Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
V estur-Þýskaland:
Mútaði Tyrlga til að
gegna herþjónustu
Stuttgart, frá Ragnari Gunnarssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
26 ára g-amall kaupmaður hefur
verið dæmdur í eins og hálfs árs
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa mútað Tyrkja einum til að
gegna herþjónustu fyrir sig.
Tyrkinn, sem er hvorki skrifandi
né læs á þýska tungu, hafði gegnt
skyldustörfum i 52 daga áður en
upp komst um kauða.
Kaupmaðurinn rekur knæpur og
vörumarkaði í Hannower og gat
ekki hugsað sér að gegna herskyldu
fyrir 300 mörk á mánuði og láta
viðskiptin reka á reiðanum. Þess
vegna mútaði hann Tyrkjanum
Karmal til að gegna herþjónustu
Mikil áfengisnotk-
un veldur áhyggjum
Kaupmannahöfn, frá Niels Jörgen Bruun,
ÁFENGISDRYKKJA er vandamál
hjá mjög mörgum framámönnum
í dönsku atvinnulífi, að sögn Eig-
ils Jensen, forstöðumanns göngu-
deildar fyrir áfengissjúklinga.
Hann segir að 35-50 snapsar á
dag sé ekki óalgengur dagskammtur
hjá þessum hópi manna. Svo mikil
drykkja getur verið banvæn og eng-
inn þolir hana til lengdar.
Algengasta dánarorsök miðaldra
danskra karlmanna er of mikil
Gengi
gjaldmiðla
London. Rewuter.
GENGI bandaríkjadollars lækk-
aði enn gagnvart öllum helstu
gjaldmiðlum á gjaldeyrismörk-
uðum Evrópu i gær. Verð á gulli
hækkaði.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,6405 dollara, en annars
var gengi dollarans þannig að fyrir
hann fengust:
1,3440 kanadískir dollarar,
1,8045 vestur-þýsk mörk,
2,0335 hollensk gyllini,
1,4900 svissneskir frankar,
37,39 belgískir frankar,
6,0275 franskir frankar,
1303,00 ítalskar lírur,
142,80 japönsk jen,
6,2950 sænskar krónur,
6,6925 norskar krónur,
6,7925 danskar krónur.
Gullúnsan kostaði 453,10 doll-
ara.
fréttaritara Morgunblaðsins.
áfengisnotkun. En þeir reykja líka
of mikið. Mörg dönsk líftrygginga-
fyrirtæki hafa uppi áætlanir um að
bjóða þeim sem ekki reykja afslátt
af iðgjöldum. Slíkt fyrirkomulag
þekkist nú þegar í Bandaríkjunum.
Farangurs-
þjófar
handteknir
London, Reuter.
SAUTJÁN farangurs-
hleðslumenn hjá British
Airways á Heathrow-
flugvelli voru handtekn-
ir á þriðjudag.
í síðustu viku voru tutt-
ugu þrír starfsmenn gripnir
og segir lögreglan, að um-
fangsmikil rannsókn standi
yfir á atferli starfsmann-
anna. Þeir eru allir grunaðir
um að stela farangri í stór-
um stíl. í sumu tilvikum er
talið, að þeir hafi tekið úr
töskum, en grunsamlega oft
hafa töskur einnig horfið,
eins og þær lögðu sig og
ekki komið fram þrátt fyrir
ítarlega leit.
fyrir sig. í október 1986 mætti
Tyrkinn á aðaljárnbrautarstöðina í
Hannower og sýndi þar kvaðningar-
pappíra kaupmannsins. Á jám-
brautarstöðinni tók enginn eftir því
að Karmal var Tyrki og gjörólíkur
kaupmanninum í útliti. Karmal var
sendur til Baumholder þar sem
hann var settur í þýskan einkennis-
búning og látinn hefja nám í skóla
vestur-þýska stórskotaliðsins. Þar
þótti engum undarlegt að þessi
þýski hermaður gat hvorki talað
né skrifað þjóðtungu sína. Yfírmað-
ur hans hélt að hann væri landflótta
Pólverji af þýskum ættum. Þannig
gekk þetta í 52 daga og Tyrkinn
Karmal fékk rúmlega 600 mörk í
laun frá hernum. Það var ekki fyrr
en honum var skipað að keyra vöru-
bíl að upp komst um svikin. Honum
var öldungis fyrirmunað að keyra
ökutækið enda hafði hann aldrei
tekið bílpróf. Það hafði kaupmaður-
inn hins vegar gert samkvæmt
fyrirliggjandi vottorðum og pappír-
um.
MAD, þýska leyniþjónustan, var
kvödd til og stuttu seinna bönkuðu
herlögreglu menn á dyr hjá kaup-
manninum, sem neitaði að kannast
nokkuð við málið. Tyrkjans er hins
vegar enn leitað. Hann hvarf frá
herstöðinni er upp um hann komst
og hefur ekki sést síðan.
Reuter.
Eldur í olíustöð
Mörg hundruð slökkviliðsmönnum tókst síðdegis í gær að slökkva eld
í olíubirgðastöð Shell-fyrirtækisins, skammt frá Lyon í Frakklandi.
