Morgunblaðið - 28.01.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
55
L
Þessir hringdu . .
Mokið snjóinn af
gangstéttunum
Helga hringdi:
„ Hvers vegan er snjórinn ekki
mokaður af gangstéttunum eins
og af götum? Hvers eiga þeir að
gjalda sem að eiga ekki bíla? Það
er alltaf mokað fyrir bílaeigendur
og snjónum víða rutt uppá gang-
stéttir svo illmögulegt er þar að
ganga þar. Nú er ekki hægt að
bera við peningaleysi hjá
Reykjavíkurborg eftir því sem
maður les í blöðunum."
Kjötbúr Péturs -
verslun til
fyrirmyndar
Viktoría Guðmundsdóttir -
hringdi:
„Fyrir fáum dögum keypti ég
kjötvörur í hinni ágætu verslun
Kjötbúr Péturs Laugavegi 2. Þeg-
ar heim er komið líkaði mér ekki
varan og fór ég með hluta af
henni í búðina aftur. Þar hitti ég
eigandann sem var mér ekki alveg
samdóma en sagði sjálfsagt að
borga mér út vöruna sem hann
og gerði með ljúfu geði. Og það
sem meira var að hann bauð mér
að koma með það sem ég hafði
skilið eftir heima og sagðist vilja
endurgreiða það, sem hann líka
gerði næsta dag. Þessi kaup-
maður er til fyrirmypdar og kann
sitt fag. Við svona verslanir er
gott að eiga viðskipti."
Fuglakornið of
gróft
Anna Einarsdóttir hringdi:
„Ég er ekki ánægð með
íuglakomið sem Katla hefur
framleitt að undanfömu þar sem
það virðist vera of gróft. Smáfugl-
amir tína aðeins úr því og skilja
það grófasta eftir og nýtist kornið
því illa."
Aukum umfjöllun
um verðlagsmál
Þorsteinn Jónsson hringdi:
„Ég vil þakka Kristínu Kvaran
fyrir góðan þátt um neytendamál
á Stöð 2 þar sem hún hefur verið
með verðkannanir á ýmsum
neysluvörum. Almenningur hefur
sennilega meira gagn af því að
verlagi sé haldið niðri en kaup-
hækkunum og umfjöllun fjölmiðla
um verðlagsmál veitir aðhald og
skerpir verðskyn almennings. Ég
tel að fjölmiðlamir hafí staðið sig
vel hvað verðlagsmál varðar að
undanfömu en gjaman mætti
vera meira um verðkannanir og
umfjöllun um verðlagsmál.
Ég er ánægður með þá raun-
hæfu kjarasamninga sem gerðir
voru á ísafírði fyrir skömmu því
þeir verkja vonir um að unnt verði
að halda verðbólgunni niðri. Og
takist að draga úr verðbólgu er
það áreiðanlega besta kjarabótin
almenningi til handa.“
Filmusafn
Kaldals
Þóra hringdi:
„Hvert er hægt að snúa sér vegna
mjmda sem teknar voru fyrir um
það bil 15 árum á ljósmyndastofu
Kaldals. Ég heyrði einhvertíma
að einhver aðili hefði tekið filmu-
safnið að sér en man ekki lengur
hver það var. Væri ég þakklát ef
einhver gæti upplýst mig um þetta
en ég hef síma 687264.“
Regnhlíf
Regnhlíf, í tveimur gráum litum
og einum rauðum, tapaðist
nokkru fyrir jól líklega á bílaplan-
inu milli Hafnarstrætis og
Tryggvagötu. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 687264.
Kettlingur
Grábröndóttur hálfstálpaður
kettlingur, gulbröndóttur og
hvítur á trýni og bringu, kom í
hús við Digranesveg í Kópavogi
fyrir nokkru. Eigandi hans er
beðinn að hringja í síma 40076 á
kvöldin eða síma 685000 að deg-
,inum.
Gullúr
Gullúr með gullkeðju tapaðist
á leiðinni frá Starhaga að Bauga'-
nesi hinn 20. janúar. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 19074. Fundarlaun.
Víkverji skrifar
Sumar þær sögur, sem Víkvetji
heyrir um erfíðleika fólks við
að ná rétti sínum, eru með ólíkind-
um. Víkveiji hefur sagt nokkrar
sögur af þessu tagi og reyndar sjálf-
ur reynt ýmislegt á þessu sviði.
Eftirfarandi sögu af blússunni gqðu
fékk Víkveiji hjá kunningjakonu
sinni og er sagan gott dæmi um
þá fyrirhöfn, sem fólk getur haft
af því að ná rétti sínum í litlu og
einföldu máli.
Sagan hefst á jólum, þegar
heimasætan fær dýrindisblússu í
jólagjöf. Segir svo ekki meira af
blússunni það árið. En á nýju ári
er farið með flíkina í hreinsun og
þegar hún er sótt kemur í ljós, að
svört rönd á kraganum hefur gefið
lit.
Á flíkinni var merki um að óhætt
væri að hreinsa hana. Eigandi efna-
laugarinnar varð mjög vandræða-
legur, þegar honum var bent á
skemmdina, og taldi af og frá, að
hún væri sér að kenna. Benti hann
blússuéigandanum á að snúa sér til
verzlunarinnar, þar sem flíkin var
keypt. Þar fengust þau svör, að
málið yrði kannað. Verzlunareig-
andinn ætlaði að ráðfæra sig við
eigendur annarrar efnalaugar, sem
hann treysti, og sagðist myndu
hringja að því loknu. Þegar blússu-
eigandann var farið að lengja eftir
símtalinu hringdi hann í verzlunar-
eigandann. Sá hafði þá ekkert gert
f málinu og sagði reyndar, að það
væri ekki í sínum verkahring að
standa í svona erindrekstri. Hann
hefði ekki selt gallaða vöru, heldur
lægju mistökin hjá efnalauginni,
sem hreinsaði blússuna, og þangað
skyldi eigandinn sækja sinn rétt.
