Morgunblaðið - 28.01.1988, Side 56
56
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
HANDKNATTLEIKUR / VESTUR-ÞÝSKALAND
Forseti Essen segir Jóhann Inga ekki hafa verið rekinn:
„Ég sem forseti hlýtaðgrípa
til aðgerða þegar illa gengur“
- sagði Klaus Schorn í samtali við Morgunblaðið í gær
KLAUS Schorn, forseti vest-
ur-þýska handknattleiksfél-
agsins Tusem Essen, sagðist
í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki líta svo á að Jóhann
Ingi Gunnarsson hafi verið
rekinn frá félaginu. Jóhann
Ingi hætti störfum hjá Tusem
á mánudaginn, eins og kom
fram í Morgunblaðinu á
þriðjudag.
Schom svaraði í gær nokkrum
spumingum blaðamanns símleiðis
og fer samtalið hér á eftir:
Hver voru tildrög þess að Jó-
hann Ingi Gunnarsson yfirgaf
félagið?
„Við réðum Jóhann sem þjálfara
fyrir félag með 3.000 félagsmenn
og ekki einungis sem þjálfara
fyrstu deildar liðsins. Þessu vilja
menn gleyma. Við buðum honum
að halda áfram sem þjálfari fé-
lagsins með annað starfsvið en
áður og sömu launakjör en því
hafnaði hann. Jóhanni var boðið
þetta vegna þess að hann hafði
ekki nógu góð tök á liðinu."
Samt urðuð þið meistarar í
fyrra?
„Það breytir því ekki að núna
gengur illa."
En má ekki kenna um meiðslum
meðal leikmanna á þessu
keppnistímabili?
„Handbolti er starf nú á dögum
og því miður lítið annað. í starfí
verður maður að sjá til þess að
vel gangi. En rétt er að illa hefur
gengið að halda liðinu saman, ég
nefni sem dæmi að Alfreð Gísla-
son var Qarverandi 140 daga á
síðasta ári.“
En hvenær var fyrst hugleitt
að reka Jóhann?
„Hann var alls ekki rekinn þó
Jóhann líti svo á málið. Hann
heldur launum sínum og íbúð og
bíl og síma og guð má vita hvað.
Við báðum hann að halda áfram
störfum hjá félaginu og það var
gert skriflega. Ég sem forseti fé-
lagsins hlýt að grípa til minna
ráðstafana þegar illa gengur. Og
fjölmiðlar í Vestur-Þýskarandi
hafa sýnt þessari ákvörðun fullan
skilning. Jóhann hafnaði okkar
tilboði og hafði áður gefíð í skyn
að hann hygðist taka að sér önn-
ur verkefni í Svíþjóð eða á íslandi.
Við vorum sammála um að hann
myndi hætta hjá félaginu í vor.
Og skiljanlegt var að hann skyldi
ekki sætta sig við að vera ekki
lengur þjálfari fyrstu deildar liðs.
Og hann e/ afbragðsþjálfari þegar
hann einbeitir sér að verkefninu."
Hvemig var samkomulag Jó-
hanns og leikmanna?
„Leikmenn voru ekki nógu án-
ægðir með Jóhann en ég bendi á
að þeir voru heldur ekki sáttir við
Petre Ivanescu á sínum tíma, en
hann var hér þjálfari á undan
Jóhanni. Við getum ekki tekið svo
mikið mark á óskum þeirra."
Nú yfirgefur Alfreð Gíslason
félagið í vor. Hvemig hyggst
félagið fylla í hans skarð?
Morgunblaöiö/Skúli Unnar Sveinsson
Jóhann Ingl Qunnarsson og
Klaus Schom á meðan allt lék í lyndi
— þegar Tusem Essen varð vestur-
þýskur meistara á síðastliðnu vori.
„Alfreð og Jóhann eru báðir verð-
ugir fulltrúar íslenska handbolta-
skólans. Og ég var sá sem náði í
Alfreð. Hann er einstök persóna,
heiðarlegasti maður sem ég hef
kynnst á ferli mínum og hefur
verið ómissandi fyrir andann í lið-
inu. Við höfum ekki reynt að fínna
annan íslending í staðinn og það
væri líka sjálfsagt erfítt vegna
þátttöku ykkar í ólympíuleikun-
um,“ sagði Klaus Schom.
