Morgunblaðið - 10.03.1988, Side 55

Morgunblaðið - 10.03.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988 55 „Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir.. Opið bréf til „postula“ vinnumarkaðarins eftir Sigurjón Þorbergsson Fyrir nokkrum dögum greindu fjölmiðlar frá mikilvægum árangri sem náðst hefði í kaupgjaldsdeilum á vinnumarkaði. Samkomulag hefði náðst um að færa til tvo frídaga sem hingað hafa jafnan verið á fimmtudegi en skyldu nú framvegis færast til næsta mánudags. Sumarið byrjar hér eftir á fimmta degi sumars en ekki fimmtudegi. Mánudagur skal það vera — til mæðu væntanlega. Uppstigningardagur sem af trú- arlegum og sögulegum ástæðum hlýtur að vera hátíðlegur haldinn 40 dögum eftir páska á nú að verða á 44. degi — mánudegi. Það verður hinn nýi frídagur Þórarins og Guðmundar, Þrastar eða Karvels. Til hvers eru frídagar frá vinnu? Væntanlega til að hvílast og fá jafn- framt tækifæri til að sinna ein- hvetju öðru en hversdagsstriti, and- legu lífi ef menn eiga þrá til þess og hafa vit og vilja til að lyfta sér upp yfír amstur daganna. Kristur dvaldi hér á jörðu í 40 daga eftir upprisu frá dauðum; minnumst þess — á uppstigningar- degi. Næst síðasta setningin sem hann sagði við lærisveina sína er á þessa leið: „Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn setti af sjálfs síns valdi.“ En þér „postular vinnumarkaðar- ins“ vitið auðvitað betur en fiski- menn og tollheimtumenn! Við lifum á tímum hagfræðinga og hagræðinga. I stað þess að ná fram því sjálfsagða markmiði að fólk fái eðlileg laun fyrir eðlilegan vinnudag eru færðir til frídagar hagrætt hér og hagfrætt þar. Hagfræðipostulunum nægir ekki að ráðskast með það sem þeir kunna — að deila um krónur og aura — þeir verða líka að ræna frídagana eðlilegu innihaldi sínu. Sumardag- urinn fímmti skal nú hvað merkast- ur daga. Þjóðkirkjan maldar í móinn og vísar til sextíu og fimm. ára gam- alla laga um helgi ákveðinna frídaga. Og gefur undir fótinn að lögunum verði að breyta. Minnir þetta óneitanlega á biskupinn góða sem gaf þjófinum það sem hann hafði stolið. Nema hvað jafnvel heil þjóð- kirkja á ekkert með að gefa helgan dag ræningjum. Gildir þá einu þótt þeir eigi mikið undir sér. Hvert myndi trúfrelsi þess manns sem framvegis mætir til vinnu á uppstigningardag? Myndi breyting á hinum 65 ára gömlu lögum í þá átt sem nú stefnir standast ákvæði stjómarskrár um trúfrelsi? Spyr sá sem ekki veit. En á sama hátt og stjórnarskrá ríkis er æðri almennum lögum getur siðferðilegur réttur— Guðs lög — orðið æðri, jafnvel stjómarská. Mætti þá spyrja hvort ekki sé hollast hveijum að halda sig við sitt eðlilega verksvið — og forðast valdhroka. Eða ætla „postular vinnumarkað- arins“ að taka að sér það hlutverk sem Kristur fól sínum postulum í síðustu orðum sínum til þeirra: „En þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfír yður, og þér munuð verða votta mínir bæði í Jerúsalem og í allri Júdeu og Samaríu og til ystu endimarka jarðarinnar." í þeirri kirkju sem ég tilheyri — Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem margir kannast betur við sem kirkju Mormóna, er meg- ináhersla lögð á helgi hvíldardags- ins — hvers sunnudags sem Guð gefur. Má segja að aðrir frídagar skipti e.t.v. ekki öllu máli. En við horfum ekki upp á það þegjandi að kristnar hefðir í þessu landi séu lítilsvirtar, undan þeim grafið og skilningur á lífi og starfi Krists slævður. Má þá einu gilda þótt við séum ekki í öllu sammála þjóðkirkj- unni. En við krefjumst réttar til trúfrelsis sjálfum okkur og öðrum til handa. í því felst m.a. rétturinn til að iðka trú sína á uppstigningardag. Höfundur er fréttafulltrúi Morm- óna íReykjavík. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Kamma Andrésdóttir í hinni nýju verslun sinni. WIKA Ný verslun í Neskaupstað Neskaupstaður. FYRIR skömmu var opnuð ný verslun, Laufskálinn, á Nesgötu 3 í Neskaupstað. Laufskálinn mun aðallega versla með blóm og blómaskreytingar. Þá munu einnig verða á boðstólum gjafavörur og listmunir og mun verslunin kappkosta að hafa sem fjölbreyttast úrval listmuna eftir norðfírska listamenn i sölu og er nú þegar kominn vísir að því í versl- uninni. Heilsuvörur verða einnig á boðstólum. Eigendur hinnar nýju verslunar eru hjónin Kamma Andrésdóttir og Lindberg Þorsteinsson. — Ágúst Þrýstimælar Allar stæröir og geröir Jm__L ^(huwtaiyjgjwir J^XTDSS(S)ira Vesturgötu 16, sími 13280 MENNT ER MÁTTUR Byrjendanámskeið á PC tölvur DAGSKRÁ * Grundvallaratriði við notkun PC-tölva. * Stýrikerfið MS-DOS. * Ritvinnslukerfið WordPerfect. * Töflureiknirinn Multiplan. * Umræður og fyrirspurnir. Logi Ragnarsson tölvunarfræðingur. Tími: 14., 16., 21., og 23. mars Kjörið tækifæri fyrir þá, sem vilja kynnast hinum frábæru kostum PC- tölvanna, hvort heldur sem er, í leik eða starfi. Leiðbeinandi kl. 20-23 TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28. Upplýsingar og innritun í símum 687590 og 686790 VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku í námskeiðinu ALKQSXy R iíJLiJöaiJj Nk !í*9J ifeualteaUuí ikjjiuu/ Itxjp? viUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.