Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 4
I
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
310 milljón kr.
saltfiskfarmur
HIÐ nýja saltfiskflutningaskip
m.s. ísnes sigldi í gærkvöldi
áleiðis til Portúgal og Italíu með
verðmætasta saltfiskfarm, sem
héðan hefur farið.
Skipið lestaði 1600 tonn af salt-
fiski á höfnum allt frá Homafírði
norður um til Þorlákshafnar og er
verðmæti farmsins um 8 milljónir
dollara eða um 310 milljónir
íslenzkra króna.
Þetta er fyrsta farmur sem hið
nýja og glæsilega saltfískflutninga-
skip Neskips hf. flytur fyrir Sölu-
samband íslenskra fiskframleið-
enda.
Morgunblaðið/Sverrir
í gærdag skoðaði kínverska sendinefndin starfsemi Granda h.f. og á myndinni sést Brynjólfur Bjama-
son, forsljóri, sýna Zhu Xun og nefndinni hvemig þorskurinn er geymdur ísaður í kössum.
Kínversk sendinefnd í heimsókn:
Rætt um samsterf
á sviði orkumála
M.s. í
snes.
SENDINEFND frá Kínverska
alþýðulýðveldinu er nú stödd hér
á landi i boði iðnaðarráðherra.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofe Islands
(Byggt á veðurspá M. 16.15 í gær)
1/EÐURHORFUR I DAG, 04.06.87:
YFIRLIT á hádegi í gær: Grunnt lægðardrag yfir austanverðu
landinu þokast vestur. Yfir norðaustanverðu Grænlandi er 1027
millibara hæð.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt um mest allt land, kaldi eða stinn-
ingskaldi (5-6 vindstig) um norðvestanvert landið en gola í öðrum
landshlutum. Súld verður við norðurströndina en smáskúrir á víð
og dreif um suðvestanvert landið. Hiti á bilinu 4 til 8 stig norðan-
lands en 10 til 14 stig syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Fremur hæg breytileg átt,
skýjað með köflum en víðast þurrt. Hiti á bilinu 12 til 16 stig yfir
daginn inn til landsins en annars 5 til 8 stig.
X, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * #
* * * * Snjókoma
* * *
■j Q° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\J Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
Súld
•> ?
5
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐURVIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hiti 7 veður súld
Reykjavlk 11 skýjað
Bergen 12 hálfskýjað
Helsinki 14 skýjað
Jan Mayen 2 alskýjað
Kaupmannah. 12 skýjað
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk 4 alskýjað
Osló 15 skúr
Stokkhólmur 8 rigning
Þórshöfn 9 hálfskýjað
Algarve 25 heiðskírt
Amsterdam 15 alskýjað
Aþena 22 lóttskýjað
Barcelona 21 láttskýjað
Berlin 15 alskýjað
Chicago 18 skýjað
Feneyjar 21 þokumóða
Frankfurt 16 rignlng
Hamborg 11 þokumóða
Las Palmas 28 heiðskírt
London 17 skýjað
LosAngeles 15 mistur
Lúxemborg 14 skúr
Madríd 28 léttskýjað
Malaga 24 mistur
Mallorca 25 láttskýjað
Miami 27 skýjað
Montreai 20 skýjað
NewYork 16 súld
Parfs 19 skýjað
Róm 23 hálfskýjað
Vín 18 skýjað
Washington 22 þokumóða
Winnipeg 4 léttskýjað
Mun hún dvelja hér fram á mánu-
dag og eiga viðræður um
orkumál við opinbera aðila og
fulltrúa einkafyrirtækja um
möguleika á samstarfi íslenskra
og kínverskra aðila á þessu sviði.
Heimsókn þessarar sendinefnd-
ar, sem er undir forystu Zhu Xun,
ráðherra jarðfræði og jarðauðlinda,
er í framhaldi af heimsókn sendi-
nefndar iðnaðarráðuneytisins til
Kína fyrir tæpu ári, en sú sendi-
nefnd kynnti sér jarðhitamál í Tíbet
og Tjanjin. Þá var gert samkomulag
um að sendinefnd heimsækti ísland,
að fleiri kínverskir nemendur kæmu
til þjálfunar í Jarðhitaskóla S.Þ. og
að hingað kæmu kínverskir jarð-
hitavísindamenn til að kynna sér
íslenskar stofnanir. Þá gerði sam-
komulagið einnig ráð fyrir að
Islendingar tækju að sér sérstök
rannsóknarverkefni og áætlana-
gerð við jarðhitavirkjun í Kína.
