Morgunblaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 17
Y8ei tnúi .ei jiuoA.auTsö'í .aiQAjanuoflOM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1987 Morgunblaðið/Einar Falur Ásgeir við mynd sína Tarzan, sem snúa má við til að fá mynd a Jane stofu þar. Hinsvegar var það misskilið af einum kannara og hann beitti sér fyrir því að ég fór þaðan út, sömu leið og ég hafði komið inn. Ég var rekinn þaðan í síðasta skiptið. Brottrekstrarskrá mín er sú stærsta og tilkomumesta í sögu skólans. Nú er ég hér í Hlaðvarpan- um, Undir pilsfaldinum, laus við alla yfirboðara.“ Honum hefur kannski fundist ég mjór Ásgeir hefur haldið fímm einka- sýningar hér á landi. „Fyrsta einkasýningin sem ég hélt var und- ið dulnefninu „DR.ULLA." Það voru köku— og brauðskúlptúrar, sem ég sýndi á veitingahúsinu „Á næstu grösum," sem var við Lauga- veg. Þar fékk ég líka opinbera gagnrýni á verk mín í fyrsta skipti. Hún var alveg stórgóð. Það hafði komist á kreik að hér væri á ferð- inni heimsfræg, bandarísk lista- kona, sem stundaði svona list." Eftir þessa frumraun hélt Ásgeir sýningu í „Gallerí djúpið," við Hafn- arstræti, síðan tvær sýningar í Ásmundarsal og síðastliðið sumar hélt hann sýningu í myndlistarsal Hlaðvarpans. Hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum hér heima, til dæmis í „Galleríi Guðmundar rammaskalla" við Bergstaðastræti, sem Ásgeir segir að hafí verið aðsetur margra þekktra listamanna, en nú hafí húsið verið rifíð. „Ég sýndi líka í Þýskalandi í „Gallerí Hohmann." Hohmann var ákaflega listelskur maður sem keypti af mér myndir. Eitt sinn um jól, bjó ég í Stuttgart, og þá fékk ég frá honum peningasendingu. Honum hefur fundist ég vera mjór.“ Þegar þú hélst sýningu í fyrra, sagði einn gangrýnandinn að hana skorti heildarsvip. Hvemig skil- greinir þú sjálfan þig? „Fyrst og fremst skilgreini ég mig sem listamann. Það er eigin- lega allt. Þar af leiðandi er ég svolítið óstöðugur, því ég vil alltaf vera að bylta efninu og breyta til. Einhvers konar óstöðugur umbreyt- ingarsinni með íhaldssömu ívafí, „uniker," og þoli ekki fjöldafram- leiðslu. Ég staðset mig á morgunn. Ef þú ert að spyija um bylgjur og isma, þá er það mín skoðun að það séu hugtök fyrir gangrýnendur þeg- ar þeir skrifa um sýningar. Þó eru til menn sem hafa sterk áhrif og hafa mótað þessar bylgjur og fram- hjá þeim verður aldrei horft." Fólk verður að læra að klæða sig eftir veðri Margir ungir myndlistarmenn hafa flúið til útlanda til að geta lif- að af list sinni. Þú ert einn af fáum sem hafa flúið heim. Geturðu lifað af listinni? „Ég á mér, sem betur fer, dygga stuðningsmenn sem hafa veitt mér ómetanlegan stuðning," segir Ás- geir um leið og hann klínir rauðum iit á strigann, þar sem „Sigurvegar- inn,“ er að fæðast. „Sigurvegarinn er kona,“ heldur hann áfram. Það snýst allt um konur í dag, eða rétt- ara sagt um fegurðina, því tvímala- laust er meiri fegurð í konum en körlum. Mer finnst sterkir litir fal- legir. Veistu það að sumu fólki er eðlilegt að velja fallega liti. Það á ekki bara við um listamenn. Miðað við vinnuálag íslendinga, er undar- legt hvað við eigum marga starf- andi fagurkera. íslendingar eru „originalar," Flestir íslendingar eru með „origi- nal“ myndir á veggjunum hjá sér, ekki eftirprentanir. Þeir vilja hafa alvöru hluti í kringum sig. Þess- vegna getur ekki orðið vont að vera listamaður á íslandi. Annars er búið að sanna að það er betra að sitja úti og mála, koma svo heim og halda sýningu. Þá er ákaflega vel tekið á móti manni. Þetta er biblíulegt atriði. Ég er ekki að segja að við eigum ekki góða myndlistarmenn erlendis, heldur virðist viðmiðunin hér vera sú, að hér geti ekki vaxið upp menn- ingartré. Því er fólki, sem vill skapa sér nafn, nauðsynlegt að fara út og vera þar um tíma ef fólk á að trúa á það sem listamenn. Það er vel hægt að lifa hér sem listamað- ur, allavega lítill. Fólk verður bara að læra að klæða sig eftir veðri." Fylgir nútímamyndlist á íslandi einhverri sérs- takri stefnu eða er hver að gera það sem honum dettur í hug? „Mér fínnst svo mikil svartsýni í nútímalist. Þetta er allt ein kvöl og þjáning, pína og endalaus vanda- mál. Vandamálin byijuðu með Ibsen og Strindberg. Ég hef einhverja andstyggð á þesslegum „karakter- um,“ sem velta sér upp úr vanda- málum og óeðli sem þeir fínna í sjálfum sér, en staðsetja í öðrum. Þeir fóru að brydda á þessum vandamálum í leikritum sínum. Síðan hefur þetta undið upp á sig og í dag sjáum við óyfirstfganleg vandamál í listtjáningu. Mengun, ofneysla, ofbeldi. Ég hef andstyggð á svartsýni og vandamálum. Ég mála aldrei svartsýnar mynd- ir. Eg sæki myndefnið í glaðværð og ánægju. Ég vel mér íslenskt efni og hér eru svo fáir slæmir hlut- ir að maður sér þá ekki, nema það sé endemis bjórleysið, sem gerir okkur lágkúruleg og sveitó. En það þurfa alltaf til sjálfskipaðir postular sem vilja hafa vit fyrir okkur hin- um, í sinni smámennsku." segir Ásgeir Smári Einarsson að lokum. Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir Borgarráð: Dómnefnd skipuð í sam- keppni um ruslaílát BORGARRÁÐ hefur skipað þau Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson (S), Ingibjörgu Sóirúnu Gísladóttur (Kvl.) og Pétur Hannesson, hreinsunardeild Reykjavíkur- borgar, f dómnefnd í samkeppni um gerð nýrra ruslaíláta. Það var í síðustu viku sem borg- arráð ákvað að efnt yrði til þessarar samkeppni, en þetta verður almenn hugmyndasamkeppni um gerð nýrra íláta undir rusl, tillögu um staðsetningu þeirra á almennings- svæðum svo og slagorða til þess að hvetja til betri umgengni í borg- inni. Með samkeppni þessari vonast borgaryfírvöld til þess að hugar- farsbreyting verði í þessum efnum og að götur borgarinnar verði eitt- hvað hreinlegri á að líta í framtfð- inni. Umferð- arfræðsla fyrir 5 og 6áraböm Umferðarfræðsla fyrir 5 og 6 ára börn fer nú fram á vegum lögreglu, umferðarnefnda, sveitarfélaga og Umferðarráðs. Bömin eru boðuð með bréfí og fer kennslan fram í grunnskólun- um. Hvert bam kemur tvisvar og u.þ.b. klukkustund í senn. Farið er yfir nokkrar mikilvægar um- ferðarreglur s.s. hvemig á að ganga yfir akbraut, hvemig á að nota gangbrautarljós, hvar er best að leika sér og hvar böm eiga að sitja í bílum. Hvert bam fær blað með sér heim fyrri daginn og kemur með það teiknað aftur. Sýndar em umferðarkvikmyndir og sögð sag- an af „Siggu og skessunni í umferðinni“ eftir Herdísi Egils- dóttur kennara við leikmynd Sjafnar Ólafsdóttur fóstru. Vísir að þessari starfsemi hófst í Reykjavík sumarið 1967, en þá voru fyrstu námskeiðin haldin í samvinnu við Bústaðasókn. Nú 20 ámm seinna vom það böm í upp- sveitum Ámessýslu sem fyrst mættu til leiks, en þar fór um- ferðarfræðslan fram dagana 12.—15. maí sl. Þá var haldið norð- ur á Sauðárkrók og þaðan á Suðumesin. Nýlokið er kennslu í Kópavogi en í Reykjavík stendur umferðar- fræðslan nú yfír og verður kennt í 20 skólum. Þar lýkur kennslu ekki fyrr en 1. júlí. Mánudaginn 15. júní hefst þessi fræðsla í Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjamamesi og Mosfellssveit. í ágústmánuði verður farið til Akraness og í Borgames, einnig á Selfoss og nágrenni. Endað verð- ur í Vestmannaeyjum. Umsjón með fræðslunni hefur María Finnsdóttir fóstra. Leið- beinendur auk hennar em fóstr- umar Bergljót Jóhannsdóttir, Helga Guðjónsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir og Unnur Stefáns- dóttir ásamt lögregluþjónum á viðkomandi stöðum. Fjölmennt hefur verið á þeim námskeiðum sem haldin hafa verið og bömin full áhuga. HAGKVÆM 1AUSN SEM ENDIST ÞOL er einstök þakmálning, sem ver bökin betur gegn veðri og vindum. I nýja litakortinu okkargetur þú valið úr 24 litum. Veldu ÞOL á þakið. íiSSS,°Æ!SSS KROMGRÆNT. »»* Þol gegn veðrí og vindum MEIRA EN VENJULEG MÁLNING STEINAKRÝL hleypir raka mjög auöveldlega i gegnum sig, tvöfalt betur en hefðbundin plastmálning. STEINAKRÝL er mjög veðurheldin málning og hefur frábært alkaliþol og viðloöun við stein. STEINAKRÝL stendur fyrir sínu. ÖSA/5IA NÚ FER AD HITNA I KOLUNUM Það er tilhlökkunarefni að byrja grillveislurnar aftur. Góður matur, fjör og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta i grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eða jafnvel sjálft grillið. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Á næstu Essostöð finnur þú allt sem þarf . . . nema grillmatinn! Grillkol 2,3 kg Grillkol 4,5 kg Gríllvökvi 0,51 Grillvökvi 1,01 Gríll 225 kr. 434 kr. 75 kr. 120 kr. frá 2076 kr. Grilláhöld og grillbakkar i úrvali. A *STEYPUVIÐ- GERÐAREFNI *ÍBLÖNDUNAR- EFNI í STEYPU *ÞÉTTIEFNI NOTIÐ SIKA í ALLAR STEYPUVIÐGERÐIR OG GERIÐ VIÐ í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL. VELJIÐ ENDINGU OG ÖRYGGI -VELJIÐ SIKA. Olíufélagið hf i HLJSASMIOJAIM SUDARVOGI 3-5 £* 687700
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.