Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 16

Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 BETRI ÁRANGUR MEÐ ATLAS COPCO Öruggur búnaöur fyrir: 1. Mannvirkjagerð 2. Verktakastarfsemi 3. Þungaöiönaö 4. Léttan iðnað Loftþjöppur með eða án loftkúts KOSTIR: Eftirlit auövelt Fyrirferðarlitlar Margar stæröir FYLGIHLUTIR: Loftsíur Loftþurrkarar Þrýstiminnkarar Loftslöngur Slöngutengi Loftkælar Fullbúin LE 8 loftþjappa VERKFÆRI: Borvélar Slípivélar Herzluvélar Gjallhamrar Brothamrar Ryöhamrar Fræsarar Loftbyssur Sagir Klippur Sandblásturstæki Máln.sprautur Fylgihlutir Afköst 6-23 i/s — vinnuþrýstingur 10-30 bar ATLAS COPCO er stærsti framleiðandi í heimi á loftþjöppum og tækjabúnaði fyrir þrýstiloft. Fyrirtækið þekkir hvernig minnka má framleiðslukostnað með notkun á loft- og gas- þjöppum, þurrkurum, síum, kælum, iðnaðarverkfærum og tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar. ■■■iDHHi Fyrirtæki með framleiðslu er JLtlasCopcc tfyggir Þér bætta arðsemi og JLtlasCopcc góða þjónustu. y-s Allar nánari upplýsingar gefur LANDSSMÐJAN HF. '^ISÓLVHÓLSGOTU 13 - REYKJAVlK f SÍMI (91) 20680 VERSLUN: ÁRMÚLA 23 1ÖT1IIMIM i1 HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVIK SÍMI: 685656 og 84530 Athugið: Eigum fyrirliggjandi nokkra einfasa rafmótora á mjög hagstæöu veröi. Greiðsluskilmálar. Takmarkaö magn. SÚCÞURRKUNAR- MÓTORAR Einokun afsiðar Athugasemdir varðandi fréttatilkynningu Sölufélags garðyrkjumanna vegna úrskurðar Verðlagsráðs um verðlagningaraðferð félagsins eftir Jónas Bjarnason Með úrskurðinum, sem tilkynnt- ur var Neytendasamtökunum í bréfi dags. 1.9.’87, er Sölufélagi garð- yrkjumanna gert að hætta afskipt- um af verðlagningu afurða garðyrkjumanna vegna þess, að aðferðin brýtur í bága við verðíags- lögin. Þessi úrskurður fékkst vegna kæru Neytendasamtakanna frá 1.7. 1987. Af tilefni úrskurðarins hefur Sölufélag garðyrkjumanna sent frá sér fréttatilkynningu, sem birt hef- ur verið að hluta til í einstökum fjölmiðlum að undanfömu. í frétt- unum hefur eftirfarandi komið fram: 1. Sölufélagið (SFG) telur furðu- legt, að stjómvöld telji nú fyrst eftir 47 ára starf SFG ástæðu til að banna verðlagningaraðferð félags- ins. 2. SFG segir úrskurð Verðlags- ráðs hafa verið tilkynntan án rökstuðnings og byggðan á rangri túlkun á verðlagslögunum. 3. SFG fullyrðir, að verð á afurð- um félagsins hafi ráðist af framboði og eftirspurn. 4. SFG segir líka furðulegt, að Verðlagsráð hafi ekki getað beðið fram á næsta vor með úrskurð sinn, en þá á svokallaður „grænmetis- markaður" að taka til starfa. 5. SFG telur, að ekki megi ráða af úrskurði Verðlagsráðs, hvemig framkvæma megi (verðlagninguna væntanlega) samkvæmt úrskurðin- um. 6. SFG íhugar að áfrýja ákvörðun Verðlagsráðs til dómstóla. Með þessari grein er ekki ætlun- in að svara fyrir Verðlagsráð, en málið er Neytendasamtökunum skylt af mörgum ástæðum. Þess vegna vill undirritaður leyfa sér að koma eftirfarandi athugasemdum að varðandi málflutning SFG. Athugasemdir 1. Það er ekkert furðulegt, að Verðlagsráð úrskurði núna, að SFG stundi ólöglega verðlagningu. í fyrsta lagi kærðu Neytendasamtök- in 1.7. sl., en þau hafa ekki gert það áður. I öðru lagi er búið að nema gömlu framleiðsluráðslögin úr gildi með setningu núgildandi búvömlaga (46/1985). Með gömlu lögunum ríkti óþolandi einokunar- ástand á umræddu sviði, en land- búnaðarráðuneytið réði öllu. Grænmetisverslun landbúnaðarins sáluga