Morgunblaðið - 10.03.1988, Page 68

Morgunblaðið - 10.03.1988, Page 68
FERSKLEIKI 1 ^‘^^ypEGAR MESTA REYNIR trgmMnbfl* upplýsingar um vörur og \m s» S þjónustu. FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Landsveit: Misstusextíu þús- und stór laxaseiði Selfossi. FISKELDISSTÖÐIN Búfiskur í Landsveit hefur undanfarnar tvser vikur misst um 60 þúsund stór laxaseiði, 200-300 grömm á þyngd, úr tálknveiki sem kom upp í nokkrum kerjum í stöð- inni. Veikin er ekki smitandi og hefur ekki breiðst út í stöðinni. Tjón stöðvarinnar, sem hóf starf- semi fyrir ári, er tilfínnanlegt, eink- um þar sem hún missti stærstu og verðmestu seiðin. Seiðin voru að verða söluhæf og áttu að fara í matfískeldi meðal annars til Lindar- lax hf. Búfískur byggir mest á sölu stórra seiða til matfískeldis og stöð- in hefur fengið meðmæli sérfræð- inga varðandi það að þar sé ákjós- anlegt að ala upp stór seiði. Stöðin er í landi Lauga í Landsveit og hefur þá sérstöðu að nýta vatn með kjörhita, 14 gráður, sem ekki þarf að blanda. Aðalbjörn Kjartansson fram- kvæmdastjóri sagði tjónið tilfinnan- legt því þetta kæmi eingöngu í stærstu og fallegustu seiðin sem væru orðin söluhæf. Hann sagði að þrátt fyrir þetta ættu þeir ennþá seiði til að uppfylla sölusamninga bæði til matfiskeldis og til ræktun- ar í ám. Sig. Jóns. Frummynd eftir Ein- ar Jónsson til sölu Sakadómur Reykjavíkur: Maður dæmdur í tveggja o g hálfs árs fangelsi fyrir að leggja mann hníf i SAKADÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 35 ára Reykvíking, Grétar Aðalsteinsson, til 2'/2 árs fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás. Grétar lagði til ann- ars manns með hnífi og hlaut sá af skurðsár á hálsi. Það var aðfaranótt föstudagsins 16. október á síðasta ári, sem Grét- ar lagði til 24 ára gamals manns með hnífí, þar sem sá síðamefndi lá sofandi í svefnherbergi á heimili Grétars að Meistaravöllum 29 í Reykjavík. Hlaut maðurinn af skurðsár á miðjum hálsi hægra megin og talsverðar blæðingar. Sannað þótti, að Grétar hefði að tilefnislausu stungið manninn með vasahníf. Þá segir í niðurstöð- um dómsins: „Hins vegar hlaut ákærða að vera ljóst, að sú hátt- semi hans að leggja til manns í myrkri með vasahníf, þannig að til- viljun réði hvar hnífurinn lenti, var stórhættuleg og var hending ein að maðurinn hlaut einvörðungu grunnt skurðsár og bláæðablæð- ingu, en ekki slagæðablæðingu." Grétar var því dæmdur í 2V2 árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás, en til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhaldsvist hans, samtals 145 dagar. Þá var honum gert að greiða manninum, sem hann stakk, 75 þúsund krónur í bætur, ásamt vöxtum og að greiða allan sakar- kostnað. Ingibjörg Benediktsdóttir, sakadómari, kvað upp dóminn. Morgunblaðið/Kr.Ben. Eðvarð Júlíusson og Gunnar Tómasson að skýra Eiríki Tómassyni frá niðurstöðu fundarins í Reykjavík á skrifstofu Eiriks seint í gærkveldi. Innfellda myndin var tekin á félagsfundinum í gærmorg- un, þar sem samningurinn var samþykktur. V SÍ samþykkti ekki Giindavímffsamiiiiigiiin Erum ábyrgir fyrir samningnum, segir Gunnar Tómasson fiskverkandi Framkvæmdastjórn Vinnu- veitendasambands íslands ákvað síðdegis í gær að samþykkja ekki kjarasamninginn sem gerður var í Grindavík í fyrrinótt og sam- þykktur á félagsfundi i Verka- lýðsfélagi Grindavikur í gær- morgun. Samningurinn var und- irritaður með venjulegum fyrir- vörum um samþykki félagsfund- ar og framkvæmdastjórnar