Morgunblaðið - 28.03.1987, Síða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
HSV og Bayern í dag
• Scott Mackie frá Skotlandi verður meðal keppenda á fimleikamót-
inu í Höllinni um helgina.
Frá ióhannl Inga Gunnaraaynl I Veatur-Þýakalandl.
LEIKUR tveggja efstu liða 1.
deildarinnar í knattspyrnu hór í
Þýskalandi verður aðal leikur
helgarinnar. Það eru Bayern
MUnchen og Hamburger Sport
Verein sem leika f Hamborg og
eru menn á einu máli um að þar
verði hart barist.
Bayern hefur ekki tapað leik á
útivelli það sem af er keppnistíma-
bilinu og HSV hefur ekki enn tapað
leik heima og ef bæði liðin eru
Golf-
námskeið
Á mánudaginn hefjast ný byrj-
endanámskeið f golfi hjá John
Drummond golfkennara og verð-
ur kennslan í golfskóla hans að
Tangarhöfða.
Drummond mun kenna fólki að
meðhöndla kylfurnar og kúnstina
við að koma boltanum í holuna í
sem fæstum höggum. Hægt er
einnig að fá einkatíma og notast
hann þá meðal annars við mynd-
band þannig fólk getur séð sjálft
sig leika golf.
Þeir sem hug hafa á að rifja upp
sveifiuna eða að læra hana í fyrsta
sinn geta haft samband við golf-
skólann en síminn þar er 689183.
íþróttir helgarinnar:
Mikið fimleikamót
í Laugardalshöll
FIMLEIKAFÓLK okkar stendur í
ströngu nú um helgina því f Laug-
ardalshöllinni verður haldið mikið
mót þar sem fimlefkafólk frá átta
þjóðum, auk íslands, reyna með
sér. Mótið hefst í dag og verður
fram haidið á morgun.
Margir þekktir fimleikamenn
verða með í mótinu en erlendir
keppendur er 53 og er þetta
stærsti hópur erlendra fimleika-
manna sem hingað hefur komið.
Noröurlandameistari unglinga,
Stefan Eiriksson frá Svíþjóð, verð-
ur meðal keppenda og einnig ung
og bráðefnileg sænsk stúlka að
nafni Jessika Lundgreen.
Frá Sviss og Belgíu koma mjög
sterkir piltar og stúlkur koma frá
Luxemborg og frlandi en frá Nor-
egi, Grikklandi og Skotlandi koma
fullskipuð lið.
íslenska liðið er þannig skipað:
Guðjón Guðmundsson, Jóhannes
Niels Sigurðsson, Axel Bragason,
Linda Steinunn Pétursdóttir, Fjóla
Ólafsdóttir og Eva Úlla Hilmars-
dóttir.
Talsvert er um meiðsli hjá okkar
sterkustu stúlkum og geta þær því
ekki veriö með en ekki er að efa
að þær sem taka stööur þeirra
standa sig vel.
Körfubolti
Keflvíkingar taka á móti Vals-
mönnum í Keflavík í dag klukkan
16 og er þetta þriðji leikur liðanna
um réttinn til að leika við Njarðvík-
inga í úrslitum íslandsmótsins.
Valur vann síðast í Keflavík en
Keflvíkingar síðan í Seljaskóla og
voru báðir leikirnir þrælskemmti-
legir og spennandi og verður svo
eflaust einnig í dag.
Handbolti
Nú er lítið eftir orðið af íslandsmót-
inu í handbolta. Haukar leika viö
KA fyrir norðan í dag klukkan 13.30
og er það mikilvægur leikur fyrir
Hauka sem enn eiga mörugleika á
að halda sér í deildinni. Á morgun
leika Fram og Víkingur í Höllinni
klukkan 20.15 og Ármann leikur
síðan við FH strax á eftir. Á undan
þessum leikjum, eða klukkan 19,
leika Fram og Víkingur í 1. deild
kvenna.
í dag eru tveir leikir í 1. deild
kvenna. Stjarnan og Valur leika í
Digranesi klukkan 16.30 og í Eyjum
leika ÍBV og FH klukkan 13.30.
