Morgunblaðið - 10.03.1988, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988
-4
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Byrjaðu aftur - með Guði
Eg er á þrítugsaldri og hef þegar gifet þrisvar
og skilið jafiioft. Eg þrái að lifa í skjóli fjölskyldu
en einhvern veginn hefiir það aldrei tekist. Hvað
á eg að taka til bragðs?
Guð skapaði þig og hann gaf okkur líka þessa stofnun sem heitir
hjónaband. Hann vill ekki að við misnotum þá dásamlegu gjöf. Hann
vill ekki heldur að þú haldir áfram að lifa í óróa og öryggisleysi.
Guð vill að þú komist að raun um hvaða áform hann hefur með líf
þitt og hjálpa þér til að átta þig á að þá fyrst er vert að lifa þegar
við lifum Kristi.
Því er það að eg vil byija á því að hvetja þig til að krjúpa á kné í
bæn. Játaðu fyrir Guði að þú hafir farið vegleysur um dagana og
syndgað gegn honum með því að hleypa honum hvergi að. Bjóð síðan
Jesú Kristi að koma inn í hjarta þitt og líf, að hann verði frelsari
þinn og drottinn, einmitt þinn. Ef við skeytum ekki um fyrirætlanir
Guðs um líf okkar verðum við óhamingjusöm. Hér er aðeins eitt sem
dugar og það er að við felum líf okkar Guði og látum stjómtaumana
í hans hendur. Við þurfum að iðrast syndanna og láta hann ráða
ferðinni.
Síðan þarftu að vaxa andlegum vexti. Það gerist þegar þú lest
orð Guðs, Biblíuna, og 'ferð að heimfæra kenningar hennar til lífs
þíns. Þú þroskast líka þegar þú biður Guð daglega, kemur til hans
með syndir þínar og ákallar hann um fyrirgefningu og biður hann
að leysa úr sérhveijum vanda.
Það er líka nauðsynlegt að þú kynnist öðru kristnu fólki sem
getur liðsinnt þér. Farðu í söfnuð þar sem Kristur er predikaður og
þér gefst tækifæri til að eiga samfélag við annað trúað fólk.
Hvers vegna legg eg áherslu á allt þetta? Vegna þess að þú þarft
að byija upp á nýtt og þú þarft að byija með Guði. Þú þarfnast
visku hans og þú þarft að verða betri manneskja fyrir kraft hans.
En það kunna að vera sérstakar ástæður sem ollu því hversu illa
þér hefur famast til þessa. Þú þarft að biðja Guð að ljúka upp aug-
um þínum svo að þú sjáir þær og gerir viðeigandi ráðstafanir. Það
er t.d. hugsanlegt að þú sért kona sem á erfítt mað að skilja aðra og
sjá þarfír þeirra. Kristur getur hjálpað þér með því að gefa þér nýj-
an kærleika til annarra. „Þér hafíð tekið á móti Kristi, drottni Jesú.
Lifíð því í honum. Verið rótfastir í honum og byggðir á honum, stað-
fastir í trúnni (Kóloss. 2,6—7).“
t
Systir okkar,
SÓLVEIG SIGFÚSDÓTTIR
frá Hólmlátri,
andaðist á Hrafnistu 8. mars.
Málfriður Sigfúsdóttir,
Unnur Sigfúsdóttir.
t
Bróðir minn og mágur,
GEORG KRISTJÁNSSON,
Hátúni 10a
andaðist í Landspítalanum 29. febrúar. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Kristjánsson,
Sigurlaug Arnórsdóttir.
t
Móðir mín,
INGIBJÖRG HELGADÓTTIR,
verður jarðsett frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 12. mars kl.
14.00. Ferð verður frá BSÍ kl. 8.30 og til baka sama dag.
Ágúst Sigurðsson.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður og dóttur,
UNNAR RAGNHILDAR LEIFSDÓTTUR,
Kambaseli 53.
Þórður Höskuldsson,
. LeifurOrri,
Leifur Steinarsson, Ingibjörg Brynjólfsdóttir.
'
Minning:
Agnar Sigurðsson
Akranesi — Minning
Fæddur 10. mars 1911
Dáinn 2. mars 1988
í dag, 10. mars, hefði Agnar
orðið 77 ára, en við vinir hans og
ættingjar höfum í áraraðir glaðst
með honum á afmælisdegi hans.
