Morgunblaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1987
49
séra Jóns Sveinssonar „Nonna" í
Nonnahúsi.
Að varðveita og gera við gömul
hús svo þau haldi reisn sinni og
nýtist ætluðu hlutverki er mikið
vandaverk. Að svo vel tókst til sem
var með Nonnahúsið má óbeint
þakka frú Gunnhildi því að hún
fékk tengdason sinn, Stefán Jóns-
son arkitekt, til að leggja á ráðin
og leiðbeina í þeim endurbótum sem
gerðar voru á húsinu. Starf Stefáns
var mikið og allt látið í té án endur-
gjalds, en klúbbnum ómetanlegt.
Heimili Gunnhildar, Kirkjuhvoll,
var í næsta nágrenni Nonnahúss.
Það var mikið glæsiheimili, þekkt
fyrir gestrisni og höfðingsskap, sem
við Zontasystur fengum oft að
njóta, bæði er gesti klúbbsins bar
að garði og ekki síður er við sjálfar
sátum fundi þar heima.
Við minnumst með innilegu
þakklæti þeirra Zontasystra, sem
þá áttu heimili sín í innbænum. Það
voru þær Gunnhildur Ryel og Ragn-
heiður O. Bjömsson. Við fengum
svo oft hlýjar, ógleymanlegar mót-
tökur á báðum þessum heimilum
þegar komið var frá vinnu í Nonna-
húsi, óupphituðu, veturinn 1957,
en þá var undirbúningur þar á loka-
stigi fyrir opnun safnsins.
Nonnahús var opnað með viðhöfn
þann 11. nóvemberþað ár. Þá flutti
Gunnhildur, ásamt fleirum, ræðu
og sagði frá uppbyggingu safnsins,
en margir höfðu lagt þar hönd að
verki. Síðan eru liðin 30 ár. Nafn
Gunnhildar Ryel er skrifað stórum
stöfum í sögu Zontaklúbbs Akur-
eyrar. Árið 1962 flutti hún alfarin
til Reykjavíkur og dvaldi þar til
æviloka en áður en við sáum á bak
þessari góðu og merku konu suður
samþykktum við hana sem heiðurs-
félaga í Zontaklúbbnum.
Frá því er leiðir skildu bárust
klúbbnum mörg bréf og kveðjur frá
frú Gunnhildi og allt fram til þess
síðasta lifði áhugi hennar fyrir vel-
ferð klúbbsins og starfinu í
Nonnahúsi.
Við flytjum aðstandendum henn-
ar innilegar samúðarkveðjur.
Zontasystur
í Zontaklúbbi Akureyrar
einnig hag okkar starfsmannanna,
sem unnum undir hans stjóm, sem
bestan. Þar sýndi hann þá réttsýni
sem honum var ætíð töm. Það var
ávallt uppörvandi þegar hann kom
í verslanimar. Hann var fljótur að
koma auga á það sem betur mátti
fara. Kristinn var glæsimenni í sjón
og raun og sómdi sér alls staðar
vel og hafði svo einstakt lag á að
vekja glaðværð og stemmingu með
nærveru sinni. Ekki spillti góð söng-
rödd hans þar fyrir og hvaða
íslendingur hefur ekki notið þess
að hlusta á tvísöng þeirra Kristins
Þorsteinssonar og Jóhanns Kon-
ráðssonar.
Kristinn átti fmmkvæði að því
að við útibússtjórarinir fómm á iðn-
aðarsyningar í Reykjavík og
heimsóknir til nærliggjandi kaup-
félaga til að kynnast starfsháttum
þeirra. í þessum ferðum var hann
fararstjóri og hélt uppi íjöldasöng
og fékk okkur til að leggja eitthvað
af mörkum. Mer er minnisstætt á
ferð til Reykjavíkur, þegar við fór-
um fyrir Hvalfjörð í grennd, við
Geirshólma, í ljósaksiptunum er
Kristinn fór með kvæðið „Helga
Jarlsdóttir" eftir Davíð Stefánsson.
Frábær rödd hans naut sín við upp-
lesturinn. Ég vil geta þess að
Kristinn mun hafa átt fmmkvæði
að því að við útibússtjómamir fór-
um í mánaðar kynnis— og starfs-
dvöl til Kaupmannahafnar.
í einkalífi sínu var Kristinn gæfu-
maður. Hann gekk að eiga Lovísu
Pálsdóttur, glæsilega og greinda
konu, og vom þau samhent. Þeim
hjónum varð þriggja bama auðið
og em þau: Gunnlaugur Páll, full-
trúi, Guðrún Anna, píanóleikari og
Margrét Halldóra, húsmóðir. Við
starfsmenn Kristins fengum að
kynnast þeirri gestrisni og glað-
værð, sem ríkti á heimili þeirra
hjóna. Ég þakka Kristni góð og
löng kynni og votta eftirlifandi eig-
inkonu hans og fjöldskyldu þeirra
samúð mína.
Blessuð sé minning Kristins Þor-
steinssonar.
Kristinn Pálsson
NÆTURUTVARP:
út) Rás 2 I loftinu allan
atfk sólarhringinn um
allt land. Nær til
vinnandi fólks, fólks I frli,
fólks við skemmtun og fólks á
ferð. Frá 24—7 er verðið 70 kr.
fyrir sekúnduna.
R (KISÚTVARPIÐ
AUGLÝSINGADEILD
SÍMI693060
KVÖLDÚTVARP:
Rás 2 er ódýr og
Epjflfc höfðar til flestra ald-
urshópa. Rásin
býður uppá vandaða kvöld-
dagskrásem nærum land allt.
Frá 19-24er verðið 140 kr. fyrir
sekúnduna.
KLllKKURNAR ÞRJAR
\K\Sir\f\l k>iinir nyja líina
og ný verð á leiknum
auglýsingum
MORGUN- OG
SÍÐDEGISÚTVARP:
u£) Rás 2 nær til fólks
JaK við leik og störf um
land allt. Rásin heyr-
ist I sumarbústaðnum, tjald-
inu og bilnum. Frá 7—19 er
verðið 225 kr. fyrir sekúnduna.
ÖRKIN/SÍA