Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
71
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SILFURBUÐIN
KRINGLUNNI-REYKJAVfK
SÍMI 68906S
rs
_^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Keppni í hárgreiðslu og hárskurði:
Besti árangur íslenzkra kepp
enda á Norðurlandamóti
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Helgi Ólafsson er nú efstur
mótinu.
Hannes Hlífar Stefánsson þarf
nú aðeins IV2 vinning í fjórum
síðustu skákunum til að ná
áfanga að alþjóðlegum meistara-
titli.
Alþjóðlega skákmótið á Suðurnesjum:
Helgi Olafsson
með forystuna
Keflavik.
HELGI Ólafsson stórmeistari er
efstur á alþjóðlega skákmótinu á
Suðurnesjum með 6 vinninga að
loknum 7 umferðum. Hannes
Hlífar Stefánsson er í öðru sæti
með 5V2 vinning. David Norwood
og Þröstur Þórhallsson sátu að
tafli í gærkvöldi og tefldu frest-
aða skák úr 2. umferð, en aðrir
áttu frí.
Hannes Hlífar þarf nú aðeins
IV2 vinning í þeim fórum umferðum
sem eftir eru til að ná áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli. Til að ná
áfanganum þarf 7 vinninga og eiga
þeir Björgvin Jónsson og Þröstur
Þórhallsson einnig góða möguleika
á að ná áfanganum. Björgvin er í
3.-5. sæti með 4V2 vinning ásamt
Guðmundi Siguijónssyni stórmeist-
ara og Bretanum David Norwood.
Þröstur Þórhallsson er í 6. sæti
með 4 vinninga.
Á sunnudag var tefld sjöunda
umferð, Helgi tefldi við Björgvin
og lauk skákinni með jafntefli eftir
snarpar sviptingar. Hannes HHfar
var með vonlausa stöðu að því er
virtist gegn Sigfúsi Daða, var heil-
um hrók undir, en náði samt að
sigra. Þetta er þriðja skákin í mót-
inu sem heilladfsimar hafa verið
hliðhollar Hannesi eftir að hann
hefur fengið upp tapaða stöðu.
Þröstur fékk fljótlega verra tafl
gegn Jacobs, en náði að þráskáka.
Bretinn þráaðist við að taka jafn-
teflinu, lék kóng sínum í hættulega
stöðu og tapaði. Guðmundur sigraði
Finnann Pyhala örugglega og Nor-
wood vann Weldon örugglega.
Jóhannes Ágústson og Davíð Olafs-
son gerðu jafntefli.
Úrslit í 5. umferð urðu þessi:
Charles Weldon / Helgi Ólafsson
0:1, Byron Jakobs / HannesHlífar
Stefánsson 1:0, Björgvin Jóns-
son / SigurðurDaði Sigfússon 1:0,
Guðmundur Sigurjónsson / David
NorwoodV2:V2 Jóhannes Ágústs-
son / Þröstur Þórhallsson V2.-V2
Davíð Ólafsson 7 AnttiPyhalaO:l.
Úrslit í 6. umferð sem tefld var á
laugardag urðu þessi: Hannes
HHfar Stefánsson / Björgvin Jóns-
son 1:0, Helgi Ólafsson / Byron
Jakobs 1:0, David Norwood / Jó-
hannes Ágústsson 1:0, Þröstur
Þórhallsson / Charles Weldon 0:1,
Davíð Ólafsson / Guðmundur Sig-
uijónsson V2:V2, Antti Pyhala /
Sigurður Daði Sigfússon V2:V2. Bið-
skák Þrastar Þórhallssonar og
Guðmundar Siguijónssonar úr 4.
umferð lauk með jafntefli. Stór-
meistaramir Helgi Ólafsson og
Guðmundur Siguijónsson eru þeir
einu sem ekki hafa tapað skák í
mótinu. Áttunda umferð verður
tefld í dag.
- BB
NORÐURLANDAKEPPNI í hár-
greiðslu- og hárskurði fór fram
í íþróttahúsinu Digranesi fyrir
skömmu. í fréttatilkynningu seg-
ir, að á mótinu hafi íslenzkir
keppendur náð sínum bezta
árangri á Norðurlandamóti, en
Dóróthea Magnúsdóttir varð í
fyrsta sæti í keppni um dag-
greiðslu og í þriðja sæti í
samahlagðri einstaklingskeppni
og Guðfinna Jóhannsdóttir varð
í 3ja sæti í blæstri og sjötta sæti
í einstaklingskeppninni.
Úrslitin í mótinu urðu þessi:
Galagreiðsla:
1. Inga Maj Bohman 83 stig,
Svíþjóð, 2. Aud Maehre Haugen 82
stig, Noregi, 3. Seija Haanpáa 81
stig, Finnlandi, 4. Alf Johan Fjeld
80 stig, Noregi, Guðrún Sverris-
dóttir 80 stig, íslandi, Guðfinna
Jóhannsdóttir 80 stig, íslandi, -7.
Unni Cosma 79 stig, Noregi, 8.
Dóróthea Magnúsdóttir, 78 stig,
íslandi, Milja Nurmi 78 stig, Finn-
landi, 10. Anna G. Jónsdóttir 77
stig, fslandi.
Daggreiðsla:
1. _ Dóróthea Magnúsdóttir 87
stig, íslandi, 2. Unni Cosma 85 stig,
Noregi, 3. Aud Maehre Haugen 84
stig, Noregi, 4. Ulla-Britt Hedin 83
stig, Svíþjóð, 5. Guðfinna Jóhanns-
dóttir 80 stig, íslandi, 6. Inga Maj
Bohman 79 stig, Svíþjóð, Alf Johan
Fjeld, 79 stig, Noregi, 8. Sólveig
Leifsdóttir 74 stig, íslandi, 9. Jan
Frá keppninni
Franch 73 stig, Noregi, 10.
Andersen, 72 stig, Noregi.
Alf
Blástur:
1. Ulla Britt Hedin 89 stig, 2.
Unni Cosma 83 stig, 3. Guðfinna
Jóhannsdóttir 82 stig, 4. Dóróthea
Magnúsdóttir 81 stig, 5. Aud
Maehre Haugen 81 stig, 6. Inga
Maj Bohman 80 stig, 7. Anna G.
Jónsdóttir 77 stig, 8. Seija Haanpáá
77 stig, 9. Alf Johan Fjeld, 10
Gunilla Andersson.
Samanlagt í ein-
staklingskeppni:
1. Unni Cosma 247 stig, 2. Aud
„BI0NDA“
WILKENS
♦♦♦
BSF
Maehre Haugen 247 stig, (þar sem
stig em jöfn ræður hver er hærri
í daggreiðslu), 3. Dóróthea Magn-
úsdóttir 246 stig, 4. Ulla Britt
Hedin 246 stig, 5. Inga Maj Boh-
man 242 stig, 6. Guðfinna Jóhanns-
dóttir 242 stig, 7. Alf Johan Fjeld
235 stig, 8. Seija Haanpáá, 9. Milja
Nurmi 224 stig, 10. Sólveig Leifs-
dóttir 223 stig, 11. Anna Guðrún
Jónsdóttir 222 stig, 12. Guðrún
Sverrisdóttir 221 stig.
Borð-
viftur