Morgunblaðið - 10.03.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988
9
W&Bf
íKoWÞc
toiabú1
Slililpllftahl finll
hf., Revkjavík
fe»s
^TU
'"■r
Nfó^S^
SÖLUGÉNGI VERÐBRÉFA ÞANN 10. MARS 1988
EININGABRÉF 1 2.699,-
EININGABRÉF 2 1.571,-
EININGABRÉF 3 1.701,-
LÍFEYFISBRÉF 1.357,-
KAUPtHNG HF
Húsi verslunarinnar. sími 68 69 88
\\
«\r,
%. AfW 'fy
VÍSUM TILVEGAR
ÁVERÐBRÉFA
MARKAÐINUM
Kaup, sala og endurfjárfesting.
Kaupþing.
Miðstöð verðbréfaviðskiptanna.
Ferðabann og viðskiptabann
í Staksteinum í dag er hugað að tveimur þáttum í samskiptum
ríkja. í fyrsta lagi er vitnað í grein Einars Þ. Guðjohnsens um
bann við skipulögðum ferðum til Suður-Afríku. í öðru lagi er
rætt almennt um þann vanda, sem kemur upp hvað eftir ann-
að, og snýst um hvort setja eigi bönn á viðskipti við þjóðir eða
fyrirtæki vegna framgöngu þeirra og stjórnmálastefnu. í því efni
er stutt í tvískinnunginn og má þar til að mynda nefna þær
miklu umræður, sem hafa orðið um vopnasölu Svía.
Ferðabann
I Morgunbladsgrein í
gær ræðir Einar Þ. Guð-
johnsen, sem lengi hefur
starfað að ferðamálum,
um bann við skipulögð-
um ferðum til Suður-
Afríku og segir;
„Það undarlega hefir
skeð hér, að utanríkis-
ráðherra hefir óskað eft-
ir því, að íslenskar ferða-
skrifstofur sendi ekki
hópa til Suður-Afríku
vegna vondu stjómarinn-
ar þar. Ein ferðaskrif-
stofa hefir þegar aflýst
ferð.
Hér erum við komin
út á ákaflega hættulega
braut, og ættum að Uta
vel á allar hliðar mála
áður en lengra er haldið.
Með þessu erum við að
viðurkenna í reynd, að
t.d. grænfriðungar geti
staðið að samskonar her-
ferðum gegn okkur af
þvi að þeir eru á móti
hvalveiðum.
Það er staðreynd, að
fijálsar ferðir landa á
milli eru einn mikilvæg-
asti þátturinn í að eyða
tortryggni og skapa
skilning þjóða á mÍUL
Aldrei má því leggja nein
stjómmálaleg höft eða
kvaðir á ferðamenn. Það
er ekki nein yfirlýsing
um stuðning við stefnur
stjómar einhvers lands
þó að við kjósum að ferð-
ast þar. Æskilegt ætti
jafnvel að vera að kynna
sér ástand og andrúms-
loft milliliðalaust þegar
maður ræðir við mann á
staðnum.
Fleiri hliðar em á
málum Sudur-Afríku og
ekki aðeins kúgun hvitra
á þeim svörtu. f landinu
em margir ættflokkar
svartra með ólíka siði og
tungumál. Sfn á milli
þurfa þeir jafnvel að
grípa til enskunnar og
blöndun er minni en milli
hvitra og svartra.
Alls staðar i nýfijáls-
um ríkjum Afríku hafa
svartir ættflokkar borist
á banaspjótum og fleiri
fallið og verið meiddir
en í Suður-Afrfku. Ein-
faldur, og f okkar augurn
sjálfsagður atkvæðisrétt-
ur, læknar þvi miður ekki
strax þessi mein.
Þá blandast einnig
heimsyfirráðastefnur
inn í málin, vegna gífur-
legra auðæfa i jörðu i
Suður-Afríku og
Namibíu. Meðal annars
þess vegna bíða Kúbu-
menn i viðbragðsstöðu í
Angóla ef eitthvað skyldi
losna um völd þar fyrir
sunnan.
Ef við eigum að láta
það eitt sfjóma ferðum
okkar, hvort við erurn
sammála eða mótfallin
stjómum landa, þá er
hætt við að þeim fari að
fækka löndunum, sem
við getum heimsótt sóma
okkar vegna.
Við íslendingar eigum
ekki að standa að neins-
konar viðskiptahömlum
gegn neinni þjóð. Við
getum mótmælt ýmsu og
reynt að hafa góð áhrif
en við eigum ekki að taka
okkur lögregluvald."
Viðskipta-
bann
Eins og kunnugt er
vinna hvalavinir viða um
lönd nú að þvf að fæla
fyrirtæki i þessum lönd-
um frá þvi að kaupa
íslenskan fisk. Grípa þeir
til ýmissa ráða svo sem
að hafa útblásna hvali við
staði, þar sem íslensk
matvæli em sýnd, eins
og sjá má á þeirri mynd,
sem fylgir Staksteinum í
dag og tekin var i Gauta-
borg á dögunum. f Lúx-
emborg hafa hvalavinir
tekið sig til og afskræmt
einkennismerki Flug-
leiða hf. væntanlega í því
skyni að fá fólk ofan af
þvi að kaupa sér farmiða
með vélum félagsins. Á
ferðakaupstefnum vinna
grænfriðungar að þvi að
sverta ísland í augurn
ferðaskrifstofa og þeirra
er sjá um að skipuleggja
ferðalög.
Viðskiptabam. í þeirri
mynd, sem hvalavinir
vilja að sett verði á ís-
iand, á meðan héðan em
stundaðar hvalveiðar,
sem þeim em ekki að
skapi, kemst vonandi
aldrei til framkvæmda.
Hitt er ljóst að neikvæð
auglýsingastarfsemi get-
ur ekki sfður haft áhrif
en iákvæð og enginn ef-
ast lengur um mátt aug-
lýsinganna i samtíman-
um. Það getur oft kostað
mikið, bæði peninga og
mannafla, að hreinsa af
sér óorð, sem óvinveittir
aðilar hafa komið á vöm,
fyrirtæki, einstakling
eða þjóð.
Eftir innrás Sovét-
manna i Afganistan og
valdatöku hersins f Pól-
landi vom uppi háværar
raddir um það á Vestur-
löndum, að setja bæri
viðskiptabann á Sovét-
ríkin og Pólland. Gripið
var til aðgerða, sem
stóðu aðeius skamma
hrið. Tilraunir til við-
skiptabanns á riki vegna
stjómmálastefnu eða
framgöngu stjómvald;i í
þessum ríkjum hafa
runnið út i sandinn. Skýr-
asta dæmið um þetta er
auðvitað Suður-Afríka.
Oft og tíðum sýnast
menn einnig fremur vera
að þjóna pólitískum hags-
munum heima fyrir held-
ur en í þeim Iöndum, sem
um er að ræða, þegar
þeir krefjast viðskipta-
banns. Deilumar verða
liður f hefðbundnu
pólitisku þrasi.
BV
Rafmagns
oghand-
lyftarar
Liprir og
handhægir.^ v
Lyftigeta:
500-2000 kíló.
Lyftihæö upp í
6 metra.
Mjóar aksturs-
leiðir.
Veitum fúslega
allar upplýsingar.
UMBODS OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍMI 6724 44