Morgunblaðið - 17.11.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
AÐVEMULJÓS
Innkaupastjórar,
eigum mikiö úrval aöventuljósa.
Nýjar gerðir.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 13*91-691600
STAÐGREIÐSLA
SKATTA
- Kynning fyrir
fyrirtæki
Samstarfsráð verslunarinnar gengst fyrir
kynningu í samvinnu við ríkisskattstjóra á
fyrirhuguðu staðgreiðslukerfi skatta.
Kynningin verður miðvikudaginn 18. nóv-
ember nk. kl. 14.00 á Hótel Loftleiðum,
Kristalssal.
í kynningunni verður svarað ýmsum spurning-
um um staðgreiðslukerfið, svo sem:
- Hvaða vinnu hjá fyrirtækjum hefurstað-
greiðslukerfið í förmeð sér?
- Hverjar eru meginreglur staðgreiðslukerf-
isins?
- Hvernig er staðgreiðslan framkvæmd?
Fulltrúar ríkisskattstjóra, þeir
SkúliG. Þórðarson, forstöðumaður stað-
greiðsludeildar,
Steinþór Haraldsson, yfirlögfræðingur,
Ríkarður Ríkarðsson, deildarstjóri
ogJón Zóphoníasson, deildarstjóri
munu halda stutt erindi og svara fyrirspurn-
um.
Kynningin er ætluð stjórnendum fyrirtækja
og þeim, sem helst þurfa að vita um áhrif
staðgreiðslunnar á málefni starfsmanna.
Þátttaka tilkynnist til Verslunarráðs íslands,
sími 83088.
Samstarfsráð verslunarinnar:
Félag íslenskra stórkaupmanna,
Kaupmannasamtök ís/ands,
Verslunarráð Islands.
Hvor nær til
fleiri hlustenda?
BLAÐINU hefur boríst eftirfar-
andi frá íslenska útvarpsfélag-
inu:
Vegna æsikenndra skrifa Halls
Leópoldssonar markaðsstjóra
Stjömunnar um auglýsingu Bylgj-
unnar í sjónvarpi, þar sem reiknuð
er hlustun á útvarpsstöðvar úr
gögnum Félagsvísindastofnunar, vil
ég gjaman koma eftirfarandi á
framfæri.
1. í auglýsingu okkar er tekið
fram að 46.000 manns á stærsta
markaðssvæði landsins hlusti dag-
lega á Bylgjuna. Þetta er síðan
notað til að styðja þá staðhæfíngu
að Bylgjan nái til flestra hlustenda
á stærsta markaðssvæði landsins.
Einnig er fullyrt að engin önnur
tónlistarstöð hafí þessa hlustun.
Þetta telur Hallur rangt og kallar
lygi. Hann ætti að ígmnda betur
niðurstöður könnunarinnar. Þar
kemur nefnilega fram á bls. 3 að
daglega hlusti 28% landsmanna á
aldrinum 15—70 ára á Bylgjuna (og
22% á Stjömuna). Á bak við hvert
prósent stóðu í fyrra 1.660 manns
samkvæmt upplýsingum Félagsvís-
indastofnunar. Samkvæmt því
mátti gera ráð fyrir að þessi 28%
sem sögðust hafa hlustað í könnun-
inni gæfu 46.480 manns sem
heildarhlustun. Þá er náttúrulega
ekki talið til að Bylgjan hefur heil-
mikla, en ómælda hlustun hjá fólki
yngri en 15 ára og eldra en 80
ára. Við kusum hinsvegar að stilla
einungis upp hlustun þeirra sem
hægt var að mæla vegna þess að
við teljum mikilvægt að vinna vel
og samviskusamlega úr hlustenda-
könnunum. Því er nokkuð gengið á
hlut Bylgjunnar í auglýsingunni
sem er slíkur fleinn í holdi Halls
sem raun ber vitni. Þá er þess enn
að geta að frá því að talan 1.660
var lögð til grundvallar útreikning-
um í fyrra hefur fólki í þessum
árgöngum fjölgað. í könnun Fé-
lagsvísindastofnunar var leitað eftir
hlustun hjá fólki sem fætt var á
árunum 1917—1972. Samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar voru
um 168.466 einstaklingar í þessum
árgöngum um síðustu áramót. Því
hefði verið réttara að hafa viðmið-
unartöluna jafnvel enn hærri eða
1.684. Samkvæmt því hefði verið
réttmætt að halda fram að 47.000
manns hlustuðu daglega á Bylgjuna
á einum degi. Bylgjan sendir ein-
ungis út á stærsta markaðssvæði
landsins, við Faxaflóa, á Suðurlandi
og á Akureyri. Þess vegna stendur
það sem staðreynd sem haldið er
fram í auglýsingunni góðu. Það er
Vatnslásar
Mjög hagstœtt verö!
Innsogssett
úr sjálfvirku í handvirkt
HABERG ”
SKEIFUNNI 5A. SÍMI: 91-8 47 88
svo ekki okkar mál þótt 27% fleiri
stilli á Bylgjuna en Stjömuna á
þessum tíma. Það helgast meðal
annars af því að dagskrá Stjömunn-
ar er ekki dreift jafn mikið og
dagskrá Bylgjunnar (t.d. ekki á
Akureyri) og þar sem stöðvamar
ná báðar hefur Bylgjan áfram vinn-
inginn eins og fram kemur í
meðfylgjandi ljósritum úr niður-
stöðum hlustunarkönnunar.