VSÍ. Samninganefndir fiskverkenda og verkalýðsfélagsins munu hitt- ast á fundi fyrir hádegið í dag. Gunnar Tómasson, fiskverkandi í Grindavík segir að þeir hafi gert samnings sem þeir séu ábyrgir fyrir og Benoný Bene- diktsson, formaður Verkalýðs- félags Grindavíkur segir að hann trúi ekki að VSÍ geti ómerkt samninginn. „Samningurinn var tekinn fyrir á fundi framkvæmdastjómar, því samkvæmt lögum Vinnuveitenda- sambandsins öðlast engir sámning- ar gildi nema framkvæmdastjóm samþykki þá. Um samninginn var einnig fjallað á fundi í framkvæmd- aráði Sambands fískvinnslustöðv- anna og eftir viðræður við atvinnu- rekendur í Grindavík var sú ákvörð- un tekin að hafna þessum samn- ingi. Hann hefur því verið felldur og er ekki skuldbindandi sem kjara- samningur," sagði Þórarinn V. Þór- arinsson, ■framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við Morgunblaðið i gær- kveldi. „Eftir stendur launa- og launa- kerfísvandamál í saltfiskvinnslu, sem er burðarásinn í atvinnulífínu í Grindavík. Það er vilji til þess af allra hálfu að fínna lausn á því, þar sem það liggur fyrir að laun í salt- fiskvinnslu hafa ekki verið sam- bærileg við það sem gerist í frysti- húsavinnu. Að þessu viljum við og verkendur í Grindavík vinna, en þeir munu fjalla nánar um málið á fundi á sínum vegum í fyrramálið (í dag). Ég tel að samningurinn hafí af þessum sökum ekkert for- dæmisgildi og breyti engu um stöðu mála,“ sagði Þórarinn ennfremur. Hann sagði að fundir yrðu með ríkissáttasemjara og verkalýðsfé- lögunum á Austurlandi á Egilsstöð- um á föstudag og verkalýðsfélögum á Norðurlandi á Akureyri á laugar- dag. Síðan yrði fundur með verka- lýðsfélögunum hjá ríkissáttasemj- ara á mánudaginn kemur. „Það sem gerist núna er að allar viðræður fara til sáttsemjara, en ég á fast- lega von á því að sérstakar viðræð- ur verði um saltfiskvinnsluna og þær geta allt eins orðið í Grindavík eins og annars staðar," sagði Þórar- inn að lokum. Framkvæmdastjóm Verka- mannasambands íslands ákvað í gær að hafa ekki afskipti af þeim samningaviðræðum sem í hönd fara að svo stöddu, þar sem líkur séu á að þær verði á vegum svæðasam- banda og einstakra félaga. Hins vegar mun VMSÍ fylgjast grannt með framvindunni og er reiðubúið til aðstoðar, ef eftir því verður leit- að. Sjá viðtöl á bls. 2 og Grindavík- ursamninginn á bls. 4. FRUMMYND eftir Einar Jóns- son verður á næstunni boðin til sölu; gipsmynd af konu í skaut- búningi. Myndin er 95 cm að hæð og gerð 1896 til 98 að sögn Ólafs Kvaran forstöðumanns Lista- safns Einars Jónssonar. Áritun listamannsins er á stöpli stytt- unnar og er ekki vitað til þess að afsteypur hafi verið gerðar af henni. Sagði Ólafur, að stytta þessi væri eitt fárra verka lista- mannsins, sem engar minjar eru til um I safninu. Myndina gerði Einar á námsár- um sínum í Kaupmannahöfn og var hún í eigu danskra manna þar til 1946, er íslensk flölskylda eignað- ist hana og flutti hana hingað til lands. Styttan hefur síðan verið í eigu fjölskyldunnar. Lögmannastofan sf., Skipholti 50b, Reykjavík, mun annast sölu styttunnar fyrir hönd eigenda og að sögpi Gunnars Jóhanns Birgis- sonar hdl. verður auglýst eftir til- boðum og styttan sýnd einhvem allra næstu daga. Að sögn hans vilja eigendumir ekki láta nafns síns getið. Styttan var boðin til sölu á list- munauppboði Sigurðar Benedikts- sonar árið 1958 en þá barst ekki tilboð sem eigendur töldu viðun- andi. Morgunblaðið/Svcrrir -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.