Morgunblaðið - 17.11.1987, Side 38

Morgunblaðið - 17.11.1987, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987 38 r „Garnir raktar úr þingkonunum" var yfírskrift eins dagskrárliðs á landsfundi Kvennalistans. Landsfundur Kvennalistans um helgina; Fórum með gott vega- nesti af þessum fundi - segir Kristín Halldórsdóttir þingmaður Kvennalistans Morgunblaðið/Ámi Sæberg Litli leikhópurinn tróð upp á landsfundi Kvennalistans með leikri- tið Þjóðarkakan. Þótt leikaramir væru imgir að árum tóku þeir á stjóramálunum á hressilegan hátt eins og sést á landsfundargestum. ÉG var óskaplega ánægð með þennan fund og fannst hann virkilega gefandi og góður og held að hann hafi verkað vel og eins og tíl var ætlast,“ sagði Kristín Halldórsdóttir þing- maður Kvennalistans þegar hún var spurð um landsfund Kvennalistans sem haldinn var um síðustu helgi. Kristin sagði að þessi landsfundur hefði i rauninni verið líkari ráðstefnu en landsfundi stjórnmálaflokks þvi ekki hefði þurft að eyða tima í valdabaráttu og kosning- ar og pólítisk dægurmál hefðu litið verið rædd. Kristín sagði að niðurstaða fundarins hefði helst verið sú að samtökin væru á réttri braut. „Ég held að við höfum farið með gott veganesti af þessum fundi. Við Qölluðum töluvert um stöðu okkar núna eftir þau tímamót sem urðu við síðustu kosningar og við það að stækka þingflokkinn og hafa kvennalista í öllum kjördæmum. Þetta er fyrsti landsfundur eftir að öll kjördæmi eru komin inn í myndina. A fundinum voru öll kjördæmi með sitt innlegg og full- trúar þeirra töluðu um atvinnu- ástand og aðstæður almennt." —Á fundinum virtist koma fram ótti um að konumar.sem sitja á þingi myndu ij'arlægjast almennar flokkskonur við það að starfa á Alþingi. „Þetta er okkur alltaf um- hugsunarefni. Við höfum svo gjörólíkt skipulag og vinnubrögð miðað við aðra flokka og leggjum mikið upp úr því sem kallað er grasrótarskipulag þar sem allar konur eru jafnvirkar og hafí jafna möguleika á áhrifum. En við það að þurfa að hafa eina stofnun, þingflokkinn sem gengur inn í ákveðið skipulag sem er á Al- þingi, þá hljóta þingkonumar að hafa ákveðna sérstöðu því þær em þar af leiðandi á kafí í kerf- inu. Það er mjög mikið mál hjá okkur að sú sérstaða verði ekki til þess að þingkonur lendi á ein- hveijum sér palli og verði sérstakt fyrirbrigði innan Kvennalistans. Það er rétt að sú spuming hef- ur heyrst innan Kvennalistans hvort við eyðum ekki tíma okkar um of I að Qalla um öll mál á Alþingi, þar sem við hljótum að leggja mesta áherslu á mál sem lúta að bættum hag kvenna og bama. Við hinsvegar lítum flestar svo á að við séum komnar í þessa pólitík til að auka við hana og bæta hana vonandi, því við viljum leggja að mörkum ný viðhorf og ný sjónarmið og þau eiga rétt á sér í öllum málum. Það er okkar reynsla inni á þingi að í mjög mörgum málaflokkum er reyndar hægt að bæta einhverju nýju við og varpa nýju ljósi á hlutina með því að horfa á þá með augum kvenna." ■ —Þið hafíð kvartað yfír því að flölmiðlar sinni ykkur ekki nægi- lega mikið en samt var blaða- mönnum vísað út af landsfundin- um þegar ræða átti pólítísk mál. Er ekki fólgin í þessu mótsögn? „Það getur vel verið en það er oft erfítt að vega og meta hvað er rétt í þessu efni. Ástæðan, í því sérstaka tilfelli þegar ræða átti stjómmálaályktunina, var sú, að fenginni reynslu, að konur eru hræddar við að tjá sig ef þær vita af fjölmiðlum nálægt, sem er auð- vitað í mótsögn við að við viljum gjaman láta segja frá því sem við erum að gera. En við