Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 33
MoWjUNBLAÐIÐ, FIMMTODAGUR‘ 4. JUNÍ" 'í987 Fundur um launamál kvenna: Þarf kvenf ólk að auka sjálfstraust sitt á vinnumarkaðmum? Hring’iirinn gefur til sumar- dvalar- heimilisins í Reykjadal Á AÐALFUNDI Kvenfélagsins Hringsins þann 6. maí sl. var samþykkt að gefa Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra í Reykjavík peningagjöf að upphæð ein milljón króna. Fjárhæð þessi rennur til sum- ardvalarheimilis fyrir fötluð börn í Reykjadal í Mosfells- sveit, en þar er í undirbúningi að koma upp sundlaug og bað- aðstöðu fyrir börnin. FRAMKVÆMDANEFND um launamál kvenna hélt sl. þriðju- dag opin fund með formönnum stjórnmálaflokkanna og forystu- mönnum aðila vinnumarkaðarins undir yfirskriftinni „Launamun- ur kynja - hvað er til úrbóta“._ Fundarformið var með nokkru öðru sniði en menn eiga að venj- ast. Engar framsögur voru fluttar en í stað þess byijað beint á spurningum utan úr sal. Á fundinn mættu Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ, Gunnar Frið- riksson, formaður VSÍ, Kristján Thorlacius, formaður BSRB, Hjört- ur Eiríksson, Vinnumáladeild Sambandsins, Friðrik Sophusson, Sjálfstæðisflokki, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Borgaraflokki, Svavar Gestsson Alþýðubandalagi, Alexander Stefánsson, Framsókn- arflokki, Karl Steinar Guðnason, Alþýðuflokki og Þórhildur Þorleifs- dóttir, Kvennalista. Nokkrar umræður urðu á fundin- um um það hvort alvarlega hefði komið til tals að breyta hlutföllum yfirvinnuálags og dagvinnutaxta og einnig um afstöðu manna til lög- bindingu lægstu launa. Ásmundur Stefánsson sagðist persónulega vera þeirrar skoðunar að lækka ætti hlutfall yfirvinnu- álagsins en sagði að í verkalýðs- hreyfingunni væru uppi sterkar kröfur um að hækka álagið. Lög- bindingu lágmarkslauna sagði Ásmundur geta haft tilhneygingu til þess að taka aldrei enda, í stað þess yrði að byggja upp lægstu launin í samningum og benti á að kaupmáttur lægstu launa hefði hækkað um þriðjung í síðustu samningum. Kristján Thorlacius sagði það vera eina mestu meinsemdina í þjóðfélaginu í dag hvérsu hátt hlut- fall yfirvinnuálagið væri og það væri mikið kappsmál að hækka dagvinnulaun þannig að dregið yrði úr mikilvægi yfirvinnu fyrir launa- fólk. Kristján taldi óraunhæft að lögbinda lágmarkslaun þó æskilegt væri. Menn yrðu að fínna önnur ráð og benti hann á starfsmat. Ekki væri nóg að hækka bara lágmarks- laun heldur þyrfti einnig að hækka miðlungslaun. Margir kvenmenn í miðjum launastiganum byggju við það hörmuleg kjör að þær gætu ekki lifað af þeim. Há laun ætti aftur á móti að skerða með sköttum. Gunnar Friðriksson sagði vinnu- veitendur vera þeirrar skoðunar að álagið ætti að vera það lítið að ekki væri mikill hvati til yfirvinnu. Það hefði sýnt sig að yfirvinna yki ekki afköst í svo miklu mæii. Gunn- ar sagðist ekki vilja viðurkenna það að atvinnurekendur mismunuðu starfsmönnum vegna kynferðis. Aftur á móti teldi hann að karl- menn sæktu oft fastar fram en kvenmenn, þeir væru metnaðar- gjarnari og hefðu meira sjálf- straust. Kannski væri það helst sjálfstraustið sem konur þyrftu að byggja upp. Friðrik Sophusson sagði að í þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem nú væru í gangj væri lögð áhersla á það, að til þess að hægt væri að ná fram breytingum á hlutföllum hæstu og lægstu launa þyrfti að ríkja sæmilegt jafnvægi í þjóðfélag- inu. Til þess að ná þessu markmiði mætti í fyrsta lagi gera það að kröfu ríkisins í næstu samningum að tiltekinn hluti hækkunar launa færi til þess að lækka tekjulægstu hópanna. í öðru lagi ætti að stytta raunverulegan vinnutíma, m.a. með því að auka framleiðni og í þriðja lagi mætti endurskoða ýmsar til- færslur í samneyslunni og sjá til þess að aukinn hluti þeirra færi til hinna verst settu. Ymislegt hefði þó verið gert að undanfömu til þess að minnka hlutfall hæstu og lægstu launa, sagði Friðrik, og nefndi í því sambandi síðustu kjarasamninga. Kristján Thorlacius sagði það ekki vera lausn að leysa vandamál hluta starfsmanna en skilja hina eftir. Því væri ekki hægt að fallast á það, að í næstu samningum yrði áherslan lögð á þá lægst launuðu. Alexander Stefánsson sagði það vera skoðun Framsóknarflokksins að samningar ættu að vera í hönd- um aðila vinnumarkaðarins og því varasamt áð lögbinda lægstu laun- in. Launamunur væri þó of mikill og gera yrði ráðstafanir til þess að Á fundinn mættu fulltrúar aðila vinnumarkaðarins og stjórnmála- flokka. Talið frá vinstri: Friðrik Sopuhusson, Svavar Gestsson, Hjörtur Eiríksson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Gunnar Friðriksson, Karl Steinar Guðnason, Alexander Stefánsson, Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir og Ásmundur Stefánsson. Morgunblaðið/Bjami All góð mæting var á fundinum um launamál kvenna sem haldinn var i Sóknarhúsinu við Skipholt. í ræðustól er Lára V. Júlíusdóttir. minnka hann. Ríkisvaldið ætti að ganga á undan og gera þetta að meginmáli. Svavar Gestsson sagðist ekki hafa séð neina leið sem gerði það að verkum að hækkun lægstu launa með lögbindingu yrði einungis hækkun lægstu launa, án þess að fara út um allt þjóðfélagið, valda verðbólgu, og eyðileggja þannig allan ávinning fyrir þá lægstlaun- uðu. Svavar vildi í stað lögbindingar styðjast við tryggingaratriði þess efnis, að laun mættu ekki fara yfir visst stig, víðtækar félagslegar að- gerðir og styttingu vinnutíma. Karl Steinar Guðnason sagðist beinlínis vera andsnúinn lögbind- ingu. Reynsla hans sýndi að þeir lægstlaunuðu sætu alltaf eftir. Kon- ur sagði hann þurfa að þrýsta á sjálfar í ríkara mæli, pólítískur vilji væri það sem skipti öllu máli. Al- þýðuflokksmenn sagði hann vilja stofna sérstakt tímabundið ráðu- neyti sem myndi sérhæfa sig í launamálum kvenna. Þórhildur Þorleifsdóttir sagði Kvennalistann ekki kunna nein töfraráð til þess að hindra að lögbinding lægstu laun færi upp allan launastigann, en nauðsynlegt væri að reka mikinn áróður fyrir slíkum aðgerðum og reyna að fá sem víðtækastan stuðn- ing allrar þjóðarinnar. VMMRM9TI 'l/ítfavi Laugavegi 45 - Sími 11388 Ný frábær sending af fatnaði fyrir hvítasunnuna komin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.