Morgunblaðið - 28.01.1988, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 28.01.1988, Qupperneq 56
56 MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 HANDKNATTLEIKUR / VESTUR-ÞÝSKALAND Forseti Essen segir Jóhann Inga ekki hafa verið rekinn: „Ég sem forseti hlýtaðgrípa til aðgerða þegar illa gengur“ - sagði Klaus Schorn í samtali við Morgunblaðið í gær KLAUS Schorn, forseti vest- ur-þýska handknattleiksfél- agsins Tusem Essen, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki líta svo á að Jóhann Ingi Gunnarsson hafi verið rekinn frá félaginu. Jóhann Ingi hætti störfum hjá Tusem á mánudaginn, eins og kom fram í Morgunblaðinu á þriðjudag. Schom svaraði í gær nokkrum spumingum blaðamanns símleiðis og fer samtalið hér á eftir: Hver voru tildrög þess að Jó- hann Ingi Gunnarsson yfirgaf félagið? „Við réðum Jóhann sem þjálfara fyrir félag með 3.000 félagsmenn og ekki einungis sem þjálfara fyrstu deildar liðsins. Þessu vilja menn gleyma. Við buðum honum að halda áfram sem þjálfari fé- lagsins með annað starfsvið en áður og sömu launakjör en því hafnaði hann. Jóhanni var boðið þetta vegna þess að hann hafði ekki nógu góð tök á liðinu." Samt urðuð þið meistarar í fyrra? „Það breytir því ekki að núna gengur illa." En má ekki kenna um meiðslum meðal leikmanna á þessu keppnistímabili? „Handbolti er starf nú á dögum og því miður lítið annað. í starfí verður maður að sjá til þess að vel gangi. En rétt er að illa hefur gengið að halda liðinu saman, ég nefni sem dæmi að Alfreð Gísla- son var Qarverandi 140 daga á síðasta ári.“ En hvenær var fyrst hugleitt að reka Jóhann? „Hann var alls ekki rekinn þó Jóhann líti svo á málið. Hann heldur launum sínum og íbúð og bíl og síma og guð má vita hvað. Við báðum hann að halda áfram störfum hjá félaginu og það var gert skriflega. Ég sem forseti fé- lagsins hlýt að grípa til minna ráðstafana þegar illa gengur. Og fjölmiðlar í Vestur-Þýskarandi hafa sýnt þessari ákvörðun fullan skilning. Jóhann hafnaði okkar tilboði og hafði áður gefíð í skyn að hann hygðist taka að sér önn- ur verkefni í Svíþjóð eða á íslandi. Við vorum sammála um að hann myndi hætta hjá félaginu í vor. Og skiljanlegt var að hann skyldi ekki sætta sig við að vera ekki lengur þjálfari fyrstu deildar liðs. Og hann e/ afbragðsþjálfari þegar hann einbeitir sér að verkefninu." Hvemig var samkomulag Jó- hanns og leikmanna? „Leikmenn voru ekki nógu án- ægðir með Jóhann en ég bendi á að þeir voru heldur ekki sáttir við Petre Ivanescu á sínum tíma, en hann var hér þjálfari á undan Jóhanni. Við getum ekki tekið svo mikið mark á óskum þeirra." Nú yfirgefur Alfreð Gíslason félagið í vor. Hvemig hyggst félagið fylla í hans skarð? Morgunblaöiö/Skúli Unnar Sveinsson Jóhann Ingl Qunnarsson og Klaus Schom á meðan allt lék í lyndi — þegar Tusem Essen varð vestur- þýskur meistara á síðastliðnu vori. „Alfreð og Jóhann eru báðir verð- ugir fulltrúar íslenska handbolta- skólans. Og ég var sá sem náði í Alfreð. Hann er einstök persóna, heiðarlegasti maður