Samtalinu lauk þó á þann veg, að
verzlunareigandinn lofaði að gera
gangskör að því að ræða við sinn
hreinsunarsérfræðing og skyldi
sfðan hafa samband. Það loforð var
svikið sem fyrr og hringdi kaupand-
inn þá sjálfur. Nú hafði verzlunar-
eigandinn náð tali af sérfræðingi
sínum og sagði sá, að skemmdin á
blússunni væri hinni efnalauginni
að kenna. Sá galli var þó á, að
þetta álit var ekki hægt að fá skjal-
fest og var því borið við, að slík
plögg væru miður vinsælir pappírar
og svo gætu menn líka svarað fyrir
sig með álitsgerðum um handvömm
hinna. Það var því ekki hægt að
fá skriflega umsögn til að leita rétt-
ar síns hjá efnalauginni, þar sem
blússan var hreinsuð, en hins vegar
sagði verzlunarstjórinn, að þetta
óskrifaða álit sýknaði hann af öllum
kröfum kaupandans.
XXX
Kunningi Víkveija lagðist nú
undir feld. Þar datt hann ofan
á þá lausn að hafa samband við
Neytendasamtökin. Þar sögðu
menn, að auðvitað ætti verzlunar-
eigandinn að sinna þessu máli,
annaðhvort sanna mistök á efna-
laugina eða _ bæta blússuna að
öðrum kosti. í leiðinni fengust þar
upplýsingar um, að algengt væri
að föt færu illa í hreinsun vegna
ónógra upplýsinga seljenda eða
rangra merkinga.
Nú var enn og aftur haft sam-
band við verzlunareigandann og
vitnað til Neytendasamtakanna.
Hann varð mjög undrandi yfír því
að það væri í hans verkahring að
koma þessu máli á hreint, en lofaði
bót og betrun. Á endanum komst
hann að samkomulagi við efnalaug-
ina, þar sem blússan var hreinsuð,
og nú loksins fékk kaupandinn tjón
sitt bætt. Þetta strið stóð í þijár
vikur.
Reyndar lét eigandi eftialaugar-
innar þess getið í jsamtali við
heimildarmann Víkveija, að það
yrði að koma til prófmáls af þessu
tagi, þar sem of mikið væri orðið
um það, að efnalaugar lentu í því
að bæta gallaðan fatnað, sem verzl-
animar ættu með réttu að bæta
kaupendum.
Hjá Neytendasamtökunum feng-
ust þær upplýsingar, að ef hvorki
seljandi né efnalaug tækju ábyrgð-
ina á sig í máli sem þessu, þá gæti
neytandinn fengið málið rannsakað
og úrskurð í þvf. Sú leið tæki hins
vegar langan tíma og kostaði fé.
Og í þessu tiltekna máli er allt eins
líklegt, að blússan hefði verið kom-
in úr tízku, þegar málinu loksins
hefði verið lokið.
XXX
Einhvem tíma hafði Víkveiji orð
á því að það gæti stundum
verið erfítt að treysta heimildum,
þótt ömggar teldust, og nefndi
dæmi úr fréttum Morgunblaðsins.
Það má því e.t.v. segja að það hafi
komið vel á vondan, þegar Laugar-
dags-Víkveiji féll sjálfur í þá gryfju
að telja sig hafa heimildir fyrir sölu-
tölum í lægri kantinum hjá Iðunni
á bókum Hannesar Péturssonar og
Þorsteins frá Hamri. í ljós kemur
að Víkveiji hefur þar vaðið villu og
reyk. Ekki má þó skilja þessi skrif
Víkveija á þann veg að hann hafí
ætlað að koma höggi á þessa ágætu
höfunda — heldur þvert á móti.
Víkveija þótti sem þær sölutölur
sem hann hafði heyrt varðandi
bækur Hannesar og Þorsteins bentu
til þess að ekki fengju okkar ágæt-
ustu höfundar alltaf þá athygli sem
þeir verðskulduðu. En nú er sem
sagt annað komið á daginn, enda
þótt fyrir liggi að ljóðabækur al-
mennt seljist ekki eins vel og ætla
má hjá ljóðelskri þjóð. En Víkveija
er ljúft að biðja bæði höfundana
og forlagið forláts á því að hafa
hér farið méð rangt mál.
© 1985 Universal Press Syndicate
nHefur pcr nokkurn t'iman komié til hug-
ar ab scrdOL mati'nn þ'mn -t'il Afnku ?"
Ást er...
... að æfa saman.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all ríghta resarvad
° 1987 Los Angeles Times Syndicate
Mánaðarkaupið þitt skiptir
ekki máli, heidur hin dag-
iegu útgjöld mín, skilurðu
það?
Með
morgiinkaffinu
otllllllUIUiriIllllllllimillinn-
Einhver jólasveinanna hef-
ur verið í kjallaranum og
gieymt húfunni sinni. Er
hægt að gera eitthvað í
málinu?
HÖGNIHREKKVÍSI
,,EF pö MEFPIR H ALP1E> ÞlS FRlA GARplNUM HANS
HEFÐI HANN EK-RI SMÍ&AB Si/ONA <3IRE>IN6U.''