Morgunblaðið - 17.11.1987, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
M
Sigtryggur Sigurðsson og Bragi
Hauksson unnu Sandgerðismótið
Brids
Arnór Ragnarsson
Sigtryg-gnr Sigurðsson og
Bragi Hauksson unnu brids-
mótið sem Bridsfélagið Muninn
í Sandgerði gekkst fyrir sl.
laugardag. Háðu þeir harða
keppni við nokkur pör en segja
má að ein sex pör hafi átt
möguleika á sigri þegar þijár
umferðir voru eftir. Þeir félag-
ar Bragi og Sigtryggur byrjuðu
að spila saman i haust og hafa
náð mjög góðum árangri í
keppnum vetrarins.
Mótið hófst liðlega kl. 10 á
laugardagsmorguninn og voru 32
pör skráð til leiks. Endirinn varð
þó sá að 30 pör spiluðu þar sem
eitthvað var um að pör sem höfðu
skráð sig mættu ekki. Þar á með-
al voru spilarar frá Bridsfélagi
Reykjavíkur. Er það mat undirrit-
aðs að það sé lítilsvirðing við aðra
spilara og ekki sízt við stjóm hins
unga bridsfélags sem önnur brids-
félög gætu tekið sér til fyrirmynd-
ar fyrir kjark og áræði.
Bragi og Sigtryggur byijuðu
mótið mjög vel og voru komnir
með yfír 100 stig yfír meðalskor
eftir 9 umferðir.
Staðan eftir 12 umferðir:
Bragi — Sigtryggur 121
Lárus Hermannsson —
Gunnar Þorkelsson 72
Ólafur Ingimundarson —
Sverrir Jónsson 71
Matthías Þorvaldsson —
Ragnar Hermannsson 71
Stefán Ragnarsson —
Pétur Guðjónsson 56
Þegar mótið var liðlega hálfnað
var heldur betur farið að hitna í
kolunum og margir kallaðir.
Staðan eftir 17 umferðir:
Stefán Ragnarsson —
Pétur Guðjónsson 100
Bragi Hauksson —
Sigtryggur Sigurðsson 88
Matthías Þorvaldsson —
Ragnar Hermannsson 87
Aðalsteinn Jörgensen —
Ragnar Magnússon 80
Lárus Hermannsson —
Gunnar Þorkelsson 77
Sverrir Jónsson —
Ólafur Ingimundarson 71
Einar Jónsson —
Rúnar Magnússon 63
Þessi pör að Lárusi/Gunnari og
Sverri/Ólafí frátöldum áttu eftir
að beijast um efstu sæti í lokaum-
ferðunum.
Einar Jónsson og Rúnar Magn-
ússon skoruðu grimmt í síðari
hluta mótsins. Þeir urðu þó fyrir
því óláni að mæta úlfí í sauðar-
gæru í 26. umferð sem trúlega
kostaði þá sigur í mótinu.
Bragi Hauksson. Sigtryggur Sigurðsson.
Sigurvegararnir í Sandgerðismótinu sem fram fór sl. laugardag.
Myndirnar eru ekki nýjar þar sem myndasmiðurinn gleymdi
myndavélinni í önn dagsins. Úr því verður bætt þótt síðar verði.
Morgunblaðið/Amór
Lokastaðan:
Sigtryggur Sigurðsson —
Bragi Hauksson 152
Stefán Ragnarsson —
Pétur Guðjónsson 150
Einar Jónsson —
Rúnar Magnússon 143
Matthías Þorvaldsson —
Ragnar Hermannsson 142
Aðalsteinn Jörgensen —
Ragnar Magnússon 121
Lilja Einarsdóttir —
Sævar Þorbjömsson 114
Ólafur Ingimundarson —
Sverrir Jónsson 67
Armann J. Lárusson —
Sigurður Siguijónsson 59
Mótið fór að mörgu leyti mjög
vel fram. Því miður kom það þó
upp í lokaumferðum mótsins að
vín sázt á mönnum sem er alger-
lega óþolandi. Keppnisstjóri og
reiknimeistari var Ólafur Lárus-
son.
í mótslok afhenti formaður
Munins í Sandgerði, Karl Einars-
son, sigurvegurunum verðlaun sín
og þakkaði fyrir komuna og
skemmtilega og drengilega
keppni.
Eftirmáli
Undirritaður hefír gert lítið af
því, reyndar of lítið, að taka þátt
í svokölluðum stórmótum enda
verður hann víst að flokkast und-
ir þann flokk spilara sem í daglegu
tali eru kallaðir gutlarar. Hins
vegar lenti ég í því tvívegis í
mótinu í Sandgerði að mótheij-
amir kunnu ekki þau kerfí sem
þeir sögðust spila í upphafi leiks.
Það er mitt mat að það sé grund-
vallarskilyrði að spilarar kunni
það kerfí sem þeir boða andstæð-
ingunum að þeir spili. Verst er
þó þegar sömu aðilar hagnast á
því að segja rangt frá. Hér £ ég
ekki við um einhveijar fyrirstöðu-
sagnir á 4. eða 5. sagnstigi. Þar
getur verið um flókna sagnröð að
ræða. Hins vegar þegar samheiji
getur ekki skýrt rétt frá fyrstu
sögn þá ber að refsa viðkomandi.
Ég hvet bridsspilara til að láta
álit sitt í ljós hér f þættinum á
þessu máli.
UOSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
OSRAM
bílperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Eigum fyrirliggjandi
Ijósastillingatæki
[1] JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
Sundaborg 13, simi 688588.
fyrir herra
Sendum i póstkröfu.
RAMHAGERÐ1N
HAFNARSTRÆTI 19 sImafi 17910& 12001
Nýir réttir
Við á Sjanghæ höfumfengið til liðs
við okkur gestakokk frá Kína.
Hann hefur átt stóran þátt í því að gera
nýja matseðilinn okkar fjölbreyttari og
jafnvel enn vinsælli en áður. Zhao De Feng
hefur sérhæft sig í réttum frá Peking.
Ennfremur bjóðum við framandi rétti frá
Indónesíu og Malaysíu.
Verið velkomin
Ihí
Sjanghæ,
Kínverska veitingahúsið,
Laugavegi 28b, sími 16513.
lh!