Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
Danska stúlkan
enn ófundin
ENN hefur ekkert spurst til
dönsku stúlkunnar Piu Jespers-
en, sem strauk héðan i júli í
sumar. Hún varð 16 ára þann 12.
nóvember, en hún hafði sagt föð-
ur sinum að hún ætlaði sér að
Samhjálparhópur
krabbameins-
sjúklinga:
Erindi um
streitu
ANNAR fundur samhjálparhóps
krabbameinssjúklinga verður
haldinn i safnaðarheimili Lang-
holtskirkju í Sólheimum 13, í
kvöld, 17. nóvember, kl. 20.00.
Á fundinum flytur Ingólfur S.
Sveinsson geðlæknir erindi um
streitu og svarar fyrirspurnum. Á
eftir verða umræður um áfram-
haldandi starfsemi samtakanna og
önnur mál er varða félagið.
VEÐUR
sveljast erlendis þar til hún yrði
sjálfráða.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu strauk stúlkan héðan þann
1. júlí. Skömmu síðar kom í ljós
að móðurbróðir hennar, sem er
búsettur í Noregi, hafði aðstoðað
hana og borgað fyrir hana flugfar-
seðil. Stúlkan hringdi í föður sinn
í Danmörku, neitaði að gefa upp
dvalarstað, en sagðist ætla að dvelja
erlendis þangað til hún yrði 16 ára,
sem var á fimmtudag í síðustu viku.
Ekkert hefur þó til hennar spurst
síðan.
Hjalti Zóphóníasson, skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði
að lögreglan í Osló og Tönsberg
væri að rannsaka málið, því jafnvel
þótt stúlkan væri nú sjálfráða, þá
væri það lögbrot hjá móðurbróður
hennar að halda henni frá löglegum
forráðamanni. Þá hefðu borist
ásakanir um önnur brot frændans
gegn stúlkunni, en ekki væri vitað
hvort þær ættu við rök að styðjast.
íslensk yfirvöld hefðu gert athuga-
semdir við seinagang Norðmanna
við rannsókn málsins og vonandi
skýrðist það innan tíðar.
«'L
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Loðnuveiðiskipið Hilmir SU 171 í höfn í Reykjavík sl. sunnudag.
Loðnuveiðin:
92.595 tonn höfðu veiðst
á miðnætti í fyrrinótt
LOÐNUVEIÐISKIPIN voru á
miðnætti i fyrrinótt búin að til-
kynna um löndun á 92.595
tonnum frá upphafi vertíðar.
Skipin fóru út í gærmorgun eftir
sólarhringsbrælu á miðunum.
Hrafn GK tilkynnti um 500 tonn
/ DAG kl. 12.00:,
/ / /
Heímild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá W. 16.15 i gær)
til Bolungarvíkur sl. föstudag og
sl. laugardag tilkynntu eftirtalin
skip um afla: Víkurberg GK 560
tonn til Bolungarvíkur, Sighvatur
Bjamason VE 700 tonn til Vest-
mannaeyja, Bergur VE 530 tonn
til Bolungarvíkur, Skarðsvík SH
640 tonn til Siglufjarðar, Jón Finns-
son RE 1150 tonn til Siglufjarðar,
Þórshamar GK 570 tonn til Bolung-
arvíkur, Hrafn GK 650 tonn til
Grindavíkur, Hilmir SU 1050 tonn
til Reykjavíkur, Hilmir II SU 500
tonn til Reykjavíkur, Kap II VE 710
tonn til Vest.mannaeyja, Víkingur
AK 1330 tonn til Akraness, Bjarai
Ólafsson AK 1150 tonn til Akra-
ness, Fífíll GK 640 tonn til Siglu-
fjarðar og Gísli Ámi RE 600 tonn
til Siglufjarðar.
Eftirtalin skip tilkynntu um afla
sl. sunnudag: Magnús NK 500 tonn
til Siglufjarðar, Guðmundur VE 900
tonn til Vestmannaeyja, Börkur NK
600 tonn til Neskaupstaðar, Harpa
GK 450 tonn til Bolungarvíkur,
Gígja VE 750 tonn til Vestmanna-
eyja, Keflvíkingur KE 150 tonn til
Bolungarvíkur, Eldborg HF 1300
tonn til Eskifjarðar, Jón Kjartans-
son 1000 tonn til Eskifjarðar, Öm
KE 640 tonn til Krossaness, Grind-
víkingur GK 800 tonn til Grinda-
víkur, Guðmundur Ólafur ÓF 200
tonn til Bolungarvíkur og Rauðsey
AK 200 tonn til Bolungarvíkur.
