Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987 Hún Margrét Borgarsdóttir fékk óuœnta launauppbót um mánaðamótin. Sextán þúsund krónur, skattfrjálsar. Það þekkja flestir söguna um hana Margréti Borgarsdóttur. Hún fór eft- ir ráðleggingum þeirra hjá Fjárfest- ingarfélaginu, sem aðstoðuðu hana við kaup á verðbréfum. Ráðgjafinn hennar áætlaði um síðustu áramót að hún fengi um 42.000 krónur á mánuði í verðtryggðar tekjur á næstu mánuðum. En hún Margrét fékk gott betur. Margrét fór eftir persónulegri ráð- gjöf þeirra hjá Fjárfestingarfélaginu. Hún á nú rúmlega fjórar milljónir bundnar í Tekjubréfum. Þau hafa skilað 17.7% ársvöxtum umfram verðtryggingu síðastliðna 3 mán- uði. Þess vegna fékk Margrét 58.000 krónur í mánaðarlaun fyrstu þrjá mánuði ársins. Það er 16.000 króna launauppbót. Fjárfestingarfélagið sendi Margréti launin sín alla leið til Spánar. Hún ætlar að búa þar í sumar. Margrét ? var hálfpartinn að vonast til þess að Haraldur, frændi hennar, kæmi í heimsókn í vikutíma eða svo. En Haraldur sem nú er farinn að klóra sér í skallanum, hefur ekki svarað bréfunum hennar. Hann sást síðast í biðröð fyrir framan ferðaskrifstofu um hánótt. TlL UMHUGSUNAR: 1. Huernig getur venjulegt fólk, sem ekki telur sig vera fjármálaspek- inga, ávaxtað fé sitt í tryggum verðbréfum? 2. Hvers vegna eru Tekjubréfin heppileg fyrir þá sem eru að komast á eftirlaunaaldur? 3. Hvaða fyrirtœki býður þér per- sónulega ráðgjöf í sambandi við sérfrœðilegt val á traustum verð- bréfum? Sendið rétt svar til Fjárfestingarfé- lagsins, Hafnarstrœti 7, Reykjavík, merkt Haraldur frœndi. Besta svarið i viku hverri, allan þennan mánuð fœr eintak af bók- inni góðu FJÁRMÁUN ÞÍN í verð- laun. <n> FJÁRFESTINGARFÉIACIÐ Hafnarstræti 7 101 Reykjavík O (91) 28566 Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir / okkar viskubrunni „íslenskum orðskviðum “ segir: „Af iangviðrum og lagaleysi mun land vort eyðast.“ Þetta eru viðvaranir byggðar á reynslu liðinna kynslóða. Ef ðvinur landsmanna var ekki illviðrið, þá var hann þeirra eigið laga- og agaleysi. Við lærum seint. Fiskur gæti þó læknað landlægan „sauðþráa" á meðan síðasti þorskur- inn hefur ekki verið fluttur út — í gámi. Þessum gullkomum er hér fylgt úr hlaði með megrandi en hjarta- styrkjandi fiskrétti: Fiskur hinna vandlátu 1 kg fískur 1—:l/2 tsk. salt 1 stór laukur saxaður 1 stórt hvítlauksrif pressað */2 græn paprika söxuð 1 matsk. steinselja 3 matsk. matarolía 1 dós tómatar niðursoðnir (1 lítil dós tómatsósa) */4 tsk. oregano V4 tsk. basil 1. Fiskurinn (ýsa eða hvaða þéttur hvítholda fiskur sem er) er flakaður og skorinn í 3 cm stóra bita. 2. Matarolían er hituð í pönnu og er saxaður laukurinn (minnst 1 bolli), pressað hvítlauksrif og niður- skorinn paprikan látin krauma í heitri feitinni þar til laukurinn hefur brúnast örlítið. 3. Léttbrúnaður laukurinn og grænmetið er sett í pott. Niðursoðn- um tómötum með safa er bætt í pottinn með grænmetinu ásamt tóm- atsósu, oregano, basil og salti (og pipar ef vill). Niðursoðnir tómatamir em losaðir í sundur með sleif og öllu síðan blandað vel saman. Lok er sett á pottinn og er grænmetið látið krauma í u.