Þær tölur sem að framan er vik-
ið að og línurit sem birt em í
könnuninni sýna tvennt. Annars
vegar hlustun þar sem tónlistar-
stöðvar nást og hins vegar hlustun
á landinu öllu. Þar sem allar stöðv-
ar heyrast sýna línuritin að hlustun
rokkar eftir tíma dags. Stundum
hlusta fleiri á Bylgjuna og stundum
fer Stjaman upp. Taflan sem til er
vitnað hér að framan sýnir hins
vegar hvað að baki býr. Þar kemur
ótvírætt fram að heildarfjöldi þeirra
sem hlusta á Bylgjuna er sá sem
um er getið í auglýsingunni. Hér
stendur því hallur fyrir markaðs-
stjórinn.
2. Frá því að samstarf ljósvaka-
miðlanna og auglýsingastofa um
hlustendakannanir hófst verður
varla sagt að þar hafí borið dimma
skugga á. Ríkisútvarpið, Bylgjan
og Stöð 2 gengu til þessa sam-
starfs í fyrra með það í huga að
veita viðskiptavinum sínum þá sjálf-
sögðu þjónustu að upplýsa þá um
hlustun og horfun miðlanna. Vita-
skuld hafa menn dregið fram úr
niðurstöðum þessara kannanna það
sem þeir telja mikilvægt að við-
skiptavinir viti um eðli þeirra,
útbreiðslu, hlustun á einstaka dag-
skrárliði og heildarhlustun eins og
gert er í þessari margfrægu auglýs-
ingu. Línuritin segja vitaskuld sína
sögu og eru auðskiljanleg. Þar kem-
ur skýrt fram og er undirstrikað í
töflunum að heildarhlustun á Bylgj-
una, eins og hún var mæld í
könnuninni, er meiri heildarhlustun
en á Stjömuna. Þessar töflur gefa
skýrt til kynna að dagleg hlustun
á Bylgjuna mælist 46.000 manns
að minnsta kosti.
Hingað til hafa menn lagt upp
úr mismunandi niðurstöðum kann-
ananna, en órökstutt frumhlaup
Halls er fyrsta tilfellið þar sem eitt
NÝR skemmtistaður hefur verið
opnaður í Hveragerði í Hótel
Ork. Skemmtistaðurinn hefur
ekki ennþá hlotið nafn og hefur
verið efnt til verðlaunasam-
keppni um nafn á staðinn.
Veitt verða 50 þúsund króna
verðlaun fyrir besta nafnið. Eyðu-
blöð fyrir samkeppnina er hægt að
fyrirtækjanna, sem að henni
standa, er beinlínis vænt um lygar
í meðferð talna. í fréttatilkynningu
Halls er ekki einn einasti stafur
tíndur uppúr niðurstöðunum til að
rökstyðja aðfínnslur hans, og
kannski ekki að undra þegar litið
er yfír þær upplýsingar sem hér er
drepið á. Með þessu bréfí læt ég
fylgja ljósrit af niðurstöðum
títtnefndrar könnunar svo enginn
þurfí að velkjast í vafa. Aðdróttan-
ir þær sem fram koma í „fréttatil-
kynningunni" bera auðsæ merki
örvæntingar.
3. Þótt við teljum okkur engan
ávinning í því að núa öðru fólki um
nasir mistökum þess í starfi verður
ekki, eins og málum er nú komið,
komist hjá að benda á tölur um
heildarfjölda þeirra sem stöðvamar
geta náð til, sem fram koma á sömu
síðu og tafla sú sem áður er vitnað
til. Þar stendur skýrum stöfum:
„Um 79% svarenda ná sendingum
Bylgjunnar, 71% sendingum Stjöm-
unnar...“
í sjónvarpsauglýsingu Stjöm-
unnar hafa þessi 71% fyrir ein-
hverra hluta sakir orðið 80%. Túlki
nú hver sem vill.
Það má benda á í lokin að í
þeirri ágætu töflu sem hér er vitnað
til að framan kemur fram að heild-
arhlustun á landsvísu á Bylgjuna
er 28% en 29% á rás 2.
Þessi hlustun rásar 2 er hins
vegar svo dreifð um byggðir lands-
ins og sveitir að tvímælalaust má
staðhæfa að á stærsta markaðs-
svæðinu skjóti Bylgjan rásinni ref
fyrir rass. Nægir að benda á tölur
frá suð-vesturhominu sem gefa
Bylgjunni 34% í heildarhlustun og
rás 2 fær á meðan 21%.
Ég veit að fréttamenn hafa allt
annað við tímann að gera en reyna
að greina hismið frá kjamanum í
þrætubók eins og hér var sett af
stað með órökstuddum og röngum
yfírlýsingum Halls Leópoldssonar.
En því era þessar línur settar á
blað að við teljum að einstaklingur-
inn bafi bæði rétt og skyldur til að
* veijast og skjóta fyrir sig skildi
þegar ómaklega er að honum vegið.
Einar Sigurðsson
útvarpsstjóri fslenska
útvarpsfélagsins hf.
fá á hótelinu og er skilafrestur til
20. desember. Úrslit verða kynnt
23. desember en þá er ætlunin að
halda hóf í því tilefni.
Fyrirhugað er að hafa staðinn
opinn þrisvar í viku, föstudag, laug-
ardag og sunnudag og verður þá
boðið upp á vínveitingar og smá-
réttamatseðil. í miðri viku verður
staðurinn opinn fyrir unglinga.
Hótel Örk í Hveragerði. Nýr skemmtistaður var opnaður þar á
fimmtudag.
Hveragerði:
V er ðlaunasamkeppni
um nafn á skemmtistað