Morgunblaðið - 10.03.1988, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 10.03.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988 29 Trillur hefja róðra Vogum. TRILLUR frá Vogum hafa hafið veiðar með þorskanet á þessari vertíð. Fyrst til að leggja netin var Björgin GK, sem lagði þau nýlega og fékk ágætis afla eftir nóttina af vænum þorski. Á síðustu vertíð voru nokkrar trillur sem reru héðan með net og hafði fjölgað frá árunum þar á undan, þannig að væntanleg munu fleiri trill- ur he§a róðra næstu daga. Á meðfylgjandi mynd er unnið að löndun úr Björginni GK eftir fyrstu vitjun. - EG Tryggingamiðstöðin fer nýja leið: Skiptir iðgjaldi með fjölgun gjalddaga Fjarkennslunám hefst í sjónvarpi 19. mars FYRSTA sjónvarpsútsending á skipulegu fjarkennsluefni verður kl. 13.30 laugardaginn 19. þessa mánaðar. Er það upphaf tilrauna- starfs til undirbúnings viðameiri fjarkennslu síðar, sem stefnt er að að hefjist næsta haust. Verður sent út í klukkutíma á laugardög- um á þessu vori. Verður dagskrá tilraunasendinganna næstu vikur af ýmsu tagi og mikil breidd í efnisvali, enda bæði hugsað sem stuðningur við skólanám og fyrir almenning sem vill fræðast. Sérstakir þættir verða t.d. fyrir grunnskólanema 3 laugardaga fyrir samræmdu prófin í mars og apríl, þættir um landafræði fslands fyrir grunnskólanema, skriftarþáttur fyrir foreldra vegna nýrra kennsluhátta, skákþættir, garðrækt og fleira. En stefnt er að stærri verkefnum síðar, svo sem íslenskuþáttaröð, sem farið er að undirbúa, stærðfræðiverkefni, tölvuefni o.fl. Einnig er verið að fikra sig af stað með fjarkennsluefni í útvarpi, sem verður á mánudögum á rás 1. Framkvæmd Ijarkennslunnar er í höndum sérstakrar Fjarkennslu- nefndar og allt efni frá henni sent út undir nafninu Fræðsluvarp, en dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræð- ingur hefur á hendi framkvæmda- stjórn. Fjarkennslunefnd sem skipuð var sl. sumar skýrði blaðamönnum frá tilhögun þessa fyrsta skrefs til fjar- kennslu gegnum sjónvarp. Dagskrá fyrstu útsendingar hefst með ávarpi Birgis Isleifs Gunnarssonar mennta- málaráðherra og ávarpi Markúsar Amar Antonssonar útvarpsstjóra, en á eftir fer kynning á notkun mynd- efnis í kennslu í höndum Önnu G. Magnúsdóttur, þá norsk mynd um fordóma og samskiptaörðugleika vegna þekkingarleysis á aðstæðum minnihlutahópa, þá sænsk mynd er nefnist Bfllinn, ökumaðurinn og nátt- úrulögmálið og loks skákþáttur fyrir byrjendur í umsjá Áskels Arnar Kárasonar. Starfsemi þessi er öll enn í mótun og eftir að setja reglur um ýmsa mikilvæga þætti fjarkennslunnar. Hljóðvarp og útvarp ríkisútvarpsins hafa fallist á að miðla efni fjarkennsl- unnar á föstum tímum í hverri viku, en gengið verður frá tímasetningu eftir að byijað verður skipulega í haust. Standa vonir til að aðrar út- varps- og sjónvarpsstöðvar muni einnig taka þátt í að miðla fjar- kennslu. I samræmi við erindisbréf Fjar- kennslunefndar frá menntamála- ráðuneytinu, en ijarkennslan er á þess vegum, hefur nefndin markað sér þá stefnu að standa ekki sjálf fyrir kennslu heldur fela öðrum fram- kvæmd þeirrar flarkennslu sem ráð- ist verður í fyrir hennar tilstuðlan og að skapa þeim aðilum aðgang að dreifitækni og fjölmiðlun. Formaður Fjarkennslunefndar er Jón Torfi Jón- asson, dósent í uppeldisfræði, og aðrir í nefndinni Þuríður Magnús- dóttir frá fræðslumiðstöð iðnaðarins, Stefán Stefánsson frá menntamála- ráðuneytinu, Gunnar G. Schram prófessor og Þór Vigfússon, skóla- stjóri á Selfossi. Útskýrðu nefndar- menn að ijarkennsla gæti verið með ýmsu móti, en starfið sem nú væri verið að hrinda af stokkunum væri einkum þrennskonar. I fyrsta lagi yrði um að ræða kennslu í tilteknum námsþáttum á ýmsum stigum skóla- kerfisins, til áfanga- eða lokaprófs eftir atvikum. í öðru