Morgunblaðið - 20.04.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÍ), MIÐVIKUDAGUR 20. APRtL 1988
Greenpeace í Lúxemborg;
Ferðaskrifstofur hvattar til
að sneiða hjá Flugleiðum
Áhrifin óijós, því þegar var orðið erfitt að selja ferðirn-
ar að sögn talsmanna ferðaskrifstofa
Zilrich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðaing.
GREENPEACE í Lúxemborg
sendi 35 ferðaskrifstofum þar í
landi bréf nú um helgina og hvatti
þær til að sneiða hjá viðskiptum
við Flugleiðir vegna hvalveiði-
stefnu Islendinga. Starfsmenn
tveggja skrifstofa, sem Morgun-
biaðið hafði samband við, sögðu
að það væri þegar erfitt að selja
Lúxemborgurum ferðir yfir Norð-
ur-Atlantshafið með Flugleiðum
hvað sem liði hvalveiðistefnu ís-
lendinga. Framkvæmdastjóri
Sotour sagði að Flugleiðir byðu
ekki lengur lægstu fargjöldin til
Bandarfkjanna og sölumaður hjá
Transeurope sagði að flugvéla-
kostur Flugleiða væri ekki sam-
keppnisfær við vélakost annarra
flugfélaga.
Greenpeace vakti athygli á baráttu
sinni gegn hvalveiðum íslendinga
með því að blása upp 16 metra lang-
an hval á þaki flugstöðvarinnar í
Lúxemborg á laugardag. Roger
Spautz, starfsmaður samtakanna,
sagðist vera ánægður með frásagnir
af uppákomunni í flölmiðlum í gær.
„Við blésum hvalinn upp um 11-
leytið og lögreglan kom strax á yett-
vang. Við áttum stuttan fund með
henni og sögðumst ætla að vera
þama fram eftir degi. Hún hótaði
að Ijarlægja okkur méð valdi en
hætti við þegar við bentum á að það
myndi aðeins velq'a meiri athygli í
fjölmiðlum en friðsamlegar mót-
mælaaðgerðir okkar."
Kjósa breiðþotur
Starfsmenn ferðaskrifstofanna
sögðu að aukin athygli á hvalveiði-
stefnu íslendinga gæti hugsanlega
haft áhrif á viðskipti Flugléiða í
framtíðinni. „En ég mun ekki láta
áskorun Greenpeace um viðskipta-
bann á Flugleiðir hafa áhrif á mitt
starf," sagði Decker hjá Trans-
europe. „Eg sé ekki að Flugleiðir
hafi neitt með hvalveiðar að gera.“
Hún sagði að sér reyndist erfitt að
selja ferðir með Flugleiðum til
Bandaríkjanna af því að farþegar
kjósa heldur að fljúga með breið-
þotum annarra flugfélaga frá Frank-
furt eða London en DC-8-vélum
Flugleiða. Goerens hjá Sotour sagði
að það væri erfítt að dæma um áhrif
baráttu Greenpeace gegn Flugleiðum
af því að flugfélagið byði ekki lengur
bestu kjörin yfir hafíð og vélakostur-
inn væri orðinn gamall. „Það væri
fróðlegt að sjá áhrif baráttunnar ef
samkeppnisstaða Flugleiða væri
betri."
VEÐUR
Heimild: Veöurstofa islands
(Byggl á veðurspá kl. 16.15 í gær)
í DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 20.4. 88
YFIRLIT í gær: Gert var ráð fyrir stormi á suðaustur- og suður-
djúpi. Yfir Grænlandi er 1035 mb. hæð, en 980 mb iægð um 1000
km vestur af Irlandi, hreyfist lítið. Frostlaust verður syðst á landinu
yfir hádaginn, en annars frost víöast 2—7stig.
SPÁ: Á morgun Iftur út fyrir norðaustan- og austanátt, víðast golu.
Smáél verða við austurströndina en annars úrkomulaust og yfir-
leitt léttskýjað. Hiti 2—5° yfir hádaginn sunnanlands, en nálægt
frostmarki fyrir norðan. Talsvert næturfrost víða um land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG:Austanátt og áfram
kalt, en þó frostlaust að deginum syðra. Él austanlands og við
suðurströndina, en þurrt og bjart vestanlands og í innsveitum fyr-
ir noröan.
TÁKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
V Él
— Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- . Skafrenningur
Þrumuveður
vn - VEÐUR VÍÐA UM HE\M kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hHI veður Akureyri +2 skýjað Reykjavík 1 létlakýjað
Bergen 6 rigning
Helalnki 8 iéttskýjað
ian Mayen +6 léttskýjað
Kaupmannah. 10 skýjað
Narsaarssuaq +4 heiðskfrt
Nuuk +1 léttskýjað
Osló 7 skýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Þórshöfn 3 alskýjað
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 21 mlstur
Aþena vantar
Barcelona vantar
Bertfn 21 léttskýjað
Chicago 1 heiðskfrt
Feneyjar 19 þokumóða
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 12 mlstur
Hamborg 22 léttskýjað
Las Palmas 21 skýjað
London 16 mlstur
Los Angeles 14 atskýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madrfd 18 ekýjað
Malaga 22 skúr
Mallorca 20 mlstur
Montreal 1 léttskýjaö
New York vantar
Parft 22 skýjað
Róm 18 þokumóða
Vfn 20 heiðskfrt
Washlngton 7 alskýjað
Winnlpeg 46 léttskýjað
Dæmigerð sjón á bilastæðum borgarinnar. Númeralaus bifreið hefur
verið skilin eftir.