Steinunn Sigurðardóttir Thor Vilhjálmsson
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
VEÐURHORFUR í DAG, 17.11.87
YFIRLIT á hódegi f gœr: Um 300 km suður af Ingólfshöfða er 980
millibara lægð sem þokast austur og grynnist og 1017 millibara
hæð er yfir Grænlandi. Um 900 km suösuðaustur af Hvarfi er vax-
andi 978 millibara lægð á hægri hreyfingu norðaustur.
SPÁ: í dag verður austankaldi fram eftir degi, síðan vaxandi aust-
an- og suðaustanátt suðvestanlands. Skýjað verður víðast hvar og
smáskúrir með suöaustur og austurströndinni. Fer að rigna suð-
vestanlands annað kvöld. Hiti 3—6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR: Suðlæg eða suðaustiæg átt og fremur hlýtt.
Skúrir um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu norðan-
lands.
FIMMTUDAGUR: Gengur í norðaustanátt með óljum og heldur
kólnandi veðri um norðvestanvert landið, en breytileg átt og skúr-
ir austanlands.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- Q Hitastig: 10 gráður á Celsíus
*^^» Heiðskirt ▼ stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. •> *t> III Skúrir / Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning Þoka
HálfBkýjað / / / * / * 5 5 5 Þokumóða Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo 4 Mistur Skafrenningur
JjjHjH^ Alskýjað * * * * Snjókoma # * # K Þrumuveður
Vfk VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hhl veftur Akureyri 4 rlgnlng Reykjavik 2 skýjað
Bergen 8 rigning
Helsinkl 0 þokumóða
Jan Mayen 0 skýjað
Kaupmannah. 8 rignlng
Narssarssuaq +4 alskýjað
Nuuk +7 léttskýjað
Osló 5 rignlng
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 12 skýjað
Aþena 21 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Bertín 8 rlgning
Chlcago 13 alskýjað
Feneyjar 10 skýjað
Frankfurt 12 skúr
Qlasgow 10 rigning
Hamborg 10 rlgnlng
Las Palmas 22 alskýjað
London 12 hélfskýjað
Los Angeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 12 skýjað
Madríd 11 mistur
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal +1 skýjað
NewYork B léttskýjað
Parls 14 léttskýjað
Róm vantar
Vln 3 rlgnlng
Washlngton 4 þokumóða
Winnlpeg 0 skýjað
Valencia 18 helðaklrt
Bækur Steinunnar og
Thors frá íslandi
SKÁLDSÖGURNAR, „Tímaþjóf-
urinn" eftir Steinunni Sigurðard-
óttur og „Grámosinn glóir“ eftir
Thor Vilhjálsson er framlag ís-
lands til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs árið 1988.
Dómnefndin kemur sama í Þórs-
höfn í Færeyjum 26. janúar
næstkomandi og ákveður hver hljóti
verðlaunin. Afhending þeirra fer
fram á 36. þingi Norðurlandaráðs
í Konserthúsinu í Osló i byijun
mars. Verðlaunin eru dkr. 125.000
eða um ísl.kr. 710.000.
Formaður dómnefndar er Jóhann
Hjálmarsson skáld en auk hans sit-
ur Sveinn Einarsson rithöfundur og
leikstjóri í nefndinni fyrir hönd ís-
lands.
Þorlakur Björnsson
frá Evjarhólum látinn
ÞORLÁKUR Bjömsson, frá Eyjar-
hólum i Mýrdal, lést sl. laugardag.
Þorlákur fæddist á Varmá í Mos-
fellsveit 23. desember 1899 en ólst
upp í Drangshlíð undir Eyjaflöllum.
Hann stundaði sjómennsku á ensk-
um, þýskum og fslenskum togurum
og vann í eitt ár við landbúnaðar-
störf í Danmörku. Þorlákur keypti
jörðina Eyjarhóla í Mýrdal og stund-
aði þar búskap og jafnframt dýra-
lækningar fyrir Mýrdælinga og fleiri
enda þótt hann væri ómenntaður á
því sviði. Þorlákur var kunnur hesta-
maður. Hann gegndi mörgum
trúnaðarstörfum fyrir Dyrhólahrepp.
Árið 1974 hætti hann búskap og
flutti til Selfoss.
Þorlákur Bjömsson