Á þriðjudag áttu þeir Þorsteinn
Pálsson, iðnaðarráðherra, og Zhu
Xun formlegan fund með sér, og
segir í fréttatilkynningu frá ráðu-
neytinu að á fundinum hafi komið
fram gagnkvæmur vilji til þess að
auka samvinnu þjóðanna á sviði
jarðvísinda og jarðhitamála.
V estmannaeyjar:
Alitlegur kostur að
leigja svifnökkva til
reynslu í 5 mánuði
V estmannaeyj um.
NEFND sú er starfað hefur undanfarna mánuði og kannað mögu-
leika á að koma á samgöngum milli Eyja og lands með svifnökkva,
hefur skilað áliti. Telja nefndarmenn það álitlegan kost að leigja
slíkt skip næsta sumar til reynslu. Nefndarmenn eru sammála um
að miðað við þær forsendur sem kannanir og áætlanir nefndarinnar
gefa til kynna væri hægt að reka svifnökkva til fólksflutninga milli
Eyja og lands fimm mánuði ársins. í meðalárferði er eðlilegur starf-
rækslutími álitinn mánuðina frá maí og út september og á þessu
timabili er það álit nefndarmanna að treysta megi á 80-90 prósent
áætlunaröryggi.
Nefndin aflaði sér upplýsinga hjá
þremur framleiðendum svifnökkva,
Textron í Bandaríkjunum, Griffon
í Skotlandi og British Hovercraft í
Englandi. Tveir fyrrtöldu valkost-
imir voru fljótlega afskrifaðir en
athyglinni beint að A.P.N.-188-
nökkva frá British Hovercraft. Sá
nökkvi er aðeins útbúinn til far-
þegaflutninga og fóru nokkrir
nefnarmanna utan til Danmerkur
til þess að kynna sér nánar sams-
konar nökkva sem SAS-flugfélagið
starfrækir til farþegaflutninga milli
Kastrup-flugvallar og Malmö-hafn-
ar í Svíþjóð.
Slíkur gripur mun kosta milli 130
og 150 milljónir með öllum fylgi-
hlutum. Hann rúmar um 100
farþega og gengur 35 mflur á fullri
keyrslu. Tæki ferð með nökkvanum
stystu leið til lands um hálfa
klukkustund frá því hann er ræst-
ur.
í áætlunum nefndarinnar er
reiknað með að fastakostnaður við
leigu og rekstur slíks nökkva í fimm
mánuði verði rúmar 14 milljónir
króna og þar af er leigugjald rúmar
8 milljónir. Miðað við að fargjald
kosti 1.000 krónur þarf skipið að
flytja 19.500 farþega á tímabilinu
til að standa undir kostnaði. Reikn-
að er með að fara 24 ferðir á viku,
þtjár ferðir á dag virka daga en
upgí fímm ferðir á dag um helgar.
Á fundi með fréttamönnum í vik-
unni kom það fram að þorri
nefndarmanna leggur á það ríka
áherslu að Herjólfur hf. annist
rekstur nökkvans og samtvinni nýt-
ingu hans sem best við eigin
rekstur. Sögðu nefndarmenn. að
næsta skrefið í þessu máli væri að
fá fram viðhorf Heijólfs hf. til
málsins, en stjórn fyrirtækisins mun
fjalla um það innan tíðar. Einn
nefndarmanna, Pálmi Lórensson
veitingamaður, sagðist þess fullviss
að hver sem afstaða Heijólfs hf.
yrði þá væri öruggt að út í þennan
tilraunarekstur verði farið á næsta
ári, reksturinn væri það álitlegur
kostur.
í nefndinni áttu sæti: Pálmi Lór-
ensson, Páll Zóhóníasson, Páll
Helgason, Friðrik Már Sigurðsson,
Gunnlaugur Axelsson, Amaldur
Bjamason og Magnús Jónasson.
Töldu nefndarmenn að þessi nýstár-
legi samgöngumáti muni vekja
mikla og endumýjaða athygli á
Vestmannaeyjum sem ferðamanna-
stað og stuðla að mikilli fjölgun
ferðamanna. Þessi valkostur muni
því byggja rekstur sinn að verulegu
leyti á nýjum markaði sem ekki
mundi skila sér með hefðbundnum
samgönguháttum.
— hkj.