Morgunblaðið - 17.01.1987, Page 15
r>oo r ot fTTTrr a tt<t a tttt a t rrrci a tctt/t t; tctttaa
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
isr
15
Smekkleg
ársmappa
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
í síðasta þætti var íslenzka
póststjómin gagnrýnd nokkuð
fyrir allt of mikið seinlæti við að
tilkynna frímerkjaútgáfur næsta
árs. Ég hlýt eins og aðrir að von-
ast til þess, að hún sjái að sér í
þessum efnum og komi hér á sömu
reglu og tíðkast með flestum póst-
stjómum, sem láta sér m.a. annt
um að selja þessa „vöru“ til
áhugasamra safnara.
Ég reisi von mína á því, að hér
verði brátt breyting á innan
veggja póststjómarinnar á þessu
sviði, að jákvæð þróun hefur orðið
í frímerkjamálum hennar í öðrum
greinum. Um langt árabil þóttu
tilkynningar íslenzku póststjóm-
arinnar um ný frímerki heldur
óásjálegar og tæplega eftirsókn-
arverðar nema til fræðslu um
væntanlegar útgáfur. A þessu
varð breyting fyrir örfáum árum
og svo mikil, að menn glöddust
yfir. Hygg ég, að menn haldi þess-
um tilkynningum fremur til haga
eftir þá andlitslyftingu, enda em
myndir væntanlegra frímerkja lit-
prentaðar framan á. Við það
verður hver tilkynning um leið
verðugur safngripur.
Póst- og símamálastofnunin
hefur gefið út sérstakar ársmöpp-
ur, sem svo em nefndar, síðan
árið 1974. Em þar í öll frímerki
liðins árs. Hafa þessar möppur
verið eftirsóttar af söfnumm og
eins öðmm viðskiptavinum til
gjafa og sem minjagripir. Hafa
margar póststjómir lagt í veruleg-
an kostnað við að gera þessar
möppur sem bezt úr garði og
þannig sem eftirtektarverðastar
um útlit og myndefni. Eins fylgja
oft með útskýringar á hverri út-
gáfu og jafnvel ýmislegt annað,
sem varðar land og lýð. Við þurf-
um ekki annað en fara til frænda
okkar, Færeyinga, til þess að
ganga úr skugga um þetta.
Hvað gerði íslenzka póststjóm-
in í þessum efnum? Því miður
varð hún hér sem annars staðar
heldur aftarlega á merinni. Hins
vegar hlutu forráðamenn hennar
að sjá, hvað gerðist í kringum
okkur og hvem árangur það bar.
Og viti menn! Nú rétt fyrir jólin
kom út mappa með íslenzkum
frímerkjum ársins 1986 og það í
glæsilegum búningi miðað við
fyrri ár. Ekki ætla ég að lýsa
ÍSLENSK
FRÍMERKÍ
1986
IGEiANÐIC
STAMPS
þessari möppu nákvæmlega, en
birti hér einungis framhlið henn-
ar. Ekki er þvi að neita, að hún
ber verulegan keim af frænku
sinni í Færeyjum, en það lasta ég
sízt, enda segir máltækið, að
margt sé líkt með skyldum. Fær-
eyingar standa hér samt enn feti
framar en við, en þeir hafa líka
meiri reynslu á þessu sviði og
hafa verið einkar duglegir sölu-
menn — e.t.v. um of að mínum
dómi.
Ekki efa ég, að ýmsir geta
fundið eitthvað að þessari nýju
ársmöppu. Ég veit, að sumum
fínnst kápan öll heldur drungaleg
og ekki beint aðlaðandi, enda hef-
ur mynd hennar fengið heitið:
Rain in the mountains, svo að
útlendingar megi a.m.k. skilja.
Svo er enn fremur tekið fram á
ensku, að myndin sé frá suður-
ströndinni og sjái til Mýrdals-
jökuls. Ekki get ég svo neitað því
sem Sunnlendingur, að þar er oft
vætusamt! íslenzka póststjómin
verður hér sízt sökuð um það að
villa um fyrir útlendingum með
sérstakri glansmynd frá íslandi.
Sjálfum fínnst mér mikil dulúð
hvíla yfír myndinni og hún einkar
þekkileg.
Ég er sannfærður um, að þessi
ársmappa póststjómarinnar þykir
áhugaverð, enda var mér sagt af
póstmönnum, að hún hefði verið
keypt mikið nú fyrir jólin og auð-
sæilega til gjafa. Sjálfur get ég
vel sagt, að ég hef þegar notað
hana til landkynninga til nokkurra
vina erlendis. Ég óska Póst- og
símamálastofnuninni til hamingju
með þetta framtak og vænti jafn-
vel enn skemmtilegri möppu að
ári liðnu.
Hvert er falleg-
asta íslenzka
frímerkið 1986?
Þá vil ég enn hæla íslenzku
póststjóminni fyrir nýtt og
skemmtilegt framtak. Hún hefur
sent frá sér litprentaðan Qórblöð-
ung með myndum af öllum
frímerkjum liðins árs. Um leið
býður hún mönnum upp á að
greiða atkvæði um þau og til-
greina þijú frímerki, sem þeim
þykja fallegust. Með þátttöku
sinni geta menn unnið til verð-
launa, því að dregin verða út 25
nöfn þátttakenda. Fá þeir heppnu
ókeypis ársáskrift 1987 að
íslenzkum frímerlqum, þ.e. eitt
fyrstadagsumslag og svo óstimpl-
aða fjórblokk. Vil ég eindregið
hvetja lesendur til þess að taka
þátt í þessari könnun póststjóm-
arinnar og láta á þann hátt í ljós
álit sitt á íslenzkum frímerkjum.
Atkvæðaseðill mun hafa verið
sendur öllum föstum áskrifendum
að íslenzkum frímerkjum, inn-
lendum sem erlendum. Auðvitað
geta svo allir aðrir áhugamenn
fengið slíkan seðil, ef þeir vilja tjá
sig um þau frímerki, sem eru feg-
urst að þeirra dómi.
Vafalaust hleypir íslenzka póst-
stjómin þessarí skoðanakönnun
af stað til þess að geta dregið
lærdóm af viðbrögðum manna.
Ekki er þetta síður forvitnilegt í
ljósi þess, að frímérki ársins 1986
hafa vakið verulega athygli og
það svo, að þau hafa fengið lof-
lega dóma í erlendum frímerlga-
blöðum. Einkum hefur smáörkin
frá Degi frímerkisins vakið hrifn-
ingu meðal safnara. Er þetta
vissulega mikið ánægjuefni fyrir
útgáfunefnd póststjómarinnar.
Segja má, að einungis ein útgáfa
hafí fengið allharðan dóm sumra,
en það em jólafrímerkin. Virðist
vera mjög erfítt og vandasamt að
fullnægja kröfum safnara um
myndefni jólafrímerkja. í
frímerkjaþætti 8. nóv. sl. ræddi
ég um þessa útgáfu og eins al-
mennt um jólafrímerki póststjóm-
arinnar. Vísa ég lesendum á það,
sem þar segir. Hins vegar mun
ég að gefnu tilefni fara enn nokkr-
um orðum um þessa útgáfu í
næsta þætti.
eru augljósir!
Ársávöxtun hækkaðMM. janúar
og er nú 18,68%.
Hafðu KASKÓ að leiðarljósi.
VeRZLUNRRÐRNKINN
-vúmcvi með fi&i!