sem ég hef kynnst á ferli mínum og hefur verið ómissandi fyrir andann í lið- inu. Við höfum ekki reynt að fínna annan íslending í staðinn og það væri líka sjálfsagt erfítt vegna þátttöku ykkar í ólympíuleikun- um,“ sagði Klaus Schom. KORFUBOLTI Pétur skoraði tólf stig Spurs tapaði gegn Dallas Mavericks PÉTUR Guðmundsson átti góð- an leik með San Antonio Spurs í fyrrakvöld er liðið mætti Dall- as Mavericks í NBA deildinni bandarísku. Pétur var inni á í rúmar 20 mínútur, skoraði tólf stig og tók fimm fráköst. Dallas sigraði íleiknum, 128:111. Pétur hefur náð að festa sig í sessi að nýju og hann mun að öllum líkindum byija inni á í næsta leik, gegn Cleveland. Einn lykil- manna San Antonio-liðsins, David Greenwood, sem hefur verið í byij- unarliðinu, er meiddur og mun líklega ekki leika með næsta vikum- ar. Líklegt er að Pétur taki sæti hans í liðinu og byiji gegn Cleve- land. „Ég vonast til að verða í byijunar- liðinu gegn Cleveland, enda gekk mér ágætlega í síðasta leik,“ sagði Pétur í samtali við Morgunblaðið. „Við lékum ekki vel gegn Dallas og áttum ekki möguleika, þrátt fyr- ir að tölumar gefi ekki rétta mynd af leiknum. En við mætum Cleve- land í kvöld og ættum að getað sigrað þá. Við höfum misst marga leikmenn vegna meiðsla, nú síðast annan framheija okkar, Greenwood. Hann er meiddur í hásinum og mér þykir ólíklegt að hann verði meira með í vetur. Hann hefur verið í byijunar- liðinu og það er því laust pláss. Okkur hefur gengið ágætlega og eram í 8. sæti eins og er. Það nægir okkur í úrslit, en við þurfum þó að komast ofar. Fyrirkomulagið 'er þannig að liðið í 8. sæti mætir liðinu í 1. sæti í riðlinum. Það er Lakers og kannski ekki besti kost- urinn ef við ætlum okkur að komast áfram í úrslitum. Utah er í 7. sæti og okkur vantar lítið til að ná þeim, en næstu lið em töluvert fyrir ofan okkur. Það er þó engin ástæða til að örvænta, keppnistímabilið er ekki einu sinni hálfnað." BADMINTON / B-ÞJÓÐIR íslanski hópurinn fór keppti í Cardiff. Frá vinstri: Jóhann Kjartanson, þjálf- ari, Njáll Eysteinsson, Hafdís Böðvarsdóttir, Jón Ziemsen, Óli B. Ziemsen, Bima Petersen, Berta Finnbogadóttir, Sigríður Geirsdóttir, Karl Viðarsson og Sigríð- ur M. Jónsdóttir, fararstjóri. Island í 7. sæti í EM unglingaliða ÍSLAN D varð í 7. sæti af 13 þjóðum í Evrópukeppni ungl ingalandsliða b-þjóða sem fram fór í Cardiff í Wales 21. til 24. þessa mánaðar. Iriðlakeppninni vann íslenska sveitin Frakka 4:3 en tapaði fyr- ir Norðmönnum 2:5. Síðan var spilað um 5.-8. sæti þar sem íslensku unglingamir sigmðu Ung- veija 4:3, töpuðu fyrir Finnum 2:5 og einnig fyrir Wales 2:5. Að sögn Jóhanns Kjartanssonar, þjálfara liðsins, er hann mjög ánægður með árangurinn miðað við hve liðið er ungt. Sagði hann baráttu og sigur- vilja hafa einkennt leiki íslensku keppendanna. Njáll Eysteinsson og Óli B. Ziemsen vöktu mikla athygli á mótinu fyrir mjög góða frammistöðu og stóðu sig best íslensku keppendanna. Þá má geta þess að með í för var Frímann Ferdinandsson, sem dæmdi fyrir