Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
deildinni bætti hann svo við árið
1918, Listiðnaðarsafni, og er ekki
vitað til þess að hann hafi haft leyfi
stjómvalda til þessa. í Ljósmynda-
og prentmyndasafn skráði hann
meðal annars 13 grafísk verk úr
stofngjöf safnsins.
í upphafi 20. aldar var hafín
bygging Safnahússins við Hverfis-
götu og skyldi það rúma öll söfn
landsins; Landsbókasafn, Þjóð-
skjalasafn og Fomgripasafn, auk
Listasafnsins. Árið 1909 var bygg-
ingin fullgerð en þá kom í ljós að
ekki var rúm fyrir Listasafnið og
var það því áfram í Alþingishúsinu.
Listasafn ríkisins
fram í sviðsljósið og barst fyrsta
íslenska höggmyndin árið 1902.
Var það mynd Einars Jónssonar,
Útlagar.
Verk voru ekki keypt til safnsins
fyrr en árið 1915 að fimm myndir
eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S.
Kjarval og Þórarin B. Þorláksson
voru keyptar fyrir fé frá rikinu.
Hluti Þjóðminjasafns
Allt fram til ársins 1915 var
Listasafn íslands sjálfstæð stofnun
en þá fól Alþingi Matthíasi Þórðar-
syni, þjóðminjaverði, umsjón allra
málverka í eigu Alþingis eða ríkis.
Og samkvæmt tillögu þjóðminja-
varðar var í janúar 1916 ákveðið að:
„Listasafn íslands, hér undir telst
málverkasafn Iandsins og önnur
listaverk sem landið á, skal vera <
undir umsjón þjóðmenjavarðar og
vera ein deild af Þjóðmenjasafninu.
Öll listaverk, sem landið síðar kann
að eignast, skulu jafnóðum lögð til
listasafnsins, sem deilist í tvær
undirdeildir, málverkasafn oghögg-
myndasafn. “
Þá var enginn starfsmaður til að
Ljósmynd/Liataaafn fslands
Björn Bjamarson, stofnandi
Listasafnsins.
skrásetja þær myndir sem safninu
bámst eða þær sem fyrir vom en
ær vom orðnar á þriðja hundrað.
árslok 1915 hóf Matthías að skrá
safnið sem hafði síðast verið skráð
28 ámm áður, árið 1887. Skrá hans
birtist árið 1920 og þar skiptir hann
safninu ekki í tvær deildir eins og
lög kváðu á, heldur þijár; Málverka-
safn, Höggmyndasafn og Ljós-
mynda- og prentmyndasafn. Fjórðu
Árið 1928 samþykkti Alþingi lög
um Menntamálaráð og Menningar-
sjóð og var aðalfmmkvöðull þeirra
Jónas Jónsson frá Hriflu, þáverandi
dóms- og kirkjumálaráðherra.
í lögunum um Menntamálaráö
segir að hlutverk þess sé að kaupa
listaverk fyrir það fé sem til þess
sé veitt á fjárlögum og að hafa
yfimmsjón með listaverkasafni
landsins og undirbúa byggingu
listasafns. Tekjustofn Menningar-
sjóðs skyldi vera allar tekjur af
seldu áfengi sem væri flutt ólöglega
til landsins og skyldi hluta þeirra
varið til kaupa á listaverkum.
Með hinum nýju lögum var Lista-
safnið sett undir beina stjóm
Menntamálaráðs og hlaut þar með
nokkurt sjálfstæði að nýju. Nafni
þess var breytt í Listasafti ríkisins
en Matthíasi Þórðarsyni eftir sem
áður falin umsjón þess og hélt hann
því starfi allt til ársins 1950.
Hin nýja skipan mála hafði þó
engin áhrif á húsnæðismál safnsins
sem vom í miklum ólestri. Mikið
af verkum safnsins var í geymslu
í Amarhvoli, en töluverður hluti
þeirra var þó áfram til sýnis í Al-
þingishúsinu. Þá vom fáein verk-
anna til sýnis i Safnahúsinu við
Hverfisgötu meðan Þjóðminjasafnið
var þar til húsa.
Sá háttur hafði komist á, að lána
verk úr safninu og jók Menntamála-
ráð þau útlán til mikilla muna.
