Morgunblaðið - 17.11.1987, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
JÓNBJÖRN MAGNÚSSON,
Gljúfraseli 2,
andaðist f Borgarspítalanum aðfaranótt laugardagsins 14. nóv-
ember.
Magnús Þ. Hilmarsson,
Hilmar Magnússon,
Anna Þ. Ingólfsdóttir,
Ingólfur Magnússon.
Minning:
Margrét Jónsdóttir
frá Sauðhúsvelli
t
Konan mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ESTER SIGHVATSDÓTTIR,
Blöndubakka 3,
Reykjavfk,
andaðist sunnudaginn 15. nóvember í Landspítalanum.
Kristján Jónsson,
María Kristjánsdóttir,
Jón Kristjánsson, Ingibjörg Hjaltadóttir,
Sighvatur Kristjánsson, Ingigerður Sigmundsdóttir,
Helgi Kristjánsson, Edda Guðmundsdóttir,
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
ANNA KRISTMUNDSDÓTTIR,
Hjarðarhaga 44,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt 16. nóvember.
Gústaf Jóhannesson,
Ingibjörg Jóhannesdóttir.
t
Eiginmaður minn,
PÁLMI SVEINSSON,
Eyjabakka 3,
andaðist þann 16. nóvember í Landspítalanum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðlaug Magnúsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
ÞORLÁKUR BJÖRNSSON
frá Eyjarhólum í Mýrdal,
andaðist í sjúkrahúsinu á Selfossi 14. nóvember sl.
Jarðarförin verður auglýst síöar.
Inglbjörg Indriðadóttir,
börn og tengdabörn.
Fædd 3. júní 1897
Dáin 3. nóvember 1987
Þú lítur hin öldnu Eyjafjöll
í æðra heimi þau ljóma
þau faldar, þau krýnir hin mjúka mjöll
og morgunsöngvarnir hljóma.
Þín sveit vefur örmum þinn ytri hjúp
þar ilmar, þar blómgast hún moldin gljúp.
Við helgisöng harmamir dvína
þér háröðlar voldugir skína.
(Sigfús Elíasson)
Þetta ljóð orti afi minn í minn-
ingu föðurbróður míns, Jóns Jóns-
sonar frá Ásólfsskála, er hann lést
árið 1969. Fegurð þessa ljóðs fær
mig knúinn til að helga það einnig
minningu föðursystur minnar og
uppeldismóður, Margrétar Jóns-
dóttur frá Sauðhúsvelli í Vestur-
Eyjafjallahreppi, sem sl. laugardag
var til moldar borin frá Ásólfsskála-
kirkju.
Margrét fæddist hinn 3. júní
1897 að Efri-Hól undir Vestur-
Eyjaijöllum. Hún var elst þrettán
systkina. Foreldrar hennar voru
hjónin Þorbjörg Bjamadóttir, fædd
1877 að Gíslakoti í Austur-Eyja-
fjallahreppi, og Jón Pálsson frá Fit,
fæddur 1872. Margrét fluttist fljót-
lega með foreldrum sínum að
Efri-Holtum og ólst þar upp J)ar til
1914, er jjölskyldan flutti að Asólfs-
skála. Þessi ár vann hún að
almennum sveitastörfum eins og
títt var á þessum árum uns hún
kynntist kærleiksmanninum Sig-
urði Guðjónssyni frá Vestur-Holt-
um, fæddum 1896, er hún síðar
giftist.
Á þessum árum voru búferla-
flutningar fólks algengir í leit að
atvinnu og framtíð. Eftir 1920
fluttu þau til Vestmannaeyja, þar
sem þau bjuggu um nokkurra ára
skeið. Þar fæddust tvö elstu böm
þeirra, Guðjón og Þóra. Árið 1928
sagði átthagaástin til sín og flutti
fjölskyldan í sveitina sína að nýju
að bænum Sauðhúsvelli, þar sem
þau stofnuðu sveitabúskap. Hvers
þau Margrét og Sigurður væntu af
líflnu skal ósagt látið, en eitt er
víst að lífsbaráttan var hörð eins
Góðir skór á
frábæru verði
Litir:
Blátt,
brúnt,
svart
og
rúskinn
Verð kr.
1.292,-
Sendum í
póstkröfu
samdægurs.
Skóhöllin
Austurstræti 6
Laugavegi 89,
Laugavegi 11
Reykjavíkurvegi 50
og hjá flestum á þessum árum.