íslands hönd, og var þetta í fyrsta skipti sem Island sendir dómara á alþjóðlegt mót fyr- ir utan Norðurlandamót. ítiémR FOLK ■ GEIRLAUG B. Geirlaugs- dóttir hefur hafíð störf á skrifstofu Fijálsíþróttasambands íslands. Geirlaug er fymim spretthlaupari úr Ármanni. Verður hún í fullu starfí fram á haust og mun fyrst of fremst sinna bréfaskriftum og annari ritvinnsla. ■ ÓSKAR Helgason, leikmaður 1. deildarliðs FH í handknattleik, getur ekki Ieikið með FH-liðinu gegpi ÍR á sunnudaginn. Hann meiddist á baki í leik gegn Þór á Akureyri. Óskar verður frá keppni i hálfan mánuð. Óskar Armanns- son meiddist einnig á Akureyri. Hann fékk högg á hné. Tveir leik- menn FH vom fyrir á sjúkralista. Þeir Valgurður Valgarðsson og Hálfdán Þórðarson. ■ DERBY hefur áhuga á að kaupa Imre Varadi, sem er á sölu- lista hjá Man. City. Varadi var áður leikmaður með Newcastle, Sheff. Wed., Sheff. Utd. og Ever- ton. ■ BRUCE Grobbelaar, mark- vörður Liverpool, lék með varaliði félagsins gegn Derby á þriðjudags- kvöldið. Kenny Dalglish sá Grobbelaar, sem meiddist á fæti á æfíngu fyrir stuttu, eiga góðan leik, þegar Liverpool vann sigur, 3:0. Það verður ekki ljóst fyrr en á sunnudaginn hvort að Grobbelaar veiji mark Liverpool í bikarleikn- um gegn Aston Villa, eða hvort að Michael Hooper, sem hefur Geirlaug B. Qelrlaugsdóttlr og Hafsteinn Óskarsson, framkvæmda- stjóri FRÍ. haldið markinu hreinu í síðustu fjór- um leikjum, veiji markið. ■ RA Y Clemence, annar gamal- kunnur markvörður, var einnig í sviðsljósinu á þriðjudagskvöldið. Clemence, sem hefur ekki getað leikið með Tottenham frá því í október, vegna meiðsla, lék með varaliðinu gegn Chelsea. Totten- ham vann sigur, 4:3. Clemence fékk á sig tvö klaufamörk. Terry Venebles, framkvæmdastjóri fé- lagsins, var á meðal áhorfenda. Þegar hann var spurður um hvort að Clemence væri tilbúinn til að leika bikarleikinn gegn Port Vale, sagði hann: „Þið verðið að tala við Ray.“ Þegar blaðamenn spurðu kappann, hvort hann væri tilbúinn í slaginn, sagði hann: „Þið sáuð hvað gerðist í leiknum." Clemence var fljótur að láta sig hverfa eftir leikinn - að sjálfsögðu vonsvikinn. Hann stóðst ekki prófíð fyrir bikar- leikinn. FIMLEIKAR Landslið valið eft- ir nokkura ára hlé FIMLEIKASAMBAND íslands hefur valið landsliðshóp í fim- leikum sem skipaður er sex piltum og 6 stúlkum. Ekki hefur verið landslið í fimleik- um síðustu árin. Landsliðshópinn skipa: Fjóla Ólafsdóttir, Hlín Bjamadótt- ir, Hanna Lóa Friðjónsdóttir, Lára Hrafnkelsdóttir, Eva Úlla Hilm- arsdóttir, Linda St. Pétursdóttir, Guðjón Guðmundsson, Axel Bragason, Jóhannes Niels Sig- urðsson, Þorvarður Goi Valdim- arsson, Kristján Stefánsson og Bjöm Magnús Pétursson. Verkefni landsliðsins em margvís- leg, bæði hér á landi og erlendis, og hafa sameiginlegar æfingar þegar hafíst. Næsta stóra verk- efni hjá FSÍ er þátttaka í norður- landamótinu sem fram fer í Finnlandi. íslenska landsliðið í fimleikum ásamt stjómarmönnum FSf og þjálfurum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.