Vom verkin send í skóla og aðrar
ríkisstofnanir og er ekki trútt um
að sum þeirra hafi lent á einkaheim-
ilum. Vegna þessa reyndist Matt-
híasi oft erfitt að fylgjast með því
hvaða listaverk Menntamálaráð
keypti, því sum þeirra vom send
jafnharðan í útlán og fékk hann
þau aldrei í hendur til skráningar.
Fyrir kom að verk vom greidd en
aldrei afhent safninu og einnig
heimilaði Menntamálaráð að gefa
tvö stór verk úr safninu. Enn hefur
Listasafninu ekki tekist að inn-
heimta öll þau verk er vom lánuð
út á þessum ámm.
Því hefur verið um kennt að
Menntamálaráð hafi verið pólitískt
skipað og sumir sem í því hafí ráð-
ið hafi borið takmarkað skynbragð
á myndlist. Á því vom þó undan-
tekningar og má þar nefna þau
Ingibjörgu H. Bjamason, alþingis-
Listasafn íslands fékk inni í nýbyggingu Þjóðminjasafns íslands 1950.
LJ68mynd/Þjóðmir\ja8afn íslands
Ljóamynd/Þjóðminjasafn íslands
Fyrstu 66 árin var safnið í Alþingishúsinu sem þá var nýbyggt.
Ágrip af sögu
Listasafns
Islands
NÝ OG glæsileg
húsakynni Listasafns
íslands á Fríkirkjuvegi 7
verða tekin í notkun
næstkomandi laugardag,
30. janúar. Safnið heldur
upp á 104 ára afmæli sitt
síðar á þessu ári og því
er ekki úr vegi að rifja
upp helstu viðburði í
langri sögu og minnast
aðeins þeirra mörgu sem
hafa unnið ómetanlegt
starf í þágu þess.
Listasafn íslands var stofnað í
Kaupmannahöfn í október 1884 og
var aðalfrumkvöðull að stofnun
þess Bjöm Bjamarson, aðstoðar-
maður fógeta, sem síðar varð
alþingismaður og sýslumaður í
Dalasýslu. Ekki er vitað með vissu
hveijir vom meðstofnendur hans
en talið er að meðal þeirra hafi
verið Edwald J. Johrisen, læknir frá
Húsavík. /
Bjöm ritsýrði og gaf út mánaðar-
ritið Heimdall árið 1884. í júlíhefti
ritsins hvatti hann til stofnunar
olíumyndasafns þar sem fólk gæti
notið myndlistar. Sagði þar m.a.:
„Söfnin eru ekki aðeins til skemmt-
unar, heldur einnig nauðsynleg og
alveg ómissandi ef vísindi og fagrar
Iistir eiga að blómgast..."
Bjö'm lét ekki sitja við orðin tóm
og safnaði um 40 olíumálverkum
eftir danska listamenn auk nokk-
urra verka eftir norska, sænska og
austurríska málara. Þau urðu að
hluta til stofn safnsins en að auki
bámst því meðal annars fjögur verk
frá Kristjáni konungi IX og Friðriki
krónprinsi; 12 grafísk verk og ein
höggmynd eftir Norðmanninn Olav
Olayson Glosimodt.
Árið 1887 fólu forsetar Alþingis
umsjónarmanni sínum, Jónasi Jóns-
syni, að gera skrá yfir verk Lista-
safnsins og teljast þau verk, sem
þar em upp talin, stofn safnsins.
Einungis eitt íslenskt verk var þar
á meðal, andlitsmynd Sigurðar Guð-
mundssonar af Bimi Gunnlaugs-
syni. Á þeirri tíma var íslensk
samtímalist vart til og er það skýr-
ingin á fæð íslenskra verka á fyrstu
áram safnsins.
Listasafninu var fljótlega komið
fyrir í hinu nýbyggða Alþingishúsi
við Austurvöll og bættist því fjöldi
gjafa á sínum fyrstu ámm. Helgi
Sigurðsson (1815-1888) prestur á
Melum ánafnaði safninu rúmlega
40 málverk og teikningar eftir sjálf-
an sig. Árið 1889 sendi Thorvald-
sensafnið í Kaupmannahöfn safninu
66 grafísk verk gerð eftir högg-
myndum Bertels Thorvaldsens, þar
af átta eftir hann sjálfan, og árið
1895 barst safninu stærsta gjöfín
til þessa, 28 olíu- og vatnslitamynd-
ir úr dánarbúi Edvalds J. Johnsen
sem hann safnaði í Danmörku.
Um aldamótin fóm íslenskir
listamenn að koma meira og meira
Eðli listasafna er
að stækka við sig