Morgunblaðið - 10.09.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
7
MEÐAL EFNIS
í KVÖLD
minimn
205C
EYÐNI
Jón Ottar Ragnarsson fjallar i
Leiðara sinum i kvöld um eyðni
i tilefni af spánýjum banda-
rískum þætti sem að sýndur
verður i lokin. Hann ræðirvið
helstu sérfræðinga landsins
um efniþáttaríns, útbreiðslu
eyðni og varnaraðgerðir.
ift I Föstudagur
„rvnnl SAGANAF
'..«■1 HARVEYMOON
Framhaldsmyndaflokkur um fjöl
skyldulif Harvey Moon sem er i
molum og ekki hjálpa veikindi
tilvonandi tengdasonar upp á
sakirnar.
Laugardagur
APRÍLDAGAR
(The April Fools). Gamanmynd
um kaupsýslumann sem býr við
mikið ofriki á heimili sinu. Hann
hittir fagra konu i hanastélsboði
og verður ástfanginn. íIjós kem-
ur að hún er gift yfirmanni hans.
STÖÐ2
Auglýsingasimi
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykilinn faarð
þúhjá
Heimilistaðkjum
íí
HeimHlstæki h
S:62 12 15
I skýrslunni eru fullyrðing-
ar sem ég er ekki sáttur við
- segir Sigurður Einarsson útgerðarmaður
Vestmannaeyjum.
„ÞESSI skýrsla er enginn stóri
sannleikur og þar koma svo sem
ekki fram nein ný sannindi fyrir
okkur. í henni eru margar fullyrð-
ingar sem ég er ekki sáttur við
en skýrslan opnar þó umræður
um málið og það tel ég vera af
því góða,“ sagði Sigurður Einars-
son, útgerðarmaður og forstjóri
Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja
hf., í samtali við Morgunblaðið.
Sigurður var inntur álits á skýrslu
Hilmars Viktorssonar viðskipa-
fræðings um stöðu og horfur í
fiskvinnslu í Eyjum á timum vax-
andi gámaútflutnings. Skýrslu
þessa vann Hilmar fyrir atvinnu-
málanefnd Vestmannaeyja.
í skýrslu Hilmars er því slegið
fram að þjóðarbúið hafi tapað á
síðasta ári milli 600 og 800 milljónum
króna á útflutningi ferskfisks í gám-
um og að störfum í fiskvinnslu hafa
fækkað um 100 í fyrra. Miklar um-
ræður hafa verið í Eyjum útaf
gámaútflutningnum og skoðanir
manna verið skiptar. Sigurður sagði
það vera ljóst að hagsmunir fisk-
vinnslufyrirtækja og fiskvinnslufólks
annarsvegar og útgerðarfyrirtækja
og sjómanna hinsvegar færu ekki
saman í þessu máli. Hann sagði að
ekki væri hægt að horfa fram hjá
því að >/3 af lönduðum afla færi nú
óunninn út í gámum.
„Þetta er þó ekkert einfalt mál
og ekki er auðvelt að finna á þessu
lausn sem öllum líkar. Ég tel að ein
af þeim lausnum sem til greina koma
til að losna út úr þessu sé að koma
hér á fót fiskmarkaði," sagði Sigurð-
ur Einarsson. Hann sagði að
gámaútflutningurinn hefði komið
misjafnlega hart niður á frystihúsum
í Eyjum og misjafnt frá einu tíma-
bili til annars. „Frá miðjum febrúar
hefur ekki fallið niður einn einasti
dagur { vinnslu hjá frystihúsunum
hér en það hefur vissulega dregið
úr yfírvinnu. Það hafa hinsvegar
komið dagar sem þau hafa verið í
vandræðum með að vinna allan þann
afla sem til þeirra barst. Mannekla
í fiskvinnslu er raunar orðið eitt af
hennar stærstu vandamálum í dag
og margir karlmenn hafa hætt í
frystihúsunum og farið á sjóinn þar
sem þeir hafa meiri tekjur."
Sigurður sagði það skipta mestu
fyrir fískvinnsluna í landinu að henni
verði skapaðir möguleikar til að
keppa um hráefnið á jafnréttisgrund-
velli.
- hkj.
HÉR FYRIR OFAN
SÉRÐU SNJÓBRÆÐSLURÖR
SEM ÞÚ GETUR TREYST
|ért þú aðv hugleiða val á snjóbræðslu-
rörum, munt þú fljótt komast að því að
ekki er allt gull sem glóir. Það eru til ýms-
ar gerðir slíkra röra, úr mismunandi efn-
um og ætluð fyrir mismikla frosthörku og
veðrabrigði. Það fer best á því að skoða
vel hina ýmsu valkosti sem bjóðast.
Byrir nokkrum árum setti Börkur hf. á
markaðinn snjóbræðslurör úr POLY-
BUTYLENE plastefninu og hafa mót-
tökurnar verið framúrskarandi góðar
jafnt hjá fagmönnum sem leikmönnum.
Börkur hf. framleiðir snjóbræðslurörin í
o 25 mm fyrir almenna notkun og í 0 20
mm sem henta sérstaklega í tröppulagnir.
Snjóbræöslurörin koma aö góöum notum á hinum ýmsu stööum s.s. í innkeyrslum
og bílastæöum, í gangstígum, á leiksvæðum, á íþróttavöllum og vinnusvæðum.
Sýndu fyrirhyggju og veldu Barkar snjóbræðslurör fyrir veturinn.
Sölustaðir eru m.a.: Bygg-
ingavöruverslun Sam-
bandsins Krókhálsi í Reykja-
vík, BYKÓ í Hafnarfirði og
Kópavogi, og Bygginga-
vöruverslunin Hús og lagnir
Réttarhálsi í Reykjavík.
BÚRKUR hf.
HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 ■ PÓSTHÓLF 239 ■ 220 HAFNARFIRÐI