn, Skaftafellið
er væntanlegt á morgun og Jökul-
fell, Amarfell og Dísarfell í næstu
viku.
Talsmenn skipafélaganna voru
vondaufír um að lausn verkfallsins
væri í nánd. Mikið bæri enn í milli
og þyrfti margt að gerast til að
saman gengi á næstunni. Að sögn
Birgis Björgvinssonar hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur, hafa fáar
beiðnir um undanþágur borist það
sem af er verkfallinu. Sagði hann
að þar sem færð væri góð á vegum
hefðu fáir lent í vandræðum með
aðdrætti. Þeim beiðnum sem borist
hafa hefur öllum verið hafnað.
Þormóður
Skákmótið í Wijk aan zee:
Helgi vann Gutman
í fyrstu umferð
Sjómennirnir frá Grænhöfðaeyjum:
Líkin verða jarðsett hér