Fótbolti
Einn leikur verður í Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu á morgun.
KR og Leiknir leika og hefst leikur-
inn klukkan 20.30 á gervigrasvell-
inum í Laugardal.
Keila
Landsliðið okkar í keilu verður
með sýningu í keilusalnum í
Frjálsar íþróttir:
Heimsmet ógilt
EAMONN Cochlan, írlandi, setti
heimsmet f 1500 m hlaupi innan-
húss 1981, en það var tekið af
honum f gær vegna ónákvæmni
við tfmatöku og Jose Luis Gonzal-
es, Spáni, var skráður heimsmet-
hafi f greininni.
Fyrir rúmum sex árum hljóp
Cochlan míluna á 3.50,60, en tími
hans eftir 1500 m vartekinn á einni
klukkunni og reyndist vera 3.35,6.
Met, sett fyrir síðustu áramót,
hafa verið í endurskoðun og í ijós
kom að tími Cochlans var aðeins
mældur á einni klukku, en þrjár
þarf til að met fáist staðfest.
Gonzales hljóp á 3.36,03 í fyrra
og fékk þann tíma staðfestan sem
heimsmet í gær.
Öskjuhlíð í dag og hefst hún klukk-
an 14.30. Hver veit nema landslið-
ið kenni fólki líka kúnstina með
hvítu keilurnar og stóru kúluna auk
þess aðs sýna.
staðráðin í að viðhalda þessu ætti
að geta oröið fjör. Hvorugt þarf
þó að missa met sín því ef jafn-
tefli verður breytist ekkert. Víst er
um að hart verður barist á miðj-
unni því þar liggur styrkur beggja.
Uerdingen leikur á útivelli gegn
Dortmund og verður það erfiður
leikur fyrir okkar menn því Dort-
mund eru erfiðir heim að sækja.
Atli mun vera í byrjunarliðinu og
Lárus er á bekknum og fær því ef
til vill tækifæri til að sýna forráða-
mönnum liðsins að hann ertilbúinn
í slaginn.
Dormund á sjö leikmenn í lands-
liðum sem leikið hafa í vikunni og
hafa þeir ekkert getað æft með
liðinu fyrir þennan leik.
Stuttgart sækir Schalke heim
og er það mikilvægur leikur fyrir
Ásgeir og félaga. Gengi Schalke
fer mikið eftir því hvernig Thon
Roch
með
berkla
MARKVÖRÐUR Grosswallstadt,
Sigfried Roch, kom heim til sín
af æfingu í fyrradag og var eitt-
hvað slappur. Hann ákvað að fara
til læknis og eftir skoðun var
honum tjáð að hann væri með
berkla.
Hinn 27 ára gamli markvörður
hafði aldrei fundið fyrir neinu óeðli-
legu fyrr en þarna og hafa bæði
forráðamenn félagsins og lands-
liðsins brugðist harkalega við.
Leikmenn verða allir sendir í rann-
sóknir vegna þessa því talsverð
hætta er talin á smitun.
Roch hefur leikið 36 landsleiki
fyrir Vestur-Þýskaland og fimm
sinnum hefur hann orðið meistari
þar í landi og þrívegis Evrópu-
meistari.
Morgunblaðiö/Sigurður Jónsson
• Gunnar B. Guðmundsson kaupmaður og Stefán Garðarsson form-
aður knattspyrnudeildarinnar innsigla samninginn með handabandi.
Með þeim á myndinni eru knattspyrnumennirnir Páll Guðmundsson,
Hilmar Hólmgeirsson og Þórarinn Ingólfsson.
Selfossllðlð
í nýjum búnlngum
Selfoui.
SELFOSSLIÐIÐ í knattspyrnu
mun klæðast nýjum búnlngum
næsta keppnistfmabil. Knatt-
spyrnudeildin gerði tveggja ára
auglýsingasamning við verslun-
ina Hornið á Selfossi um auglýs-
ingar á búningana.
