Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 29

Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987 29 500 tonn af kindakjöti og 600 tonn af nautakjöti hakkað í loðdýrafóður STJÓRN Framleiðnisjóðs land- búnaðarins hefur ákveðið að setja í loðdýrafóður það kjöt sem Framleiðnisjóður keypi af bænd- um síðastUðið haust vegna fækkunar á sauðfé landsmanna. Er þetta kjöt af um 25 þúsund kindum eða um 500 tonn. Reynt hefur verið að flytja þetta kjöt út, en ekki gengið. Framleiðni- sjóður tekur einnig þátt í því að setja allt að 600 tonn af gömlu nautakjöti í loðdýrafóður. Við samninga við bændur á síðasta ári skuldbatt Framleiðni- sjóður sig til að setja það kjöt sem til félli vegna niðurskurðarins ekki á almennan markað hér innanlands, til að skemma ekki fyrir sölu á dilkakjöti. Gerðar voru tilraunir til að selja kjötið víða um heim. Meðal annars var búið að gera samning við danska milligöngumenn um að selja það til Egyptalands. Einnig voru um tíma bundnar vonir við að hægt yrði að selja kjötið til Sov- étríkjanna. Þessar útflutningstil- raunir og aðrar runnu út í sandinn. í framhaldi af því ákvað stjóm Framleiðnisjóðs að selja kindakjötið í loðdýrafóður og standa samningar nú yfir um verð. Búist er við að um 5 krónur fáist fyrir hvert kíló. Sömu leið fara allt að 600 tonn af óseljanlegu nautakjöti sem slát- urleyfíshafar liggja með í birgðum. Nú eru 1.500—1.600 af nautgripa- kjöti til í landinu, sumt orðið nokkuð gamalt, en mikið féll til af kýrkjöti á árinu 1985 þegar kúabændur fækkuðu gripum vegna mjólkur- kvótans. Framleiðnisjóður, slátur- leyfíshafar og bændur hafa bundist samtökum um að taka 600 tonn af kjötinu út af markaðnum og setja í loðdýrafóður. Kostar það alls um 100 milljónir kr. Framleiðnisjóður leggur fram 50 milljónir, sláturleyf- ishafar um 12 milljónir og kosta flutning að fóðurstöð og 35—40 milljónir eru greiddar af kjamfóður- gjöldum bænda. Fóðurstöðvamar greiða 5 krónur fyrir hvert kíló. Ráðstefna um ferðamál á höfuð- borgarsvæðinu Atvinnumálanefnd Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu gengst fyrir ráðstefnu um ferðamál á höfuðborgar- svæðinu föstudaginn 5. júní nk. Á ráðstefnunni er fyrirhugað að ræða stöðu ferðamála á svæðinu, framtíðarmöguleika og drög að sameiginlegri stefnumörkun þeirra aðila sem tengjast þessum málum. Ráðstefnan, sem haldin verður að Hótel Loftleiðum, hefst kl. 13 með setningarávarpi Jónu Gróu Sig- urðardóttir, formanni atvinnumála- nefndar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðisins, og ávarpi Ólafs Steins Valdimarssonar ráðu- neytisstjóra í samgönguráðuneyt- inu. Ráðstefnustjórar verða þeir Heimir Pálsson, formaður bæjar- ráðs Kópavogs og Hilmar Guð- iaugsson, varaformaður SSH. Ætlar þú að mála úti eða inni? Málning og lökk o.f 1. Allir litir og áferðir á veggi, gólf, glugga, vinnuvélar og skip. Hitaþolinn lakkúði, margir litir. Blakkfernis. RYOEVDW — RYOVORN Málningaráhöld Rúllur, penslar, málningarbakkar og sköfur — og allt annað sem til þarf m.a. áltröppur og stigar, margar stærðir. Fyllingarefni - Kítti Polyfilla fyllingarefni og uppleysir. Linolin — Silicon — Seal one — Kítti. Fúavarnarefni margar gerðir. Ananaustum, Grandagaröi 2, sími 28855. Gódan daginn! ...þú mátt til með að prófa það!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.