Morgunblaðið - 10.03.1988, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988
4
Garður:
Kiwanisklúbburinn
Hof gefur björgun-
arsveitinni talstöð
Kiwanisklúbburinn Hof afhenti
sl. sunnudagskvöld félögum í
björgunarsveitinni Ægi gjöf að
verðmæti á annað hundrað þúsund
krónur. Var þetta 25 watta talstöð
með sjálfleitara ásamt fimm út-
köllunartækjum.
Garðar Steinþórsson, forseti Hofs,
og Jóhannes Arason, formaður
styrktamefndar, afhentu gjöfina fyr-
ir hönd kiwanisfélaga en Sigfús
Magnússon veitti tækjunum móttöku
fyrir hönd björgunarsveitarinnar.
Sigfús gat þess m.a. að nú væri
hægt að kalla út vissan kjama í
björgunarsveitinni á nokkrum sek-
úndum en hingað til hefír það tekið
allt upp í tvær klukkustundir. Þakk-
aði hann kiwanismönnum hlýhug í
garð deildarinnar.
Kiwanisklúbburinn gaf þessa gjöf
í minningu Sigurðar Rafnssonar sem
lést 1985. Sigurður Rafnsson var
bæði kiwanisfélagi og formaður
Björgunarsveitarinnar Ægis. Sigfús
Magnússon gat þess við móttöku
tækjanna að það hefði verið mark-
mið Sigurðar heitins að gera þjörg-
unarstöð Ægis að best útbúnu björg-
unarstöð landsins og að því mark-
miði ynnu björgunarsveitarmenn.
í kiwanisklúbbnum Hof eru liðlega
20 menn og er hreint ótrúlegt að
fylgjast með og sjá hvað svo fámenn-
ur hópur gerir stóra hluti. Það er
ekki langt um liðið síðan Hof færði
Gerðaskóla tvær stórgjafir, nú síðast
nokkrar tölvur og prentara.
— Arnór
Morgunblaðið/Amór
Félagar í kiwanisklúbbnum Hof
ásamt björgunarsveitarmönnum.
í forgrunni eru tækin sem
kiwanismenn gáfu.
Sigfús Magnússon þakkar
kiwanismönnum höfðinglega
gjöf. Talið frá vinstri: Jóhannes
Arason, Garðar Steinþórsson og
Sigfús Magnússon.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
ÍSmmmmmmm^^^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm—mmmmmmmmm... ................................. " i '
| húsnæði óskast \
Starfsmaður
franska sendiráðsins
óskar eftir lítilli íbúð eða herbergi m/baði og
eldunaraðstöðu nú þegar, til eins árs, fyrir
u.þ.b. 20.000 kr. á mánuði.
Upplýsingar í síma 19833 á skrifstofutíma
eða 27629 á kvöldin.
Óskast til leigu
Einn starfsmanna okkarvantar 2ja herb. íbúð
til leigu í Reykjavík. Fyrirframgreiðsla ef ósk-
að er.
Upplýsingar á skrifstofu Kaupþings hf., Bol-
holti 6, sími 689080.
Bátur - leiga
Óskum að leigja bát, 20-50 tonn, til veiða
með dragnót. Höfum góðan skipstjóra. Kvóti
þarf ekki að fylgja.
Upplýsingar í síma 92-16161 og á kvöldin í
síma 92-13009.
Þorlákur helgi Þórhallsson
Sjónvarpið, innlend dagskrárdeild, hefur látið
gera handrit að heimildarmynd um Þorlák
biskup helga og óskar nú eftir framleiðanda
til þess að vinna myndina í samráði við hand-
ritshöfund, Ólaf H. Torfason.
Alls hefur verið varið 1,2 milljónum kr. til
myndarinnar og skal framleiðandi skila henni
á tommu myndbandi, fullbúinni til útsending-
ar og ábyrgjast að engar kröfur komi frá
þriðja aðila.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Torfason,
s. 91-20025 og 91-12209.
Frestur rennur út 19. mars.
SJÓNVARPIÐ
Aðalfundur
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Kjósar-
sýslu veröur haldinn í Hlégaröi mánudaginn
14. mars kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Raeöa: Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra.
3. Umræður.
4. Önnur mál.
Fjölmennum.
Stjórnin.
Raufarhafnarbúar
Friðrik Sófusson
iðnaðarráðherra og
Halldór Blöndal al-
þingismaður boða
til almenns stjórn-
málafundar i félags-
heimilinu Hnitbjörg-
um laugardaginn
12. mars kl. 14.00.
Þeir verða með við-
talstíma milli kl.
13.00 og 14.00. Allir
velkomnir.
Sjálfstæðisfélagið.
Launaþróun
á íslandi
Fimmtudaginn 10. mars verður fundur um
launaþróun á islandi á Gauk á Stöng kl. 12, efri hæö.
Ræöumaöur veröur Víglundur Þorsteinsson og mun hann einnig svara
fyrirspumum.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til aö mæta.
Hvöt, féiag sjálfstæðiskvenna,
Landssamband sjálfstæðiskvenna.
Sjálfstæðisfólk í
Garðabæ
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
verður haldinn fimmtudaginn 10. mars nk.
i Lyngási 12, Garöabæ. Fundurinn hefst
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Davíö Oddsson, borgarstjóri, ræðir um
stjórnmálaviöhorfið.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
'HF.IMDALI.UK
Opið hús
Heimdallur gengst fyrir opnu húsi föstudaginn 11. mars. Léttar veit-
ingar og tónlist að venju. Húsið opnaö kl. 22.30. Mætum öll.
Ath.: Það verður engin frestun i þetta sinn.
Skólanefnd.
Fundur
skólanefndar
Skólanefnd Heimdalllar heldur fund fimmtudaginn 10. mars nk. kl.
20.00. Fundarefni: Starfið það sem eftir er vetrar og önnur mál.
Tengiliöum í framhaldsskólum er gert að mæta.
Allir velkomnir.
Skólanefnd.
IIFIMDAI H)K
F U S
Þórshafnarbúar
Friðrik Sófusson
iðnaðarráðherra og
Halldór Blöndal al-
þingismaður boöa
til almenns stjórn-
málafundar í félags-
heimilinu Þórsveri
föstudaginn 11.
mars kl. 20.30. Þeir
verða með við-
talstíma milli kl.
19.30 og 20.30. Allir
velkomnir.
Sjálfstæðisfélagið.
Selfoss - Framhalds-
skólafrumvarpið
Sjálfstæðiskvennafélag Árnessýslu heldur
fund í Hótel Selfossi (norðursalj þriðjudag-
inn 15. mars nk. kl. 21.00. Gestur fundarins
veröur Birgir Isleifuf Gunnarsson, mennta-
málaráðherra, sem mun ræða framhalds-
skólafrumvarpið. Fundurinn er öllum opinn.
Sjálfstæðiskvennafélag Árnessýslu.
Dalvíkingar
Friðrik Sóphusson,
iðnaðarráðherra og
Halldór Blöndal, al-
þingismaður, efna
til almenns fundar
um ástand þjóömála
i Bergþórshvoli í
kvöld, fimmtudag-
inn 10. mars.
Fundurinn er öllum
opinn. Viötalstími í
Bergþórshvoli kl.
19.30.
Sjálfstæðisfélag Dalvikur.
1