Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
Þesslr hringdu . . .
Bágborin
fréttamennska
Friðbjðm Bjamason hringdi:
„Það var bágborin frétta-
mennska hjá Ríkissjónvarpinu að
þegja þunnu hljóði þegar Anna
Margrét Jónsdóttir hreppti 3. sætið
í keppninni Ungfrú heimur sl.
fímmtudagskvöld. . Okkur fínnst
stundum gott að ná í þriðja sæti
íslendingum en að þessu sinni
fannst sjónvarpinu ekki ástæða til
að greina frá úrslitum. Að vísu var
getið um þau í útvarpsfréttum sem
að venju voru lesnar að lokinni sjón-
varpsdagskrá en þar kom frétta-
stofa sjónvarps hvergi nærri. Var
það vegna þess að Stöð 2 var með
sjónvarp frá keppninni að Ríkissjón-
varpið reyndi að þegja hana í hel?
Þama skýtur skökku við hjá frétta-
stofu Ríkissjónvarpsins sem alltaf
er að lesa yfír okkur fréttir sem
engar fréttir eru. Það er greinilega
kominn tími til að ýta við þeim sem
þama stjóma, þeir hljóta að hafa
einhveijar skyldur við okkur, ekki
síst eftir að afnotagjöld Ríkissjón-
varps urðu svona svimandi há.“
Kæri Velvakandi
Mig langar til að fara nokkrum
orðum um vandamál sem ég á við
að stríða. Ég get ekki eignast fleiri
böm nema ég komist í smásjárað-
gerð með eggjaleiðarana sem
kannski heppnast og kannski ekki,
en hlýtur að vera þess virði að reyna.
Ég skil ekki hvers vegna ég þarf að
bíða allt að eitt ár, jafnvel lengur,
eftir að komast í aðgerð. Mér fínnst
ég ekki sitja við sama borð og þær
óheppnu konur sem ekki vilja eigast
böm og gangast undir fóstureyðingu.
Það segir sig sjálft að þyrftu þær
að bíða svona lengi yrði ekki af fóst-
ureyðingu.
Mér líður alveg hræðilega að þurfa
að bfða svona og bfða, viku eftir viku
og mánuð eftir mánuð. Og að þurfa
Bandaríkja hatur
Marbendill hringdi:
„Mikið er nú fjargviðrast um að
að Stefán Jóhann hafí átt í
leynimakki við Bandaríkjamenn og
endurspeglar þetta mál það Banda-
ríkjahatur sem hér virðist grassera.
Ef talað hefði verið um að Stefán
Jóhann hefði átt í leynimakki við
KGB eða þýska nasista hefði líklega
enginn sýnt málinu áhuga. Ein-
hverjir leggja sig nú mjög fram um
að reyna að fínna höggstað sam-
skipum okkar við Bandaríkjamenn
og útbreiða óhróður um Bandaríkin.
Þetta er næsta furðulegt í ljósti
þess hve Bandaríkjamenn hafa
reynst okkur vel í öllum samskipt-
um þjóðanna."
að þola það þegar fólk er að óskap-
ast yfír hvernig þetta sé eiginlega
með mann: Á ekki að fara að koma
með annað bam?, hvað ætlið þið eig-
inlega að láta verða mörg ár á milli?,
það er nú engum hollt að eiga bara
eitt bam o. s. frv. Ég gæti grátið.
Nú vildi ég gjaman heyra hvað aðrar
konur hafa um þetta að segja, sér-
staklega ef þær eiga í sama vanda.
Við hljótum að vera margar sem eins
er ástatt um fyrst biðin er svona
löng. Ég vildi líka heyra frá þeim
sem eru í forsvari, af hveiju er þessi
bið er svona löng. Er ekki talað um
að sífellt fæðist færri böm hér á
landi? Það stendur ekki á mér að
eignast fleiri böm fái ég bara tæki-
færi til þess.
Sigurbjörg
Vantar umfjöllun
um þriðju deild
Arnar hringdi:
„Það vantar alveg umfjöllun um
það sem er að gerast í þriðju deild
á íþróttasíðum dagblaða. Margir
hafa áhuga á því sem þar er að
gerast og finnst mér að vel mætti
segja fréttir af því.“
Síðbúnar
grínmyndir
Tvær vinkonur hringdu:
„Okkur langar til að þakka fyrir
góðar grínmyndir hjá Stöð 2 en
jafnframt mælast til þess að þær
séu sýndar fyrr á kvöldin. Við miss-
um af mörgum góðum grínmyndum
vegna þess hve þær em sýndar
seint á kvöldin og yrðum þakklátar
ef hægt væri að breyta þessu."
Hjólaluktir
Hinn 20. október vom tvær lukt-
ir, önnur svört en hin hvít, teknar
af hjóli fímm ára drengs. Þeir sem
hafa orðið varir við þessar luktir
em beðnir að hafa samband við
Bjamveigu í síma 84118.
Viðtal um
augnlækningar
Kona hringdi:
„Fyrir skömmu fékk ég sent heim
blað þar sem viðtal við augnlækni
var meðal efnis og fjallaði hann um
nýja tækni í augnlækningum. Ég
var svo óheppin að glata þessu blaði
en þarf nú á þessari þekkingu að
halda. Getur einhver upplýst mig
um hvaða blað þetta er?“
Frj ósemisaðgerðir
67
Umboðs- og heildverslun
Vegna sérstakra ástæðna er til sölu góð heild-
verslun. Góður lager. Sérlega hentugt skrif-
stofu- og lagerhúsnæði í miðborginni. Mikill
sölutímiframundan.
Tilvalið fyrir 2 samhenta aðila. Til afhendingar
nú þegar. Góð greiðslukjör.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
fimmtudag 19.11 merkt: „Tækifæri-4227“.
SIEMENS
SlWAMAT 276
Góð og hagkvæm
þvottavél
• 18 þvottakerfi.
• Sparnaðarhnappur.
•Frjálst hitavai.
•Vinduhraöi 600 og 800
sn./mín.
• íslenskur leiðarvísir.
•Gömlu góðu Siemens-
gæðin.
í
Komið í heimsókn tílokkar:
Svnith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
DULUX'S
FRÁ
OSRAM
- Ljóslifandi orku-
sparnaður
- 80% lœgri lýsingar-
kostnaður miðað við
glóperu.
j i
- Fimmföld ending ó
við venjulega peru. ffe-—
- Pjónusta í öllum |
helstu raftœkja- .
verslunum og "
kaupfélögum.
UÓS OG ORKA
SUÐURLANDSBRAUT12