Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
59
Morgunblaðið/HSH
Verið er að byggja þriðja áfanga við nýtt hótel á Kirkjubæjarklaustri. Hótelið er byggt í einingum.
Kirkjubæjarklaustur:
Aukið hótelrými með viðbyggingu við Hótel Bæ
Kirkjubæjarklaustri.
NÚ STENDUR yfir viðbygging
við Hótel Bæ á Kirkjubæjar-
klaustri. Þar er um að ræða
þriðja áfanga við nýtt hótel sem
byggt er í einingum. Fyrir voru
tvö hús með samtals 22 herbergj-
um en það sem nú er í byggingu
verður með 14 2ja manna her-
bergjum, og verður tekið í
notkun 1. júlí.
Síðan er fyrirhugað að tengja
húsin þijú saman með byggingu á
tveim hæðum, þar sem verður mat-
salur, eldhús setustofá og væntan-
lega ráðstefnusalur á efri hæð. Sú
bygging mun leysa af hólmi gamla
hótelið á Klaustri sem er í eigu
sömu aðila.
Það er Ferðaskrifstofa ríkisins
sem hefur hótelreksturinn með
höndum allt árið. Yfir sumarímann
er grunnskólinn á Klaustri líka tek-
inn undir reksturinn og verður
hótelið með u.þ.b. 70 tveggja
manna herbergi í leigu.
Að sögn Margrétar Isleifsdóttur
hótelstjóra er að venju, nú þegar
mjög mikið bókað mánuðina júlí og
ágúst.
HSH
39 leiðsögumenn útskrifaðir
LEIÐSÖGUSKÓLA Ferðamála-
ráðs var slitið 22. maí sl. og voru
þá 39 nýir leiðsögumenn útskrif-
aðir. Birgir Þorgilsson, ferða-
málastjóri, afhenti þeim
prófskírteini og óskaði þeim vel-
farnaðar í starfi. Forstöðumaður
Leiðsöguskólans, Birna G. Bjarn-
leifsdóttir, þakkaði Ieiðsögunem-
unum gott samstarf á
námstímanum.
Leiðsöguskólinn var að þessu
sinni til húsa í Menntaskólanum í
Kópavogi, en þar er þegar hafin
kennsla á ferðamálabraut auk þess
sem skólinn efndi til námskeiða
fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu í vor.
Sl. sumar komu fleiri erlendir
ferðamenn til íslands en nokkru
sinni áður og varð skortur á þjálfuð-
um leiðsögumönnum til að kynna
erlendum gestum okkar Island. Nú
þegar 39 nýir leiðsögumenn bætast
í hóp þeirra sem fyrir eru í starfi
er þess vænst að ekki verði skortur
á leiðsögumönnum á þessu sumri,
þótt búist sé við enn auknum fjölda
erlendra ferðamanna til landsins.
Hópferðabíllinn er vinnustaður leiðsögumanna. Hér eru nokkrir af
leiðsögunemunum að leggja upp í prófferð i mai sl.
EFÞÚ
VIIIVERA
VISS...
Þú hefur tvær megin ástæöur
til þess að koma við í Lands-
bankanum áður en þú ferð til
útlanda.
Sú fyrri er
Gjaldeyrísþjónusta
Landsbankans
Á yfir 40 stöðum á landinu
afgreiðum við gjaldmiðla allra
helstu viðskiptalanda okkar í
seðlum, ferðatékkum og ávís-
unum. Auk algengustu teg-
unda, s.s. dollara, punda og
marka, selur Landsbankinn
t.d. hollenskarflórínur, portú-
galska escudos, ítalskar lírur
og svissneska franka í ferða-
tékkum.
Með því að kaupa gjaldeyri
þess lands sem ferðast á til,
sparast óþarfa kostnaður og
fyrirhöfn.
Síðari ástæðan fyrirheimsókn
íLandsbankann er
SJÓVÁ jHl íslands
tryggt ER vel TRYGGT Banki allra landsmanna
Ferðatrygging Sjóvá:
Mörg óhöpp geta hent á
ferðalögum, ferðatrygging
Sjóvá ersvarið. Hún innifelur:
- Ferðaslysatryggingu,
- Ferðasjúkratryggingu,
- Ferðarofstryggingu,
- Farangurstryggingu,
- SOS-neyðarþjónustu.
Ferðatrygging Sjóvá er því
einföld og örugg.
Gjaldeyrir úr Landsbankanum
- ferðatrygging frá Sjóvá, -
eftir það getur þú verið viss.
o&q
:un
.1Uct liV^I iíiiiii Dii iiiiiiii iiVáV
.mubiiöd
l£Jíi
ma