Höfðu þeir þá barist við eldinn í einn sólarhring, en hann kviknaði
eftir að sprenging varð í stöðinni í fyrradag. Ekki er talið að um
skemmdarverk hafi verið að ræða. 16 manns slösuðust í brunanum,
tveggja starfsmanna stöðvarinnar er saknað og er óttast að þeir
hafi látið lífíð. Mannfjöldi fylgdist með slökkvistarfinu og sjáum við
á þessari mjmd hóp manna er safnaðist saman í öruggri fjariægð
frá stöðinni og fylgdist í sjónaukum með því sem fram fór.
Sovétríkin:
Yfirvöld ættu að
leyfa atvinniileysi
- segir sovéskur rithöfundur
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKIR embættismenn, sem
áratugum saman hafa haldið þvi
fram að trygg atvinna handa öll-
um sé æðsta dyggð kommúnisma,
ættu að íhuga að leyfa atvinnu-
leysi, að því er sagði í bók-
menntatimaritinu Novy Mir á
þriðjudag.
Rithöfundurinn Nikolai Shmelev
segir í grein sinni að lítil afköst
sinnulausra verkamanna standi
sovéskum efnahag fyrir þrifum.
„Lokum ekki augum fyrir því tjóni,
sem efnahagslífíð bíður af trú okk-
ar á trygga atvinnu ... Það væri
gott lyf gegn leti, drykkjuskap og
ábyrgðarleysi, ef menn ættu á
hættu að missa störf sín og þyrftu
að þiggja atvinnuleysisbætur um
stundar sakir," skrifaði Shmelev.
Einkennilegt dómsmál í Astralíu:
Móðir náðuð eftir
þríggja ára fangelsi
Var talin hafa myrt barn sitt
Darwin, Ástralíu, Reuter.
LINDY Chamberlain, sem
dæmd var í lífstíðarfangelsi
fyrir að myrða níu vikna gamla
dóttur sína, var náðuð á þriðju-
dag. Líkur eru taldar á því að
barnið hafi ekki verið myrt
heldur hrifsað burt af villi-
hundi, þegar fjölskyldan var í
útilegu, eins og móðirin hefur
alltaf haldið fram.
Bamið hvarf þegar fjölskyldan
var í útilegu við Ayers Rock fyrir
sjö árum. Móðirin hélt því fram
að „dingo“, en svo nefnast ástral-
skir villihundar, hefði hrifsað
stúlkuna og dregið hana út í skóg.
Lík hennar fannst aldrei en í byij-
un síðasta árs var móðirin látin
laus og rannsóknamefnd skipuð
í málinu eftir að úlpa sem stúlkan
var í þegar hún hvarf, fannst rif-
in og tætt í nágrenni Ayers Rock.
Niðurstöður rannsóknamefndar-
innar vom þær að móðirin hefði
aldrei verið sakfelld ef öll gögn í
málinu hefðu verið komin fram,
Lindy Chamberlain er þó ekki
ánægð með þessi málalok þar sem
ásakanimar um að hún hafí drep-
ið bamið standa enn. Hún er
staðráðin í að gera allt sem í henn-
ar valdi stendur til að hreinsa
nafn sitt. Líklegt er að henni verði
greiddar háar skaðabætur vegna
málskostnaðar og andlegra þján-
inga.
Reuter
Lindy Chamberlain með eiginmanni sínum. Myndin var tekin í
Sydney í Ástralíu fyrr á þessu ári.
„Ýmsir sérfræðingar telja að
ódýrara væri að greiða mönnum
atvinnuleysisbætur um stundar
sakir en að halda fjölda manns, sem
ekkert gerir, í vinnu,“ sagði í grein-
inni.
„Um þessar mundir einkennist
efnahagur okkar af skorti. Hann
er að öllu leyti í ójafnvægi og lætur
ekki að stjórn. í hreinskilni sagt er
ógemingur að koma þar á skipulagi
og framfarir í nýjustu tækni og
vísindum hafa engin áhrif á efna-
haginn.
Miðað við iðnríki heims er fram-
leiðni óvíða minni en í Sovétríkjun-
um og á það sérstaklega við um
landbúnað og byggingafram-
kvæmdir. Stöðnun hefur ríkt ámm
saman og á þeim tíma hafa verka-
menn misst nánast allan áhuga á
að gegna störfum sínum af sam-
viskusemi og heiðarleika."
Shmelev fer hæðnislegum orðum
um þá hefð sovéskra fjölmiðla að
lofsyngja verkamenn fyrir að vinna
glæsileg afrek í starfí: „Tími er
kominn til að við glötum hugmynda-
fræðilegum meydómi okkar — hann
hefur hvort sem er aldrei verið til
nema í þjóðsagnakenndum Ieiður-
um dagblaða. Fólk mun fremur
rupla og ræna í skjóli þessa blekk-
ingarvefs, en væri honum svift
brott."
Shmelev skrifaði einnig að frá-
leitt væri að kaupa kjöt og brauð
dýrum dómum erlendis, en heima
fýrir væri frumkvæði milljóna borg-
ara kæft í fæðingu.
Opinberlega er því haldið fram í
Sovétríkjunum að atvinnuleysi hafi
verið bægt frá fyrir fullt og allt á
Qórða áratug þessarar aldar. í grein
Shmelevs segir að tveir af hundraði
vinnufærra manna séu atvinnulaus-
ir, en þrír af hundraði sé einnig
gert ráð fyrir flökkurum.