I dag komum við hins vegar sam-
an til að fylgja honum síðasta spöl-
inn, en hann lést á Sjúkrahúsi Akra-
ness 2. mars sl. Með Agnari er
genginn tryggasti og trúfastasti
starfsmaður og vinur fjölskyldu
minnar, en hann hefur starfað hjá
fjórum ættliðum. Upp úr fermingu
hóf hann störf hjá langafa mínum,
Böðvari Þorvaldssyni og vann hjá
honum við verslunarstörf þar til
hann hætti verslunarrekstri.
I bréfí sem afí minn, Haraldur
Böðvarsson, skrifaði til föður míns,
Sturlaugs, 1931, segir hann m.a.:
„Ég er að hugsa um að fá hann
Agga á Sýruparti til mín í verslun-
ina.“ Þessi ákvörðun var heilladtjúg
fyrir þá feðga og ekki síður fyrir
okkur sem á eftir komum, en óslit-
ið síðan hefur hann starfað hjá
Haraldi Böðvarssyni & Co. á Akra-
nesi og nú síðustu áratugina sem
gjaldkeri fyrirtækisins. Það eru
margir sem hafa átt samskipti við
hann í gegnum tíðina og alltaf get-
að gengið að honum vísum við
gjaldkeralúguna hjá H.B. & Co.
Aggi var tengiliður á miíli kyn-
slóða í minni fjölskyldu og fáar
ákvarðanir hafa verið teknar án
þess að bera þær undir hann.
Hann var fæddur á Sýruparti á
Akranesi, yngsti sonur hjónanna
Guðrúnar Þórðardóttur og Sigurðar
Jóhannesonar. Þau áttu sex börn,
sem öll eru látin nema Ólafur
Frímann, sem býr hér á Akranesi.
Aggi var mikill Skagamaður og
var aldrei lengi í burtu frá Akra-
nesi nema nauðsyn krefði. Hann
kvæntist aldrei, en bjó síðustu fjör-
utíu ár á heimili Ragnhildar Þor-
valdsdóttur, systurdóttur sinnar og
fjölskyldu hennar. Það er fátítt nú
til dags að fínna jafnmikla um-
hyggju sem fjölskylda Ragnhildar
sýndi ávallt frænda sínum. Fyrir
það erum við vinir hans innilega
þakklát.
Aggi var ekki allra, en þeim sem
hann tók var hann sannur. Hann
þoldi ekki illt umtal né svartsýnis-
raddir, en táraðist þess í stað yfir
fegurð himinsins og þegar hann
heyrði um velgengni fólks hreifst
hann innilega.
Við fráfall Agga missum við mik-
ið. Alla tíð hefur hann verið móður
minni og okkur systkinunum næst-
ur þegar mest á reyndi og jafnan
fyrstur til allra fagnaða. En við
erum um leið þakklát fyrir að hafa
átt hann svona lengi að.
Við trúum því að í víngarði Drott-
ins verði Agga vel tekið „en þar
bíða vinir í varpa sem von er á
gesti" og það er trúföst vissa okkar
að þar verði dýrlegur afmælisfagn-
aður. Eitt er víst, að mikið hafa
pabbi og Helga hlakkað ti! að sjá
hann og eflaust eru þau farin að
ri§a upp gamlar minningar frá
tjörnunum á Breiðinni.
Við þökkum honum ómetanlega
samfylgd, biðjum honum velfarnað-
ar í nýjum heimkynnum.
Ifyrir hönd fjölskyldu minnar og
samstarfsfólks,
Haraldur Sturlaugsson
Dapurt er að deyja er dvínar frost
og snær, þá vetrarvindar þegja og
vorið færist nær.
Stykkishólmur:
Frú Ingibjörg
Helgadóttir látin
Sfykkishólmi.
FRÚ Ingibjörg Helgadótt-
ir, ekkja Sigurðar Agústs-
sonar fyrrum athafna-
manns og alþingismanns i
Stykkishólmi, lést í sjúkra-
húsinu á Stykkishólmi 4.
mars tæplega 87 ára að
aldri, en hún fæddist 25.
mars 1901 á Eskifirði.
Foreldrar Ingibjargar voru þau
Sesselja Ámadóttir, Þorsteinssonar
sóknarprests, síðast á Útskálum og
Helga Eiríkssonar frá Karlaskála í
Reyðarfírði.
