Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
Brynja Benediktsdóttir leikstjóri, Hjálmar H Ragnarsson tónskáld og Siguijón Jóhannsson leikmyndateiknari.
Sigurjón Jóhannsson, leikmyndateiknari:
Lít á starfið sem
myndlistarvinnu
dag á öllum þorrablótum, í átthaga-
veislum, árshátíðum og skóla-
skemmtunum. Hvað er grínið með
karlþjóðina í kvenfotum, klæðskipti
karlanna hlægilegu, átið, drykkjan
og ofbeldið í lokin, annað en upp-
suða og leifar af Þrymskviðunni
gömlu?
„Ekkert er nýtt undir sólinni,"
svo ég tali nú í orðskviðum eins og
Þrymur í leikritinu. Hversvegna
ætti fólkið hér áður fyrr að hafa
skemmt sér, hugsað og hagað sér
öðruvísi en við í dag? Nei, eflaust
hefur lítið breyst, nema þá helst
að við höfum tapað hæfileikanum
til að skilja táknmál hugmynda-
fræðinnar um hið mannlega eðli.
Jú, reyndar hefur það þróast í sjón-
varpsauglýsingum, en það táknmál
skynjum við ómeðvitað."
Aðverðina máttu kalla gleðileikj-
astíl, ærslafengna og grófa, ég nota
gömul og ný leikbrögð, jafnvel sirk-
usnúmer, alþýðumúsík og anakrón-
isma. En það er fleira á ferðinni,
svo sem þegar ég læt Þrym birtast
með tvö höfuð og Freyju stækka í
reiði sinni. Það er reynt að kallast
á við fortíðina eins og textinn býður
upp á, skrefið er jafnvel gengið til
fulls með því að fá inn sjálfa Þryms-
kviðuna á nokkrum stöðum.
Ég reyni að minna á eitt og ann-
að, svo sem netið hans Loka,
viðskipti hans við stóðhest borgar-
smiðsins og fleira og fleira, tæpa á
ýmsu til að vekja forvitni og vanga-
veltur áhorfandans og ekki síst
minna á táknin öll, hinar persónu-
gerðu hugmyndir: Freyju sem
kvenímynd, ekki bara ásatníar
manna, heldur líka okkar, Loka
með hin mörgu andlit slægðarinn-
ar. Hann bregður sér í laxalíki til
að sleppa, hvað gerir hann í dag?
Hann er kafbátur í orðsins fyllstu
merkingu. Svo er það búrinn Þrym-
ur sem syngur um gullið sitt í þessu
leikriti en snyrtir húsdýrin í Þryms-
kviðunni. Við skulum sleppa Þór.
Það er svo augljóst fyrir hvað hann
stendur. Annars vona ég að sýning-
in skýri sig sjálf. Mér er nóg að
hún veki hlátur og gleði og umfram
allt forvitni. Svörin finna áhorfend-
ur annars staðar."
A M—hátíðinni verða tvær sýn-
ingar á „Hamrinum." Síðan verður
hlé á sýningum til 19. júní. Þá hefst
leikför Þjóðleikhússins með sýningu
i Bolungarvík. Sðan verða sýningar
á Flateyri, Þingeyri, Bíldudal, Pat-
reksfirði, Króksfjarðamesi, Búðard-
al, Stykkishólmi, Grundarfirði,
Hellissandi, Borgamesi og Akra-
nesi.
„FYRIR réttum 20 árum datt ég
inn í leikhúsið frá maleríinu og
hef síðan gert um 60 leikmyndir.
En nú fer að verða mál að hætta
því og taka upp þráðinn þar sem
frá var horfið,“ sagði Siguijón
Jóhannsson, leikmyndateiknari, í
stuttu spjalli sem ég átti við hann
vegna frumsýningar á „Hvar er
hamarinn," eftir Njörð P.
Njarðvík. Leikmynd „Hamarsins"
er þriðja leikmyndin sem Siguijón
gerir fyrir Þjóðleikhúsið í vetur.