réði síðan öllum málum á sviði garðávaxta í umboði ráðuneyt- isins með sérstakri reglugerð, en SFG fékk að ástunda sína einokun í skjóli Grænmetisverzlunarinnar. Þessi tími er liðinn, og hefur hann skilið eftir sig biturt eftirbragð í „SFG segist íhuga aö áfrýja úrskuröi Verð- lagsráðs til dómstóla. Það er skynsamlegast að reiða sig heldur á úrskurð íslenskra neyt- enda. Það gæti verið, að sölumálin rynnu úr greipum SFG á meðan það er að berjast fyrir dómstóium. Islenskir neytendur eru ekkert bundnir við að láta úr- elta viðskiptahætti hjá einu fyrirtæki skammta sér rétt úr hnefa.“ Jónas Bjarnason munni íslenskra neytenda. Ástand á öllum sviðum garðávaxta, þ.e. kartaflna, grænmetis og annarra garðávaxta, var og er með öllu óviðunandi og ósambærilegt við það, sem gengur og gerist í okkar heimshluta. Forráðamenn SFG virðast engu hafa gleymt og ekkert hafa lært. Til viðbótar þessu voru sett ný verðlagslög (56/1978), sem kveða á um forsendur ftjálsrar verðlagn- ingar. Samkvæmt þeim lögum er samráð bannað, ef varðlagning skal vera fijáls. Svo einfalt er það. Á síðustu mánuðum hafa garðyrkju- bændur reynt að bijóta alla fram- leiðendur undir eitt félag og eitt heildsölufyrirtæki. Forráðamönnum SFG og Sambandi garðyrkjubænda átti að vera það ljóst, að þeir yrðu stöðvaðir á þessari braut. Lögfræð- ingar segja, að menn geti ekki brugðið fyrir sig vanþekkingu á lögum. Þótt SFG hafi um sinn kom- ist upp með einokunartök á gróður- húsaafurðum, er ekki þar með sagt, að þeim eigi að takast að ná til allra útiræktenda einnig og jafnvel innflutnings til viðbótar. 2. Rökstuðningur fyrir fijálsri verðlagningu stendur einfaldlega í verðlagslögunum. Það verður að teljast mikið upp í sig tekið af SFG að segja Verðlagsráð þekkja verð- lagslögin verr en SFG. Að sjálf- sögðu er Verðlagsráð engin sérstök kennslustofnun fyrir forystumenn SFG í undirstöðuatriðum verðlags- laganna. Vel má vera, að einn lögfræðingur hjá Verðlagsstofnun hafí gefið SFG falskar vonir vegna tiltekinna formsatriða, sem lesa má út úr búvörulögunum, en þar er gert ráð fyrir því, að leitað skuli eftir því sem kostur er, samráðs og umsagnar samtaka framleið- enda. Þetta atriði er matsatriði varðandi málarekstur en ekki leið- beinandi um efnisniðurstöðu. 3. Verðsveiflur hafa að sjálf- sögðu verið nokkrar á garðávöxtum hjá SFG á þeim tegundum, sem félagið hefur einokun á í reynd. „ Sópran-blokkflaut- an“ - ný kennslubók KOMIN er út kennslubók í blokk- flautuleik eftir Jón G. Þórarins- son tónmenntakennara. Nefnist hún „Sópran-blokkflautan“. Jón rekur í formála stuttlega sögu blokkflautunnar, en segir síðan m.a.: „Blokkflautan er hljóð- færi, hvorki leikfang né tæki sem eingöngu þjónar þeim tilgangi að kenna bömum að þekkja nótur. Sópranblokkflautan er auðveld í meðförum og því hentug fyrir smá- ar hendur. Auðvelt er að blása í flautuna og ekki erfítt að mynda hreinan og fallegan tón ef unnið er að því frá byijun. Þótt blokkflautan hafi orðið að víkja um stund, er hún nú aftur viðurkennt hljóðfæri sem nýtur mikilla vinsælda. Það verður að taka blokkflautuna eins og hún er, en krefjast ekki Kennsla hefst í byrjun október Byrjenda- og framhalds- flokkar frá 5 ára aldri. Innritun í síma 611459 kl. 10.00-14.00 daglega. Félag ísl. listdansara. LLETT Royal Academy ofDancing Kennslukerfi BALLETTSKÓLI Gudbjargar Björgvíns íþróttahúsinu Seltjarnarnesi. <><><►

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.