KORFUBOLTI
Pétur
skoraði
tólf
stig
Spurs tapaði gegn
Dallas Mavericks
PÉTUR Guðmundsson átti góð-
an leik með San Antonio Spurs
í fyrrakvöld er liðið mætti Dall-
as Mavericks í NBA deildinni
bandarísku. Pétur var inni á í
rúmar 20 mínútur, skoraði tólf
stig og tók fimm fráköst. Dallas
sigraði íleiknum, 128:111.
Pétur hefur náð að festa sig í
sessi að nýju og hann mun að
öllum líkindum byija inni á í næsta
leik, gegn Cleveland. Einn lykil-
manna San Antonio-liðsins, David
Greenwood, sem hefur verið í byij-
unarliðinu, er meiddur og mun
líklega ekki leika með næsta vikum-
ar. Líklegt er að Pétur taki sæti
hans í liðinu og byiji gegn Cleve-
land.
„Ég vonast til að verða í byijunar-
liðinu gegn Cleveland, enda gekk
mér ágætlega í síðasta leik,“ sagði
Pétur í samtali við Morgunblaðið.
„Við lékum ekki vel gegn Dallas
og áttum ekki möguleika, þrátt fyr-
ir að tölumar gefi ekki rétta mynd
af leiknum. En við mætum Cleve-
land í kvöld og ættum að getað
sigrað þá.
Við höfum misst marga leikmenn
vegna meiðsla, nú síðast annan
framheija okkar, Greenwood. Hann
er meiddur í hásinum og mér þykir
ólíklegt að hann verði meira með í
vetur. Hann hefur verið í byijunar-
liðinu og það er því laust pláss.
Okkur hefur gengið ágætlega og
eram í 8. sæti eins og er. Það
nægir okkur í úrslit, en við þurfum
þó að komast ofar. Fyrirkomulagið
'er þannig að liðið í 8. sæti mætir
liðinu í 1. sæti í riðlinum. Það er
Lakers og kannski ekki besti kost-
urinn ef við ætlum okkur að komast
áfram í úrslitum.
Utah er í 7. sæti og okkur vantar
lítið til að ná þeim, en næstu lið
em töluvert fyrir ofan okkur. Það
er þó engin ástæða til að örvænta,
keppnistímabilið er ekki einu sinni
hálfnað."
BADMINTON / B-ÞJÓÐIR
íslanski hópurinn fór keppti í Cardiff. Frá vinstri: Jóhann Kjartanson, þjálf-
ari, Njáll Eysteinsson, Hafdís Böðvarsdóttir, Jón Ziemsen, Óli B. Ziemsen, Bima
Petersen, Berta Finnbogadóttir, Sigríður Geirsdóttir, Karl Viðarsson og Sigríð-
ur M. Jónsdóttir, fararstjóri.
Island í 7. sæti í
EM unglingaliða
ÍSLAN D varð í 7. sæti af 13
þjóðum í Evrópukeppni ungl
ingalandsliða b-þjóða sem
fram fór í Cardiff í Wales 21.
til 24. þessa mánaðar.
Iriðlakeppninni vann íslenska
sveitin Frakka 4:3 en tapaði fyr-
ir Norðmönnum 2:5. Síðan var
spilað um 5.-8. sæti þar sem
íslensku unglingamir sigmðu Ung-
veija 4:3, töpuðu fyrir Finnum 2:5
og einnig fyrir Wales 2:5. Að sögn
Jóhanns Kjartanssonar, þjálfara
liðsins, er hann mjög ánægður með
árangurinn miðað við hve liðið er
ungt. Sagði hann baráttu og sigur-
vilja hafa einkennt leiki íslensku
keppendanna.
Njáll Eysteinsson og Óli B. Ziemsen
vöktu mikla athygli á mótinu fyrir
mjög góða frammistöðu og stóðu
sig best íslensku keppendanna. Þá
má geta þess að með í för var
Frímann Ferdinandsson, sem
dæmdi fyrir íslands hönd, og var
þetta í fyrsta skipti sem Island
sendir dómara á alþjóðlegt mót fyr-
ir utan Norðurlandamót.
