Morgunblaðið - 10.03.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988
37
Grindavík:
Barnakór stofnaður
innan grunnskólans
Grindavík.
BARNAKÓR Gmnnskóla
Grindavíkur var stofnaður um
síðustu mánaðamót og var
áhugi barnanna slíkur að kom-
ast í kórinn að takmarka þurfti
fjöldann við um fimmtíu börn.
Að sögn Eyjólfs Ólafssonar,
tónlistarkennara og stjórnanda
kórsins, er aðaltilgangurinn með
stofnun kórsins að hann komi fram
á mikilli hatíð sem haldin verður
í vor af skólanum ve'gna þess að
liðin eru eitt hundrað ár frá því
að skipuleg bamafræðsla hófst í
Grindavík.
„Hér var annar barnakór innan
grunnskólans og tónlistarskólans
fyrir nokkrum árum sem því miður
lagðist niður, þrátt fyrir mikla
starfsemi," sagði Eyjólfur. „Sá kór
fór meðal annars í söngför um
Sjötíu rithöfundar fengu starfslaun
íslands og til Norðurlandanna auk
þess sem hann kom fram í íslenska
sjónvarpinu. Mín von er sú að
þegar þessu verkefni lýkur, seni
kórinn er stofnaður til að annast,
verði framhald á starfseminni,
enda áhugi barnanna ótvíræður."
Efnisskrá nýja kórsins er blönd-
uð bamalögum, íslenskum al-
þýðulögum og lögum eftir Eyjólf
söngstjóra. Eyjólfur hefur stundað
söngnám 1985—87 í Mílanó á ít-
alíu undir handleiðslu Miestro Mir-
anda Ferraro sem hefur kennt
mörgum söngnemendum frá ís-
landi.
— Kr. Ben.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Barnakór Grunnskóla Grindavíkur ásamt stjórnanda sínum, Eyjólfi Ólafssyni tónlistarkennara.
^NNLENT
Lokið er úthlutun starfslauna
úr Launasjóði rithöfunda fyrir árið
1988.
Alls bámst stjórninni að þessu
sinni umsóknir frá 163 höfundum
og sóttu þeir um því sem næst
878 mánaðarlaun auk mánaðar-
launa til ótiltekins tíma frá 3
þeirra. Fjárveiting til sjóðsins nam
Loðnuveiðin 8. marz:
13 skip hætt veiðum
Flest skipanna eiga 5 túra eða minna eftir
HÉR fer á eftir yfirlit Loðnu-
nefndar um afla loðnuskipanna
á vertíðinni, sem nú er að ljúka.
Tölurnar miðast við miðnætti
síðastliðins þriðjudags. Fremst
er nafn og skrásetningarnúmer
skipanna, næst kvóti þeirra eftir
breytingar svo sem kaup eða
sölu á kvóta og fyrirfram veiði,
næst kemur aflinn á þriðjudag,
þá það, sem þá er eftir í tonnum
talið og loks túrafjöldi:
SKIP Kvóti eftir breytingu Veitt 8/3 Afli eftir 8/3 Túrar eftir
Albert GK 31 18.016 17.018 998 2
BeitirNK 123 20.915 18.747 2.168 2
Bereur VE 44 16.599 15.005 1.594 3
Biarni Ólafsson AK 70 21.851 21.927 76 0
BörkurNK 122 31.401 27.370 4.031 4
Dagfari ÞH 70 17.354 9.963 7.391 15
EldborgHF 13 22.752 23.719 967 0
ErlintrKE45 15.472 13.508 1.964 4
EskfirðinErur SU 9 17.570 16.227 1.343 3
Fífill GK 54 16.913 16.446 467 1
Galti ÞH 320 17.685 9.625 8.060 15
Gíena VE 340 18.524 18.694 fær frams.