óttuðumst það í þessu tilviki að minna yrði um þau tjáskipti sem við þurftum að fá Um þetta málefni ef konur vissu af fulltrúum fjölmiðla í saln- um. Og okkur var mikið í mun að konur færu ekki óánægðar af fundi vegna þess að þær þyrðu ekki að segja það sem þær meintu," sagði Kristín Halldórs- dóttir. Skoðanakönnun DV á fylgi flokkanna: Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur auka fylgi sitt Úr umferðinni í Reykjavík mánuddaginn 15. nóvember 1987 Árekstrar bifreiða: 5. Samtals 30 kærur fyrir umferðarlagabrot á sunnudag. Radarmæling: 11 kærðir. Um miðnætti aðfaranótt sunnudags mældist 21 árs gamall ökumað- ur aka norður Reykjanesbraut að Elliðaárbrúm með 127 km/klst. hraða og reyndist áberandi ölvaður við aksturinn. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum að sjálfsögðu. Kl. 22.00 var 22 ára gamall ökumaður mældur aka bifreið sinni með 118 km/klst hraða suður Höfðabakka. Hann var færður á lög- reglustöð og bifreið hans tekin af honum vegna gruns um ölvun við akstur. Leyfílegur hámarkshraði á Höfðabakka er 50 km/klst. Annar ökumaður sem reyndist aka of hratt um Höfðabakka mældist á 96 km/klst. hraða. Á Kringlumýrarbraut komu 6 bifreiðir inn í radargeislann og hrað- inn 86-102 km/klst. í Ártúnsbrekku var kært fyrir 91 og 93 km/klst. hraða. Á Elliðavogi fyrir 94 km/klst hraða og á Kleppsvegi 80 km/klst. hraða. Klippt voru númer af 6 bifreiðum fyrir vanrækslu á að færa til skoð- unar. 1 ökumaður fannst réttindalaus í sunnudagsumferðinni og 4 öku- menn grunaðir um ölvun við akstur. Samtals var 16 ökumönnum tekið blóð um helgina til alkóhólsrann- sóknar. Frétt frá lögreglunni í Reykjavík Konur taki höndum sam- an á eigin forsendum Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur hafa aukið fylgi sitt meðal kjósenda frá síðustu kosningum, ef marka má niður- stöðu skoðanakönnunar, sem DV gerði um sfðustu helgi, og sama L við um Samtök um kvennalista. Alþýðubandalagið hefur hins vegar tapað fylgi og sömu sögu er að segja af Alþýðuflokki og Borgaraflokki. Þá næði Stefán Valgeirsson ekki kjöri nú. Urtakið í könnun DV var 600 manns og var skipt jafnt milli kynja og milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Spurt var hvaða lista fólk kysi, ef þingkosningar færu fram nú. Niðurstaðan varð sú, að Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar- flokkur og Samtök um kvennalista bættu við sig fylgi, en aðrir töpuðu. Ef aðeins eru teknir þeir sem af- stöðu tóku verður skiptingin þessi (úrslit kosninga innan sviga): Alþýðuflokkur 11,1% (15,2%), Framsóknarflokkur 29,1% (18,9%), Bandalag jafnaðarmanna 0,0% (0,2%), Sjálfstæðisflokkur 33,2% (27,2%), Alþýðubandalag 7,3% (13,3%), Flokkur mannsins 0,8% (1,6%), Stefán Valgeirsson 0,0% (1,2%), Borgaraflokkur 5,5% (10,9%), Samtök um kvennalista 12,3% (10,1%), Þjóðarflokkur 0,8% (1,3%). niðurstöðu yrðu sem hér segir (staða í þinginu nú innan sviga): Alþýðuflokkur 7 (10), Framsókn- arflokkur 19 (13), Sjálfstæðisflokk- ur 22 (18), Alþýðubandalag 4 (8), Borgaraflokkur 3 (7), Samtök um kvennalista 8 (6), Stefán Valgeirs- son næði ekki kjöri. Um 25,5% aðspurðra voru óá- kveðnir og 8,2% vildu ekki svara. Fyrirlestur um Þórshanann Fuglavemdarfélag íslands byijar í kvöld, þriðjudag, hið al- menna fræðslustarf sitt. Verður þá fyrsti fræðslufundurinn í Norræna húsinu á þessum vetri og hefst hann kl. 20.30. Dr. Kristinn Skarphéðinsson fuglafræðingur flytur fyrirlestur á fundinum og ætlar hann að segja frá Þórshananum. Dr. Kristinn verður með eitthvað af litskyggnum með sér til að bregða upp á sýning- artjald. QENQISSKRÁNINQ Nr. 217. 