lagi verða al- mennir kynningarþættir, en einnig mjög sérhæft efni, einkum tengt at- vinnulífinu. í þriðja lagi verður boðið upp á almenna fræðsluþætti sem ekki miðast við tiltekinn hóp. Yfirlýsing BÖÐVAR Bragasori lögreglu- stjóri í Reykjavík hefur beðið Morgnnblaðið að birta eftirfar- andi yfirlýsingu. Dagana 21. og 22. januar sl. var í Reykjavík haldin ráðstefna um nýtingu sjávarspendýra, stjórnun hennar og samhengi við fiski- stofna. Lögreglunni í Reykjavík var falið að gæta öryggis ráðstefnunnar og gesta. í tímaritinu Þjóðlíf 2. tbl. 4. ár- gangs er viðtal við ónafngreindan mann er telur sig hafa orðið fyrir eftirför lögreglu að því er virðist dagana 10.—20. janúar sl., sími hans hafi verið hleraður og póstur skoðaður. Ennfremur segir hann orðrétt: „Ástæðan fyrir þessum njósnum er sjálfsagt sú að um þetta leyti var verið að undirbúa ráð- stefnu á vegum íslenskra stjórn- valda um skynsamlega nýtingu sj ávarspendýra“. Fjölmiðlar hafa síðan upp'ýst að talað var við Magnús Skarphéðins- son. Landsmönnum eru kunn Sea Shepherd samtökin svo mjög sem þau og meðlimir þeirra hafa komið við sögu hér á landi. Af fyrri reynslu og vegna frétta þess efnis að samtökin hygðust láta sig varða áðumefnt fundahald þá ákvað ég að láta fylgjast með einum kunnasta samstarfsaðila þessara samtaka hér á landi, Magnúsi Skarphéðinssyni, um nok- kurra daga skeið. Eg tel að eftirlit þetta hafi hvergi farið út fyrir lög- leg mörk og vísa algerlega á bug fullyrðingum um að lögreglan í Reykjavík hafí hlerað síma Magn- úsar eða opnað póst hans. Slíkt verður ekki framkvæmt nema að gengnum dómsúrskurði og í þessu tilviki voru engin efni til þess að fara fram á slíkt. Reykjavík, 9. mars 1988. TryKgingamiðstöðin hf. í Reykjavík hefur tekið upp nýtt fyrirkomulag með fjölgun gjald- daga á iðgjöldum bifreiðatrygg- inga. í stað eins gjalddaga 1. mars hefur Tryggingamiðstöðin tekið upp tvo gjalddaga, annan 1. mars og hinn 1. september og greiða menn almenna sparisjóðs- vexti af síðari greiðslunni. Viðskiptavinir Tryggingamið- stöðvarinnar greiða af ársiðgjaldi til sex mánaða í senn og er þetta gert til að létta viðskiptavinum þá hækk- un sem varð á iðgjöldum bifreiða- trygginga þann 1. mars sl. að sögn forráðamanna Tryggingamiðstöðv- arinnar. Gunnar Felixson aðstoðar- forstjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að með þessari síðustu hækk- un væru iðgjöldin orðin það há að tímabært væri að koma til móts við fólk með skiptingu greiðslna á tvo gjalddaga í stað eins. Að sögn forr- áðamanna tryggingafélaganna er ársiðgjald af fólksbifreið nú á milli 25.000 og 30.000 krónur, sé miðað við 50% bónus. „Þetta gerir við- skiptavinum okkar greiðslurnar auð- veldari og einnig teljum við að skil á iðgjöldum verði betri með þessu móti,“ sagði Gunnar Felixson. Bjöm Hermannsson hjá Bruna- bótafélagi fslands sagði í sariitali við Morgunblaðið að önnur tryggingafé- lög hefðu ekki talið sér fært að fara þessa leið vegna þess vaxtataps sem þau yrðu fyrir ef helmingur iðgjalds- ins félli ekki á gjalddaga fyrr en 1. september. Með núverandi fyrir- komulagi reikna tryggingafélögin vexti og dráttarvexti í byijun hvers mánaðar af ógreiddumi iðgjöldum. Þá sagði Bjöm að tryggingafélög- in byðu viðskiptavinum sínum að skipta greiðslum af iðgjöldum í allt að sex hluta og gæti fólk valið hvort greiðslur færu í gegnum Euro- eða Visareikninga þess. Einnig mætti skipta þessum greiðslum á víxla. Aðspurður hvort slíkt fyrirkomulag hefði ekki meiri kostnað í för með sér heldur en íjölgun gjalddaga sagði Bjöm slíkt geta verið, en afkoma bifreiðatrygginga væri slík að trygg- ingafélögin mættu ekki við því vaxt- atapi sem af ijölgun gjalddaga leiddi, að hætti Tryggingamiðstöðvarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.