Gísli Ami RE 375 17.822 15.105 2.717 5
Grindvíkingur GK 606 20.996 19.097 1.899 2
Guðmundur VE 29 28.855 21.585 7.270 9
Guðmundur ólafur ÖF 91 17.373 15.686 1.687 3
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 19.133 19.364 231 0
Gullberg VE 292 18.822 16.459 2.363 4
Hama RE 342 17.352 15.417 1.935 4
Hákon ÞH 250 18.365 12.903 5.462 6
Heimaev VE 1 170 0 170 fór ekki
Helgall RE 373 12.575 10.010 2.565 5
Helga IIIRE 67 9.110 3.350 5.760 13
Hilmir SU 171 23.973 23.177 796 1
Hilmir II SU177 16.934 17.394 460 0
Hrafn GK 12 20.276 21.729 453 0
Huginn VE 55 12.789 8.297 4.492 8
HúnaröstÁR 150 16.831 16.484 347 1
Höfrungur AK 91 19.299 18.711 588 1
Isleifur VE 63 17.859 15.751 2.108 3
Jón Finnsson RE 506 19.437 20.095 658 0
Jón Kjartansson SU 111 22.952 23.302 350 0
JúpíterRE 161 21.422 15.552 5.870 5
Kap IIVE 4 18.438 16.944 1.494 3
Keflvíkingur KE 100 15.998 14.808 1.190 3
Magnús NK 72 15.986 16.345 359 0
Pétur Jónsson RE 69 17.797 14.559 3.238 4
Rauðsev AK 14 17.338 17.799 461 0
Sighvatur Biamason VE 81 18.429 16.764 1.665 3
Sigurður RE 4 32.706 27.156 5.550 5
Sjávarborg GK 60 19.670 20.047 fær frams.
Skarðsvík SH 205 17.931 18.371 440 0
Súlan EA 300 18.823 19.351 528 0
SvanurRE45 18.580 13.859 4.721 7
Víkingur AK 100 22.156 23.175 1.019 0
VíkurbergGK 1 16.761- 16.700 71 1
Þórður Jónasson EA 350 16.062 15.711 351 1
Þórshamar GK 75 16.573 14.620 1.953 4
Öm KE 13 16.238 16.802 564 0
hins vegar 266 mánaðarlaunum,
en það er 38 mánaðarlaunum
færra en úthlutað var sl. ár.
Starfslaun til sex mánaða hlutu
að þessu sinni 18 rithöfundar,
fjögurra mánaða laun hlutu 15
rithöfundar, þriggja mánaða laun
hlutu 24 höfundar og tveggja
mánaða laun hlutu 13 höfundar.
Alls hefur því verið úthlutað
starfslaunum til 70 rithöfunda.
I fréttatilkynningu frá stjóm
launasjóðsins segir, að í lögum og
reglugerð sjóðsins segi að árstekj-
um hans skuli varið til að greiða
íslenskum rithöfundum starfslaun
samsvarandi byijunarlaunum
menntaskólakennara. Þessi laun
eru nú kr. 56.382 á mánuði.
Starfslaun eru veitt samkvæmt
umsóknum. Höfundur sem sækir
um og hlýtur starfslaun til þriggja
mánaða eða lengur skuldbindur
sig til að gegna ekki fastlaunuðu
starfi meðan hann nýtur starfs-
launa. Tveggja mánaða starfslaun
má veita vegna verka sem birst
hafa á næsta almanaksári á undan
og þeim fylgir ekki kvöð um að
gegna ekki fastlaunuðu starfí.
6 mánaða starfslaun hlutu 18
rithöfundar:
Birgir Sigurðsson,
Einar Bragi,
Einar Már Guðmundsson,
Einar Kárason,
Fríða A. Sigurðardóttir,
Guðbergur Bergsson,
Gyrðir Elíasson,
Isak Harðarson,
Sýning’um
sl „Htla
sótaran-
um“ fækk-
ar senn
ÍSLÉNSKA óperan sýnir nú
barnaóperuna „Litli sótarinn“
eftir Benjamin Britten. Óperan
hefur verið sýnd fyrir fullu
húsi frá því í janúar og fer sýn-
ingum nú senn að fækka.
Þátttakendur í sýningunni eru
26 talsins, þar af 12 börn sem
fara með veigamikil hlutverk.
