Morgunblaðið - 10.03.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.03.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988 17 I- Reuter Alain Madelin ásamt Jacques Chirac forsætisráðherra Frakklands. flokkur sem var ríkastur og hafði besta skipulagið þegar síðari heimsstyijöldinni lauk. Þeim tókst að auka fylgi sitt úr 1,5 milljónum atkvæða árið 1936 í 5,5 milljónir atkvæða í kosningunum 1946. Fylgi þeirra hélt síðan áfram að aukast næstu árin og höfðu þeir veruleg áhrif á stjómun Frakk- lands. Völd þeirra hafa þó minnkað á undanfömum árum og skipta kommúnistar nú litlu máli í frönsk- um stjórnmálum. Einnig hafa só- síalistar færst nær miðju. Hvemig túlkar Madelin þessa breytingu? „Hnignun Kommúnistaflokksins er augljóslega liður í menningar- legri leiðréttingu. Vesturlönd em nú í æ ríkara mæli að nálgast tvískipt stjómmálakerfí þar sem annarsvegar verður til staðar frjálslyndur flokkur og hins vegar jafnaðarmannaflokkur. í slíku kerfí er ekkert pláss fyrir flokk með hugmyndir úr öllum tengslum við veruleika dagsins í dag. Nei- kvæð ímynd Sovétríkjanna hefur einnig skaðað Kommúnistaflokk- inn vemlega. Eftir að Sósíalista- flokkurinn fór að ná styrk sínum á ný gat því ekkert komið í veg fyrir hmn Kommúnistaflokksins." Fijálslyndinu stafar hætta af flokkaskipaninni Madelin telur frönsku fijálslyndi aðallega stafa hætta af því að Sósíalistaflokkurinn sé að ná for- ræði á vinstri vængnum en hægri menn skipti sér í tvo flokka, UDF og RPR. Þetta speglast mjög vel í kosningabaráttunni fyrir forseta- kosningamar í vor. Raymond Barre, fyrrverandi forsætisráð- herra, er frambjóðandi UDF- bandalagsins, en Jacques Chirac, forsætisráðherra, frambjóðandi flokks nýgaullista, RPR. Forseta- kosningunum er skipt upp í tvær umferðir og takast þeir tveir fram- bjóðendur sem flest atkvæði fá í fyrri umferðinni á í þeirri síðari. Barre og Chirac þurfa því að beij- ast um atkvæði hægri manna fyrir fyrri umferðina og kannski skapa einhveija óvild á milli stuðnings- manna sinna á meðan Mitterrand, Frakklandsforseti, er eini sterki frambjóðandinn á vinstri vængn- um, ef hann kýs að bjóða sig fram. „Ég held að við eigum þó ekki að gera of mikið úr muninum á milli þessara tveggja flokka,“ segir Madelin. „Kjósendur UDF og RPR munu sameinast um að kjósa þann frambjóðenda þeirra sem nær best- um árangri í fyrri umferð kosning- anna.“ Þegar hann var spurður hvort Barre væri frambjóðandi fijálslyndra sagði Madelin að Barre væri frambjóðandi UDF sem væri hans flokkur. „Fijálshyggjumenn hafa þó þá sérstöðu að telja að hugmyndimar sem þeir beijast fyrir muni ná fram að ganga án tilstillis stjómmálamanna. Stjóm- málamenn geta flýtt eða tafíð fyr- ir þeirri þróun en það væri fráleitt að leggja allt traust á einn mann, sama hver hann er, og trúa því að með hæfni sinni muni hann persónulega leiða Frakkland inn á braut fijálslyndis. Það verða borg- aramir sjálfír að gera ef þeir æskja þess.“ Mannréttindin í sviðsljósið Eins og áður sagði er Madelin einn yngsti ráðherrann í frönsku ríkisstjóminni. Telur hann að pólitískt séð sé skarð á milli kyn- slóða? „Auðvitað er á hveijum tíma uppi kynslóð sem er ekki að öllu leyti eins og sú sem var á undan. Ég geri mér grein fyrir því að ég tilheyri kynslóð sem hefur mótast sameiginlega af ýmsum atburðum. Ég hef þá í huga maí 1968 en ekki síður innrás Soljenitzins í hugarheim vesturlanda, fall Saigon og undirokun Suður-Víetnams í kjölfar þess og uppgötvun þjóðar- morðsins í Kambódíu. Vegna þess- ara atburða hefur okkur tekist að koma mannréttindum í sviðsljósið og virðing þeirra orðið leiðarljós okkar. Þetta held ég ekki að valdi neinu „skarði“ milli kynslóða en samt verulegum mun.“ Viðtal: Steingrímur Sigurgeirsson rasu-Bix UÓSRITUNARVÉLAR m SIEMENS SIEMENS uppþvottavél LADY SN 4523 með Aqua-Stop vatnsöryggi. Vandvirk og hljóðlát. • 5 þvottakerfi. 9 Fjórföld vöm gegn vatnsleka. • Óvenjulega hljóílát og spameytin. Smith og Norland, Nóatúni 4, s. 28300. Subaru Sedan GLX 4WD Til sölu gullfallegur Subaru Sedan GLX 4WD árg. 1986 (skráður í janúar 1987). Litur: Rauður. Ekinn 28000 km. Bíllinn er hlaðinn aukabúnaði s.s. vökvastýri, powerbremsum, hill holder, central- læsingum, rafdrifnum rúðum, rafdrifinni topplúgu, sætahiturum, spoiler á skottloki, vönduðu út- varpi/segulbandi. Sumar- og vetrardekk. Verö kr. 630.000,- Upplýsingar í vs. 91 -652221, hs. 91-46808. SIEMENS k Fjölhæf hrærivél frá SÍGIYKHIS Blandari og græmhétiskvörn fylgja með! •Allt á einum armi. • Hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, og sker — bæði fljótt og vel. • ítarlegur leiðarvísir á íslensku. V....... : Smith & Norland Nóatúni 4 — s. 28300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.