Morgunblaðið - 10.03.1988, Page 49

Morgunblaðið - 10.03.1988, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988 49 TÉKKAREIKNINGUR *Eigir þú bankakort - átt þú kost á yfirdráttarheimild á tékkareikningi þínum, allt að kr. 30.000 þú greiðir ekkert aukagjald fyrir heimildina einungis vexti af upphæðinni sem þú færð að láni. *Tekjulán færðu eftir samfelld viðskipti við bankann í 3 mánuði allt að kr. 150.000.- Lánshlutfallið eykst að sjálfsögðu í hlutfalli við viðskipti þín við bankann og meðalveltu hverju sinni. *Spamaðarsamkomulagið er ekki bindandi. Þú getur byrjað og hætt hvenær sem þú óskar. Kynntu þér þessar breytingar, sem gera verslun þína og viðskipti þægilegri og ánægjulegri. á FÁÐU ÞÉR BÆKLING Á NÆSTA s! AFGREIÐSLUSTAÐ ÚTVEGSBANKANS. árekstrí Þrir slösuðust í hörðum Morgunblaðið/Júlíus Bifreiðamar em ónýtar eftir mjög harðan árekstur á Kringlu- mýrarbraut. MJÖG harður árekstur varð á Kringlumýrarbraut á laugardag og em bifreiðamar tvær, sem þar skullu saman, ónýtar. Þrír slösuðust, en meiðsli þeirra munu ekki vera alvarleg. Áreksturinn varð um kl. 15. Annarri bifreiðinni var ekið norður Kringlumýrarbraut og beygt í veg fyrir bifreið, sem var ekið suður brautina. í fyrrnefndu bifreiðinni voru tvö böm, auk ökumanns, og slösuðust þau nokkuð. Ökumaður- inn mun einnig hlotið nokkur meiðsli, en ökumaður hinnar bif- reiðarinnar slapp. Báðar bifreiðarn- ar eru taldar gjörónýtar. úo . op Utvegsbanki Islandshf Tékkareikningur. BETRI TÉKKAREIKNINGUR í NÝJUM BÚNINGI! Tékkareikningur Útvegsbankans hefur tekið stakkaskiptum. Tékkheftin eru komin ínýjan búning og settar hafa verið nýjar reglur er varða yfirdráttarheimild, tekjulán og sparnaðarsamkomulag. Þetta eru breytingar til batnaðar sem gera verslun þína og viðskipti þægilegri og ánægjulegri. Kynntu þér þessar breytingar á næsta afgreiðslustað bankans. Morgunbladið/Jón G. Gunnarsson Hluti fundargesta á borgarafundinum í Sindrabæ. Borgarafundur á Höfn, Hornafirði: Fjárhagsáætlun kynnt Höfn, Hornafirði. Fjárhagsáætlun Hafnarhrepps var kynnt á almennum borgara- fundi { Sindrabæ, en áætlunin hljóðar uppá tæpar 118 milljónir króna og era telqur umfram gjöld tæpar 37 milljónir króna. Ellefu milljónum er varið til gatna- gerðar og 9,5 milljónir fara til af- borgana lána. Milli 60 og 70 manns sátu fundinn en honum stýrði Ari Jónsson. Mikið var fjallað um skipulags- mál, og kynntar nýjar tillögur að miðbæjarskipulagi áisamt aðalskipu- lagi fyrir hreppinn. Þá voru og kynnt- ar skipulagstillögur fyrir Homafjarð- arhöfn. Eftir inngangsmál oddvita, Sturlaugs Þorsteinssonar og skýr- ingar sveitarstjóra, Hallgríms Guð- mundssonar voru almennar umræður um ýmis málefni og fyrirspumum svarað. Talsvert var fjallað um húsnæðis- mál, og þann skort á húsnæði, sem hér er. Töldu sveitarstjómarmenn meðal annars að augsýnilega vildi fólk búa úti á landi.en ekki Qárfesta í íbúðarhúsnæði þar. Væri þvi brýnt að hægt væri að bjóða mönnum uppá leiguíbúðir, meðan þeir væm að koma sér fyrir því? eftir að menn væm búnir að tryggja sér atvinnu og skjóta rótum vildu þeir eignast húsnæði sjálfir. - JGG.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.