Verði aðgöngumiða er mjög í
hóf stillt; kostar miðinn um þriðj-
ung af verði miða á venjulega
óperusýningu. „íslenska óperan
hefur ieitað eftir fjárstuðningi frá
Reykjavíkurborg til að greiða nið-
ur verð aðgöngumiða fyrir börn í
grunnskólum borgarinnar, en ekki
haft erindi sem erfiði þrátt fyrir
meðmæli fræðsluyfírvalda,“ segir
í frétt frá íslensku óperunni.
Pétur Gunnarsson,
Sigurður A. Magnússon,
Stefán Hörður Grímsson,
Steinunn Sigurðardóttir,
Svava Jakobsdóttir,
Thor Vilhjálmsson,
Vigdís Grímsdóttir,
Þorgeir Þorgeirsson,
Þorsteinn frá Hamri,
Þórarinn Eldjám.
4 mánaða starfslaun hlutu 15
rithöfundar:
Bjöm Th. Björnsson,
Böðvar Guðmundsson,
Guðmundur Steinsson,
Jóhann Hjálmarsson,
Kristján Jóhann Jónsson,
Kristján Karlsson,
Nína Björk Ámadóttir,
Ólafur Gunnarsson,
Ólafur Haukur Símonarson,
Ómar Þ. Halldórsson,
Sigfús Bjartmarsson,
Sigfús Daðason,
Sigurjón B. Sigurðs. (Sjón),
Sveinbjöm I. Baldvinsson,
Þórunn Valdimarsdóttir,
3 mánaða starfslaun hlutu 24
rithöfundar:
Auður Haralds,
Ásta Berglind Gunnarsdóttir,
S. Birgir Engilberts,
Birgir Svan Símonarson,
Einar Ólafsson,
Erlingur E. Halldórsson,
Geirlaugur Magnússon,
Guðlaug Richter,
Guðmundur Ólafsson,
Ingibjörg Haraldsdóttir,
Jón Óskar,
Kristín Ómarsdóttir,
Kristján Ámason,
Kristján H. Kristjánsson,
Margrét Lóa Jónsdóttir,
Oddur Bjömsson,
Pjetur Hafstein Lámsson,
Ragnheiður Sigurðard. (Ragna),
Rúnar Ármann Arthúrsson,
Sigrún EldjámK
Stefán Jónsson,
Steinar Sigurjónsson,
Sveinbjöm Þorkelsson,
Valdís Óskarsdóttir.
2 mánaða starfslaun hlutu 13
rithöfundar:
Ámi Ibsen,
Gísli Ágúst Gunnlaugsson,
Guðmundur Páll Ólafsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Játvarður Jökull Júlíusson,
Jóhannes Óskarsson (Jóhamar),
Kjartan Ólafsson,
Magnea J. Matthíasdóttir,
Magnús Þór Jónsson,
Njörður P. Njarðvík,
Stefán Snævarr,
Steinunn Jóhannesdóttir,
Trausti Einarsson.
Helgi Gísla-
son sýnir í
Gallerí Borg
HELGI Gíslason opnar sýn-
ingu í Gallerí Borg, Pósthús-
stræti 9 Reykjavík, i dag,
fimmtudaginn 10. mars kl. 17.00
Helgi Gíslason er fæddur í
Reykjavík 1947. Hann stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1965—1970. Síðan
nam hann við Valand-listaháskól-
ann í Gautaborg 1971—1976.
Þetta er 5. einkasýning Helga í
Reykjavík, en hann hefur einnig
haldið einkasýningar í nokkrum
borgum í Þýskalandi. Auk þess
hefur hann tekið þátt í fjölda sam-
sýninga bæði hér heima og erlend-
is. Á sýningu Helga nú eru teikn-
ingar og höggmyndir.
Verk eftir Helga er m.a. í eigu
Listasafns Islands og Reykjavíkur-
borgar. Lágmynd í anddyri Hótel
Sögu og dyr Seðlabanka íslands
eru meðal verka hans á opinberum
vettvangi.
Helgi hlaut 1. verðlaun í sam-
keppni um útiverk við útvarpshúsið
og deildi 3. verðlaunum í sam-
keppni um verk við Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Hann hefur átt sæti í
stjóm FÍM og Myndhöggvarafé-
lagsins, en situr nú í safnráði Lista-
safns íslands. -