Reykjavík:
Oskráðar bifreið-
ar á víðavangi
„Bifreiðum hefur fjölgað gífur-
lega mikið og lögreglan hefur
hert mjög eftirlit með umskrán-
ingu þeirra,“ sagði Ingi Ú. Magn-
ússon gatnamálastjóri, en nokkur
brögð eru að þvi að bifreiðaeig-
endur gamalla bifreiða taki þá af
skrá og skilji þær eftir á bifreiða-
stæðum og opnum svæðum i borg-
inni.
Hreinsunardeild borgarinnar hefur
beint þeim tilmælum til borgarbúa,
að þeir Qarlægi bifreiðamar hið
fyrsta. Annars má búast við að
hreinsunardeildin taki þær til
geymslu um tíma áður en þær fara
á sorphaugana. „Það kostar ekki
mikið að koma bifreið á haugana en
mönnum fínnst þægilegt að skilja
hana eftir þar sem hún er komin og
láta borgina um að hirða hana," sagði
Ingi.
Eftir að hreinsunardeildin hefur
tekið bifreiðina í sína vörslu er hún
auglýst og ef eigandinn gefur sig
ekki fram er henni fargað.
Dómur í deilu á ísafirði:
Lóðæigendur eiga
ekki landaukann
við Hafnarstræti
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
undirréttar i máli, sem lóðaeig-
endur á ísafirði höfðuðu, til að
fá úr því skorið hvort þeir ættu
tilkall til uppfyllingar út i sjó fram
við lóðir þeirra. Dómstólamir
komust að þeirri niðurstöðu að svo
væri ekki.
Málavextir eru þeir, að fsaflarðar-
kaupstaður lét gera uppfýllingu út í
sjó við Hafnarstræti og var Kaup-
félagi ísaflarðar úthlutað þar bygg-
ingarlóð. Þessu vildu eigendur lóðar-
innar nr. 11 við götuna hins vegar
ekki una og töldu að þeir ættu til-
kall til uppfyllingarinnar. Visuðu
þeir til þess, að lóðir þeirra hefðu
verið sjávarlóðir og ættu að halda
áfram að liggja að sjó. Á móti var
því haldið fram að lóðaeigendumir
gætu ekki átt tilkall til uppfýllingar-
innar, heldur yrði lóð þeirra takmörk-
uð við upphaflega útmælingu.
í forsendum héraðsdóms, sem
Hæstiréttur vísar í, er vitnað til
ákvæða um bygginganefnd ísafjarð-
ar. Síðan segir að við úthlutun lóð-
anna, sem um hafí verið að ræða,
hafí stærð þeirra jafnan verið tiltek-
in og lega þeirra gefin til kynna.
Engin ákvæði sé hins vegar að fínna
um að lóðunum ættu að fylgja rétt-
indi til flöru eða netalagna. Var því
kröfu lóðaeigendanna hafnað.
Einn lóðaeigendanna áfrýjaði mál-
inu til Hæstaréttar og kraJfðist þess
að viðurkennd yrði eignaraðild hans
að landaukanum og að lýst yrði ólög-
mæt sú ákvörðun ísafjarðarkaup-
staðar að úthluta Kaupfélaginu lóð
á uppfyllingunni. ísafjarðarkaup-
staður krafðist þess að hann yrði
sýknaður af þessum kröfum, en til
vara, að lóðareigandanum yrði gert
að greiða kostnað af gerð landauk-
ans.
Hæstiréttur staðfesti, sem fyrr
sagði, dóm undirréttar og sýknaði
því ísafjarðarkaupstað og Kaupfé-
lagið af kröfum lóðareigandans.
Dóminn kváðu upp hæstaréttardóm-
aramir Magnús Thoroddsen, Bene-
dikt Blöndal, Guðmundur Jónsson,
Hrafn Bragason og Þór Vilhjálms-
son.
Rafmagnsleysi hijá-
ir bíleigendur
- segir starfsfólk leigu- og sendibílastöðva
LEIGU- og sendibilastöðvar hafa
nm langt skeið boðið bílstjórum
þá þjónustu að ræsa bifreiðir þeg-
ar rafmagnið þrýtur af einhverj-
um orsökum. Ljósaskylda allan
sólarhringinn hefur aukið eftir-
spurn eftir þessari þjónustu til
mikilla muna, að mati starfsfólks
þeirra stöðva er blaðið leitaði til.
Hvert útkall kostar nú 390 krónur
samkvæmt gjaldskrá.
„Það er geysilega mikið um að
menn biðji um startkapla og eftir-
spumin virðist sú sama allan dag-
inn,“ -sagði Þorbjörg Sigtiyggsdóttir
símavörður á leigubílastöðinni
Hreyfli þegar blaðamaður innti hana
eftir þessu. „Ég held að það fari
ekki á milli mála að nýju umferðar-
lögin eigi hér mikinn þátt að máli.
Við urðum strax vör við að eftir-
spumin óx þegar ljósanotkun var
gerð að skyldu," sagði Þorbjörg.
Á öðrum stöðvum var tekið I sama
streng. „Það voru tveir rafmagns-
lausir að hringja rétt í þessu. Frostið
undanfarið spilar örugglega eitthvað
inní, en ég held að aukinni ljósanotk-
un sé mest um að kenna hvað þetta
hefur aukist," var viðkvæði viðmæ-
landa á einni sendibílastöðvanna.