ítiémR
FOLK
■ GEIRLAUG B. Geirlaugs-
dóttir hefur hafíð störf á skrifstofu
Fijálsíþróttasambands íslands.
Geirlaug er fymim spretthlaupari
úr Ármanni. Verður hún í fullu
starfí fram á haust og mun fyrst
of fremst sinna bréfaskriftum og
annari ritvinnsla.
■ ÓSKAR Helgason, leikmaður
1. deildarliðs FH í handknattleik,
getur ekki Ieikið með FH-liðinu
gegpi ÍR á sunnudaginn. Hann
meiddist á baki í leik gegn Þór á
Akureyri. Óskar verður frá keppni
i hálfan mánuð. Óskar Armanns-
son meiddist einnig á Akureyri.
Hann fékk högg á hné. Tveir leik-
menn FH vom fyrir á sjúkralista.
Þeir Valgurður Valgarðsson og
Hálfdán Þórðarson.
■ DERBY hefur áhuga á að
kaupa Imre Varadi, sem er á sölu-
lista hjá Man. City. Varadi var
áður leikmaður með Newcastle,
Sheff. Wed., Sheff. Utd. og Ever-
ton.
■ BRUCE Grobbelaar, mark-
vörður Liverpool, lék með varaliði
félagsins gegn Derby á þriðjudags-
kvöldið. Kenny Dalglish sá
Grobbelaar, sem meiddist á fæti á
æfíngu fyrir stuttu, eiga góðan leik,
þegar Liverpool vann sigur, 3:0.
Það verður ekki ljóst fyrr en á
sunnudaginn hvort að Grobbelaar
veiji mark Liverpool í bikarleikn-
um gegn Aston Villa, eða hvort
að Michael Hooper, sem hefur
Geirlaug B. Qelrlaugsdóttlr og
Hafsteinn Óskarsson, framkvæmda-
stjóri FRÍ.
haldið markinu hreinu í síðustu fjór-
um leikjum, veiji markið.
■ RA Y Clemence, annar gamal-
kunnur markvörður, var einnig í
sviðsljósinu á þriðjudagskvöldið.
Clemence, sem hefur ekki getað
leikið með Tottenham frá því í
október, vegna meiðsla, lék með
varaliðinu gegn Chelsea. Totten-
ham vann sigur, 4:3. Clemence
fékk á sig tvö klaufamörk. Terry
Venebles, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, var á meðal áhorfenda.
Þegar hann var spurður um hvort
að Clemence væri tilbúinn til að
leika bikarleikinn gegn Port Vale,
sagði hann: „Þið verðið að tala við
Ray.“ Þegar blaðamenn spurðu
kappann, hvort hann væri tilbúinn
í slaginn, sagði hann: „Þið sáuð
hvað gerðist í leiknum." Clemence
var fljótur að láta sig hverfa eftir
leikinn - að sjálfsögðu vonsvikinn.
Hann stóðst ekki prófíð fyrir bikar-
leikinn.
FIMLEIKAR
Landslið valið eft-
ir nokkura ára hlé
FIMLEIKASAMBAND íslands
hefur valið landsliðshóp í fim-
leikum sem skipaður er sex
piltum og 6 stúlkum. Ekki
hefur verið landslið í fimleik-
um síðustu árin.
Landsliðshópinn skipa: Fjóla
Ólafsdóttir, Hlín Bjamadótt-
ir, Hanna Lóa Friðjónsdóttir, Lára
Hrafnkelsdóttir, Eva Úlla Hilm-
arsdóttir, Linda St. Pétursdóttir,
Guðjón Guðmundsson, Axel
Bragason, Jóhannes Niels Sig-
urðsson, Þorvarður Goi Valdim-
arsson, Kristján Stefánsson og
Bjöm Magnús Pétursson.
Verkefni landsliðsins em margvís-
leg, bæði hér á landi og erlendis,
og hafa sameiginlegar æfingar
þegar hafíst. Næsta stóra verk-
efni hjá FSÍ er þátttaka í norður-
landamótinu sem fram fer í
Finnlandi.
íslenska landsliðið í fimleikum ásamt stjómarmönnum FSf og þjálfurum.