Þau hjónin Ingibjörg og Sigurður
settu um fjölda ára mikinn svip á
Stykkishólm og var heimili þeirra
mikið gestrisniheimili og þangað
komu margir. Sigurður lést á pásk-
um 1976. — Árni
t
Kveöjuathöfn um
SIGURVEIGU GUÐBRANDSDÓTTUR
frá Loftsöium,
Kúrlandi 13, Reykjavik,
sem lést þann 4. mars síðastliðinn, fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 11. mars kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Víkurkirkju laugardaginn 12. mars kl. 14.00.
Margrét Þorsteinsdóttir,
Elfn Þorsteinsdóttir, Sæmundur Nikulásson,
Halla Valdimarsdóttir, Örn Ævarr Markússon,
Sigrún Valdimarsdóttir, Björn Dagbjartsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar,
RAGNARKONRÁÐSSON
frá Hellissandi,
verður jarðsunginn frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 12. mars
kl. 14.00. Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 11.
mars kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna
Hinrik Ragnarsson.
Agnar Sigurðsson var fæddur að
Sýruparti á Akranesi 10. mars
1911. Foreldrar hans voru Sigurður
Jóhannesson og Guðrún Þórðar-
dóttir. Agnar átti heima á Akranesi
alla tíð. Arið 1925 byijaði hann að
vinna hjá Böðvari Þorvaldssyni í
Böðvarsbúð. Frá Böðvari fór hann
yfír til Haralds Böðvarssonar út-
gerðarmanns og vann þar þangað
til í desember 1987, en þá ágerðist
sjúkdómur sá er leiddi hann til
dauða.
Er ég nú að leiðarlokum minnist
Agga frænda míns, þá koma marg-
ar minningar fram í hugann. Hann
og systir hans sem var langamma
mín bjuggu alla tíð á heimili ömmu
og afa á Bakkatúni.
Þau voru mjög samrýmd systkini
og var gott að koma í heimsókn til
þeirra. Þeirra bestu mannkostir
voru að aldrei töluðu þau illa um
nokkurn mann og allt var fært til
betri vegar. Agnar sýndi aðdáunar-
vert æðruleysi í sínum veikindum,
kvartaði aldrei við nokkum mann,
hugsaði bara um velferð okkar.
Hann sagði eitt sinn, það læknar
þetta enginn, ég bara bíð, og svo
brosti hann um leið, brosti að erfíði
lífsins.
B.Ó.
„Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V. Briem.)
I dag, á afmælisdegi vinar míns
Agnars Sigurðssonar, gjaldkera hjá
Haraldi Böðvarssyni & co. hf.,
Akranesi, er hann kvaddur í hinsta
sinn, en hann andaðist á Sjúkra-
húsi Akraness 2. mars 1988 eftir
nokkurt stríð við válegan sjúkdóm.
Kynni okkar vöruðu tíu síðustu
árin sem hann lifði, með aukinni
vináttu frá því fyrst að við hitt-
umst. Hann vissi að hveiju stefndi
í veikindum sínum, þótt ekki hafí
hann látið á því bera. Alvara lífsins
var honum í bijóst borin, en hann
átti líka til glaðværð og kímni í
góðra vina hópi.
Agnar var kirkjurækinn maður
og sótti kirkjuathafnir þeirrar
kirkju, Akraneskirkju, þar sem
hann í dag verður kvaddur. Sam-
fylgdar hans fékk ég nokkrum sinn-
um notið við hátíðarguðsþjónustur
á stórhátíðum og var honum þakk-
látur fyrir.
Kunnugt er mér um að hann
naut einstaklega góðrar umhyggju
í fjölda ára hjá frænku sinni frú
Ragnhildi og manni hennar, Baldri
Guðjónssyni í Bakkatúni 6, en hjá
þeim var hann heimilisfastur og
átti þeim margs góðs að gjalda.
Agnar var vinmargur, meðal
annars vegna starfa sinna hjá stóru
útgerðarfyrirtæki, og aldrei heyrði
ég hann tala illa um nokkurn mann.
Hann var aufúsugestur hjá þeirri
fjölskyldu sem hann hafði unnið
hjá, allt frá unglingsárum um eða
yfir 60 ár og hollur sínum hús-
bændum alla tíð, þar sem hans verð-
ur nú saknað.
Ég sem þessar línur rita, er nú
vini mínum fátækari. Ég þakka
honum góða viðkynningu og marg-
ar ánægjustundir og bið honum
Guðs bles&unar.
Friður veri með sálu hans.
Friðhelg veri minning hans.
S.B.