Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
63
„Ég er krafmikil myndlistarkona
og ætla að vinna og sýna. Mig lang-
ar til að halda tvær sýningar aðra
með silki eingöngu og hina með
málverkum og teikningum."
Áttu næg silkiverk til að halda sýn-
ingu?
„Nei, mér helst ekki á silkinu og
er ánægð með það. En ég verð
búin að vinna það upp fyrir vorið.
Verður þú með fleiri námskeið?
„Já ég verð með námskeið hjá
Tomstundaskólanum og kenni á
Akureyri og Eyrarbakka núna í
nóvember. Svo verð ég með nám-
skeið hér eftir jól."
Skemmtilegast við
silkimálunina hvað ár-
angurinn sést fljótt
Blaðamaður króaði tvo nemendur
af og spurði um námskeiðið. Fyrst
varð á vegi blaðamanns Ólöf Sigur-
jónsdóttir, húsmóðir og ritari.
Hún var fyrst spurð hvort þetta
væri í fyrsta skipti sem hún málaði
á silki?
„Já, ég er á seinni leikskólaaldr-
inum. Ef maður fær ekki tækifæri
til að fara í leikskóla þegar maður
er ungur, þá verður maður að nota
tækifærið, þegar maður er orðinn
fullorðinn."
Hefur þú málað eitthvað áður?
„Eigum við ekki að segja að ég
hafi föndrað með liti, ekki málað
beint. Ég er búin að fara á öll þau
námskeið sem ég hef komist yfír í
handverki nema námskeið í smíði
og útskurði."
Hvemig fínnst þér silkimálunin?
„Alveg óskaplega skemmtileg og
skemmtilegast við hana er að mað-
ur sér svo fljótt árangur. Það er
svo mikil litafantasía í máluninni
og öll form leyfileg."
Hverskonar verk ertu að gera?
„Þetta er byijendaverk, á að
heita slæða en ég veit ekki hvað
verður."
Þegar blaðamaður spurði hana
hvort hún héldi að hún ætti eftir
að ganga með hana, skellihló hún,
„um hálsinn undir kápu,“ sagði hún
síðan. „Ég myndi allavega ekki
veifa henni framan í fólk og segj-
ast hafa gert hana, nema einhveij-
um yrði á að segja að hún væri
falleg. En sé enginn dómur felldur
þá þegi ég.“
Ekki vildi blaðamaður trufla hana
lengur og sneri sér að þeirri er
næst var, Guðmundu Kristinsdótt-
ur. Aðspurð af hvetju hún væri að
læra silkimálun sagði hún að sér
hefði þótt það hljóma spennandi og
sig hefði langað að prófa. „Mér
finnst þetta mjög skemmtilegt en
þetta er nú bara annar tíminn sem
ég fer í svo að ég á eftir að Jæra
mikið í sambandi við tæknina."
Hefur þú farið áður á námskeið í
einhveiju þessu líkt?
„Ég hef fengist aðeins við leir-
kerasmíð og málun, en það er orðið
mjög langt síðan.
Hvemig finnst þér munurinn á að
mála á striga og svo á silki?
„Það er allt allt annað, ekki
hægt að líkja því saman. En ég er
nú eiginlega komin of stutt til að
geta lýst því nákvæmlega."
Hvers konar stykki ertu að gera?
„Ætli þetta verði ekki slæða á
endanum, en ég veit ekki hvort ég
á eftir að nota hana, það á alveg
eftir að koma í Ijós hvemig hún
verður."
Ólöf Sigurjónsdóttir, „það er svo
mikil litafantasía í silkimálun-
inni.“
„Ætli þetta verði ekki slæða á endanum..." sagði Guðmunda Kristins-
dóttir um silkibútinn sem hún var að mála.
HVÍTA TJALDIÐ
Bette Davis
fær orðu
Bette Davis sem er orðin 79 ára
var nýlega heiðruð fyrir langa og
dygga þjónustu í þágu kvikmynd-
anna. Kvikmyndadrottningin Bette,
sem hefur leikið í yfir 100 myndum,
fengið tvo Óskara og 10 önnur verð-
laun fyrir leik, tók á móti verðlaun-
unum í Deuville í Frakklandi að
viðstöddum skara af heiðursmönn-
um- og konum. Bette er við bestu
heilsu þrátt fyrir ýmis veikindi og
óhóflegar reykingar, en hún svælir
eina fjóra pakka á dag.
Bette Davis er óttalegt fis, hún
vegur aðeins 42 kíló en er hin
sprækasta.
jtmuGESwne
_____Verðlækkun__
á nýjum vetrarhjólbðrðumH
Vegnaóvæntrarlækkunar á síðustu sendingunni af BRIDGESTONE„ÍSGRIP“vetrarhjól-
börðum getum við nú boðið þá á enn lægra verði en áður.
Dæmi um verd:
Stærð Verð
155SR 13 W03 Kr. 3.127.-
165SR 13 W03 Kr. 3.441.-
175SR 14 W03 Kr. 4.091.-
175/70 SR 13 W02 Kr. 3.431.-
185/70 SR 14 W02 Kr. 4.220.-
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR FRÁ OFANGREINDUM VERÐUM ER 7%
en að auki getum við boðið mjög hagstæð greiðslukjör:
VILDARKJÖR VÍSA eða EUROCREDIT:
Lág eða engin útborgun — og jafnar mánaðarlegar greióslur allt upp i 8 mánuói!
Stuðlaðu að öryggi þínu og þinna í umferðinni í vetur — nýttu þér hagstætt verð
okkarog greiðsluskilmála og kauptu NÝJA úrvals vetrarhjólbarða undir bílinn!!
DEKKJAMARKAÐURINN,
Nýja Bílaborgarhúsinu,
Fosshálsi 1,
Simi 68 12 99