þ.b. 10 mínútur til að jafna bragðið. 4. Því næst em fískbitamir settir út í grænmetið og em þeir soðnir með því í 5—8 mínútur eða þar til fiskurinn er rétt soðinn í gegn. Hrærið ekki í pottinum á meðan físk- urinn er að sjóða, því hætta er á að fiskurinn losni í sundur. Hristið pott- inn fremur ef þörf er á að blanda grænmetið betur fískinum. Með þessum einfalda og létta físk- rétti er sérdeilis gott að hafa hvítlauksbrauð. Það má útbúa á ein- faldan hátt með því að smyija brauðsneiðar með smjörlíki eða smjöri og strá síðan yfír smjörið rausnarlega með hvítlauksdufti. Nota má aðferð sem þykir fínni en hún er að skera heilt brauð í sneiðar, en þó ekki nema að3/4. Bræddur er síðan */2 bolli af smjöri eða smjörlíki og pressuðu hvítlauks- rifí stóm er bætt út í feitina ásamt örlitlu salti og allt hrært vel saman. Brauðsneiðamar em síðan aðskildar lítillega og feitinni hellt jafnt yfír sneiðamar, þær em lagðar saman aftur. Yfír brauðið er settur ál- pappír og það hitað í ofni í 15—20 mín. eða þar til það hefur fengið léttbrúna skorpu. Setjið brauðið heitt á borðið og leyfið hveijum fjölskyldumeðlim að bijóta af því fyrir sig. Verð á hráefni lkg-ýsa .......... kr. 205,00 1 dós tómatar .. kr. 54,60 1 laukur ........ kr. 7,00 kr. 265,60 Metsölublaó á hverjum degi! Stj órnarfundur UMFÍ: Göngudag- urinnákveð- inn 21. júní Stykkishólml. Stjórnarfundur UMFÍ, Ung- mennafélags íslands, var haldinn í Stykkishólmi föstu- daginn 22._ og laugardaginn 23. maí. Á fundinum voru mættir 10 fulltrúar, þ.e. stjórn og varastjórn. Fundurinn var haldinn í grunnskólanum og er þetta í fyrsta sinni sem hann er á Snæfellsnesi. Mörg mál vom til umræðu og umfjöllunar, en aðalmálið var Landsmót UMFÍ, sem nú verður háð á Húsavík um miðjan júlí í sumar. Tók þetta mál og undir- búningur mikinn hluta fundarins, enda ekki langur tími til stefnu. Þá var rætt um Göngudag fjöl- skyldunnar, sem hefír verið árviss um langt skeið, en hann er til þess að örva unga sem gamla til hollrar hreyfíngar. Nú var ákveðið að hafa göngudaginn um allt land hinn 21. júní nk. Þá fór mikill tími í að ræða framtíðarmálefnin, þar á meðal um hús félagsins sem það hefír keypt á Öldugötu 14 í Reykjavík. Þar verður miðstöð starfseminn- ar og er þegar búið að gera húsið starfhæft. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að ungmennafélag- ar utan af landi geti dvalið í húsinu þegar þeir eiga erindi til Reykjavíkur. Er pláss fyrir allt að 50 næturgesti og er þjónusta þessi ókeygis fyrir félaga sam- bandsins. Ýms önnur mál, svo sem æskulýðsmál og menningar- mál, voru til umræðu. í lok fundarins þótti fundarmönnum tilvalið að bregða sér í sjóferð um eyjasund með skemmtiferða- bátnum Brimirnu og var það mikil uppbót á stranga fundar- setu. Formaður UMFÍ er Pálmi Gíslason, en í stjóm af hálfu HSH er Magndís Alexandersdóttir. — Árni FÆRIBANDA- MÓT0RAR • Lokaðir,olíu- kældir og sjálfsmyrj- andi • Vatnsþétting- IP 66 • Fyllsta gang- öryggi, lítið viðhald = HEÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.