Bömunum fjölgaði. Við bættust
Magnús sem lést á fyrsta aldurs-
ári, þá Jóna, Magnús og Sigmar,
en síðast Einar sem lést þriggja ára
árið 1944. Enda þótt efnahagurinn
hafí ekki verið sá er nútíminn telur
viðunandi, brást ekki dugnaðurinn
við að vinna allt það sem tilheyrir
hinni íslensku sveit. Húsin er þau
hjónin reistu og fallega heimilið
þeirra að Sauðhúsvelli bám glöggt
vitni um bjartsýni, vandvirkni og
smekkvísi. Hjónaband þeirra var
farsælt í um flmmtíu ár, þar til
Sigurður lést árið 1970.
Eftir fráfall móður minnar varð
ég svo gæfusamur að fá að njóta
uppeldis á Sauðhúsvelli. Var það
mér ungu bami mikill skóli að fá
þá umhyggju, ástúð og aga sem
var í fyrirrúmi á því heimili. Að
sjálfsögðu kom það ekki síður í hlut
mömmu, en svo kallaði ég hana
ætíð, að veita mér innsýn í skóla
lífsins. Mamma dró fram bók og
upplýsti lítinn dreng um merkingu
stafa og talna og var það góður
vegvisir til framtíðarinnar sem
vissulega ber að þakka. En mömmu
var margt til lista lagt. Hún var
líka alltaf eitthvað að gera milli
þess er hún gekk til útiverka af
ósérhlífni. Hún var einkar lagin við
sauma og prjónaskap og voru þær
af fjölbreyttasta tagi flíkumar er
unnar voru í hennar gjörvilegum
höndum. Allt sem laut að matar-
gerð og húshaldi vann hún af
sérstökum glæsileik, hún lagði alúð
og natni í öll sín verk, aðeins það
besta var nógu gott. Mamma var
glöð í góðra vina hópi, hæglát og
hlý kynni voru ríkjandi í lundarfari
hennar. Hún gat verið dómhörð en
fór oftast ekki hátt með skoðanir
sínar, en samt gat hún komið manni
til að hugsa, flnna til og taka af-
stöðu.
Eins og ráða má af framansögðu
var hún forkur dugleg og óneitan-
lega var borin virðing fyrir slíkri
konu. Mamma hefur með árunum
átt við heilsubrest að stríða. 16.
apríl sl. gerði meinsemdin vart við
sig fyrir alvöru. Upp frá því lá hún
meðvitundarlítil á Landspítalanum
og auðséð var hvert stefndi. Hún
lést þriðjudaginn 3. nóvember sl. á
91. aldursári. Nú að leiðarlokum
vil ég þakka mömmu fyrir vináttu
og umhyggju sem hún sýndi mér
og fjölskyldu minni alla tíð. Afkom-
endum hennar, systkinum og vinum
er hér vottuð dýpsta samúð.
Þorberg Ólafsson
Grein þessi átti að birtast í
blaðinu sl. laugardag en vegna
mistaka við vinnslu blaðsins varð
greinin eftir. Blaðið biður höf-
und og aðstandendur afsökunar
á þessum mistökum.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KATRÍN HILDIBRANDSDÓTTIR,
lést 13. nóvember á Garðvangi, Garði.
Haraldur Hinriksson, Guðrún S. Jónasdóttir,
Grétar Hinriksson, Sjöfn Georgsdóttir,
Júlfus Hinriksson, Margrót Ágústa Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN INGI RÓSANTSSON
klæðskeri,
Bogahlfð 22,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 17.
nóvember, kl. 13.30.
Guðbjörg Pálsdóttir,
Þórunn Jónsdóttir,
Þórlaug Jónsdóttir, Stefán Svavarsson,
Óskar Jónsson, Ingveldur H. Aðalsteinsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Friðrik Kristjánsson,
Þórunn Marfa Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Utför móður okkar,
GUÐRÍÐAR PÉTURSDÓTTUR,
Sandholti 17,
Ólafsvfk,
fer fram frá Ólafsvíkurkirkju þann 18. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkað, en þeim sem vilja minnast hennar
er vinsamlegast bent á Ólafsvíkurkirkju eða slysavarnadeildina
Sumargjöf.
Aðalsteina Sumarliðadóttir,
Guðni Sumarliðason.
t
Eiginmaöur minn og faðir,
ÓLAFUR ÓFEIGSSON,
fyrrverandi skipstjóri,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 17. nóvember
kl. 10.30.
Danfelína Sveinbjörnsdóttir,
Hrafnhildur Ólafsdóttir.