16. nóvember 1987 Kr. Kr. Toll- Eln. Kl. 09.16 IUup Sala 9*°®* Dollari 37.52000 37,64000 38,12000 Sterlp. 65.40700 65,61600 64,96600 Kan. dollari 28,47100 28,56200 28.92300 Dönsk kr. 5.67950 5,69760 5,63840 Norsk kr. 5,79240 5,81090 5,84530 Sænsk kr. 6.09490 6,11440 6,10650 Fi. mark 8,93870 8,96720 8,92740 Fr. franki 6.47850 6.49920 6,46980 Belg. franki 1,04750 1,05080 1,03900 Sv. franki 26,54970 26,63760 26,32600 Holl. gyllini 19,40520 19.46730 19,25930 V-þ. mark 21.85400 21,92390 21,68060 ít. líra 0.02977 0,02987 0,02996 Austurr. sch. 3,12210 3,13210 3,08130 Port. escudo 0,27040 0,27130 0,27280 Sp. peseti 0.32500 0,32610 0,33230 Jap. yen 0.27341 0,27428 0,27151 írskt pund 58,21200 58,39800 57,80900 SDR (Sérst.) 50,05690 50,21700 50,06140 ECU, evr. m. 45,18350 45,32800 44,96060 Tollgengi fyrir nóvember er sölugengi 28. okt. Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. - segir í stjórn- málaályktun lands- fundar Kvennalistans í stjórnmálaályktun 5. lands- fundar Kvennalistans segir að samkeppnis- og eiginhagsmuna- kerfi karlaveldisins sundri konum, og er þeirri spurningu beint til allra kvenna hvort ekki sé kominn tími til að konur á öllum sviðum þjóðlífsins taki höndum saman á eigin forsend- um. í stjórnmálaályktuninni er því beint til kvenna að eyða ekki orku í að viðhalda kerfí sem sjálft nýtur krafta þeirra en neitar að taka til- lit til eiginleika þeirra og aðstæðna. Síðan segir orðrétt: „Þau aumu kjör sem konum eru búin, bitna ekki á þeim einum, heldur á öllum, sem þurfa á umönnun að halda. Þess vegna er barátta kvenna ekki eigin- hagsmunabarátta heldur í þágu heildar. Konur hafa í vaxandi mæli unnið að því að bæta kjör sín og stöðu eftir hefðbundnum leiðum en ekki haft erindi sem erfíði. Lærum af reynslunni, höfnum hefðum sem binda okkur í viðjar, troðum okkar eigin slóð.“ Stjómmálaályktuninni lýkur síðan á ljóði eftir Jórunni Sörensen. Fréttamönnum var vísað úr fund- arsalnum meðan umræður um stjómmálaályktunina fóm fram. Einnig var fréttamanni vísað úr salnum meðan gangur stjómar- myndunarviðræðnanna var ræddur, fyrr á fundinum. Þingsæti í samræmi við þessa Fiskverð á uppboðsmörkuAum 16. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæata Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 48,00 30,00 45,00 37,2 1.672.000 Ýsa 55,00 27,00 34,57 25,1 869.000 Karfi 25,00 19,00 20,57 2,2 45.500 Ufsi 30,00 16,00 27,17 4,0 109.500 Koli 41,00 37,00 40,62 5,7 231.500 Steinbítur 29,00 28,00 28,93 1,5 42.000 Langa 30,00 23,00 26,81 1,0 25.000 Samtals 40,05 77,435 3.120.980 í gær var aðallega selt úr Keili. f dag verða seld 20 tonn af þorski, 14 af ýsu, 20 af karfa og 3 af öðru úr Sandfelli SU, Ingi- björgu ST og Víði HF. FAXAMARKAÐUR hf í Reykjavík Ekki var boðið upp í gær. í dag verða seld 17 tonn af þorski, 8 af karfa, 2 af ýsu og 1 af kola úr Ásgeiri. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA í Njarðvík Hæsta Lægsta Meðal- Magn Helldar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 45,50 30,00 41,46 24,0 995.040 Ýsa 50,50 40,00 48,42 12,2 590.724 Karfi 25,00 15,00 22,89 3.8 87.000 Steinbítur 30,50 15,00 29,54 2,0 59.080 Langa 27,50 27,50 27,50 1,8 49.500 Blálanga 32,50 15,00 28,00 1.0 28.000 Keila 15,60 12,00 13,79 4,3 59.280 Samtals 37,82 49,1 1.968.624 Selt var úr línu- og netabátum.í dag verður selt úr línu- og netabátum frá Suðurnesjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.