Sú fyrsta var „Uppreisn á
ísafirði" og eftir þriggja mánaða
frí frá leikhúsinu, hin margróm-
aða leikmynd „Yermu.“ En hvað
gerir leikmyndateiknari í þriggja
mánaða fríi frá leikhúsinu?
Ég var, og er, að mála það sem
ég átti ómálað. Það er vonandi byij-
un á sýningu. Ég stefni að því að
geta sýnt fljótlega á næsta ári. Það
má eiginlega segja að ég sé að taka
upp þráðinn þar sem frá var horfíð
fyrir 20 árum. Ég vil þó ekki meina
að ég hafi hætt í myndlistinni, því
ég lít á starf mitt í leikhúsinu sem
myndlistarvinnu. “
Ætlarðu þá að hætta að starfa
sem leikmyndateiknari?
„Nei. Ég hlýt að halda áfram að
starfa við leikhús, en minnka það
og fara að sinna sjálfum mér. Maður
verður nefnilega þræll leikhússtarfs-
ins ef maður lendir í því. Það er allt
eða ekkert ef maður ætlar að ná
árangri."
Nú er það stundum svo að þegar
maður kemur í leikhús, fínnst manni
ekki vera nein leikmynd, heldur bara
samansafn af dóti á sviðinu. Er þá
hægt að tala um leikmyndahönnun?
„Vissulega. Maður beitir mjög
mismunandi aðferðum við hönnun
leikmynda, því leiksýningu verður
að gefa form, eins og skúlptúr. Efn-
ið sem maður notar hverju sinni
helgast af þeirri aðferð sem maður
velur. Hver sýning verður að hafa
sína lögun og form.
Ef við tökum, sem dæmi, „Upp-
reisn á Ísafírði," þá er götuvígið
lykillinn að þeirri leikmynd. Það kall-
ar á þann samtíning sem götuvirki
er búið til úr. Hinsvegar er umgjörð-
in um „Yermu" „konstrueruð" og
ströng og hörð til þess að undristrika
klassíska byggingu þeirrar sýningar.
Þessi sýning, „Hamarinn," er
gamanmál og tekið slíkum tökum
og dregið mjög skýrum línum með
megináherslu á búninga, eins konar
„karikatúr." Þetta er fyrst og fremst
mjög léttbyggð leikmynd og auðveld
í flutningum, því sýningunni er frem-
ur ætlað að ferðast um, en eiga sér
fast aðsetur."
Hvað með litaval?
„Það er með liti eins og annað,
að maður velur sér yfirleitt einhvern
skala eða höfuðlit sem maður gengur
út frá og tónar svo eftir honum. Svo
brýtur maður það allt, eins og núna
í „Hamrinum," þar sem ég nota fána-
liti við svartan grunn, afþví mér
finnst það eiga við. Maður verður
sparsamari á litina með árunum
vegna þess að þá eru hlutimir miklu
skýrari og ákveðnari. Miklir litir
rugla vegna þess að með litum sem
maður velur sér, ætlar maður að
egja eitthvað. Þeir eru engin tilviljun.
í „Hamrinum" nota ég þennan
svargráa bakgrunn á móti hvítu,
rauðu og bláu, fánalitunum. Ætli það
sé ekki til að vera þjóðlegur. Þetta
er jú menningararfleifðin sem við
erum að fást við.“
ssv
UÓSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
OSRAM
bflperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Eigum fyrirliggjandi
Ijósastillingatæki
[1] JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF.
Sundaborg 13, sími 688588.
HONDA CIVIC SHUTTLE 4 WD REAL TIME
Bylting í gerð aldrifsbíla
Velur sjálfvirkt hvenær
þörf eráframhjóla-
.afturhjóla- eða aldrifi.
Kynnist þessumfrá-
bæru eiginleikum.
Honda, merki
hinnavandiátu.
Verð kr.
587.500.-
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24 S.689900