Aðalbúningurinn er vínrauður
með hvítum röndum á öxlum og
varabúningurinn hvítur með
vínrauðum röndum á öxlum. Bún-
ingarmr
Henson.
eru framleiddir hjá
Sig.Jóns.
gengur en hann er þeirra aðalmað-
ur. Klinsmann sagði í gær að
leikmenn Stuttgart ættu góðar
minningar frá Schalke frá því í fyrra
og ætluðu að halda þeim við.
Lið Stuttgart hefur ekki leikið
fallega knattspyrnu að undanförnu
en engu að síður mjög árang-
ursríka.
Steinar
gerði 6
Frá Bjama Jóhannssyni f Noregi.
STEINAR Birgisson varð marka-
hæstur í liði Kristjansand þegar
þeir unnu Stavanger í öðrum leik
undnaúrslitanna um norska
meistaratitilinn í handknattleik á
fimmtudaginn.
Steinar skoraði sex mörk í leikn-
um sem Kristjansand vann 21:16
og því þurfa liðin að leika þriðja
sinni um helgina til að fá úr því
skorið hvort þeirra leikur úrslita-
leikinn.
í hinum undanúrslitaleiknum
áttust við Urædd og Bækkelaget
og sigraði það síðar nefnda með
30 mörkum gegn 28 og leika liðinn
þriöja leikinn um helgina um sæti
í úrslitum.
Jón
japanskt met
JÓN Páll Sigmarsson, handhafi
titilsins „sterkasti maður heims“
skaut sterkustu mönnum Japans
ref fyrir rass þegar hann sigraði
í borðburði, hefðbundinni jap-
anskri íþrótt um aldaraðir. Jón
Páll bar borð með rísköku sem
vóg 236 kíló eina 30 metra, en
næstur honum kom hollending-
urinn Abe Woiders, sem komst
10 metra og þriðji var bretinn
Geoff Capes. Þeir þrír tóku í
vikunni þátt í aflraunamóti í Jap-
an, þar sem heimamenn tefldu
fram sínum sterkustu köppum
og buðu sterkustu mönnum vest-
urlanda til keppni.
Borðburðurinn dugði þó Jóni
Páli ekki til sigurs í mótinu, sem
nú var haldið í fyrsta sinn á vegum
Fuji fyrirtækisins. Sigurvegarinn
var Geoff Capes, en hann var en-
fremur fenginn af Japönunum til
að skipuleggja mótið og ráðleggja
um keppnisgreinar. Var m.a. keppt
í kasti með þunga hluti, bílveltum
og grein þar sem tveir menn ýta
hver á annan með digrum bambus-
bol. Kom frammistaða Jóns Páls á
óvart í þeirri grein, þar sem líkams-
þyngdin skiptir miklu máli og Jón
Páll var með léttustu keppendum.
Hann vegur 120 kíló, eða um 50
kílóum minna en þeir þyngstu.
Þyngd hans og líkamsstærð kom
hins vegar að góðum notum í fyrr-
nefndum borðburði, þar sem Jón
Páll átti í litlum erfíðleikum með
að ná góðu taki. Segir sagan að
Japanir hafi þar með misst lands-
metið í þessari aldagömlu íþrótta-
grein í hendur íslendingsins.
Mótið stóð yfir í tvo daga, þann
fyrri rétt fyrir utan Tókíó og þann
síðari þar í borginni. Ráðgera Jap-
anir að halda samskonar mót árlega
héðan í frá, jafnvel oftar á ári en
einu sinni. Jón Páll er væntanlegur
heim í næstu viku, en hann er þessa
dagana að undirbúa sig fyrir Há-
landaleikana í Skotlandi, sem
heíjast í maí.
Meistaramótið nálgast
MEISTARAMÓT íslands f bad- greinum karla og kvenna, ef næg
minton verður haldið í Laugar- þátttaka verður, en þátttökutil-
dalshöll 4.-5. apríl. keppt verður kynningar skulu berast BSÍ fyrir
f meistaraflokki, a-flokki, öðlinga- þriðjudaginn 31. mars.
flokki og æðsta flokki f öllum