Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988
71
KORFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN
Morgunblaðiö/Einar Falur
Pálmar Slgurðsaon átti ótrúlegan leik i gær. Hann skoraði 11 þriggja stiga
körfur og alls 43 stig. Hér er hann kominn upp og Helgi Rafnsson kemur
engum vömum við.
UMFN - Haukar
91 : 92
fþróttahúsið f Njarðvfk, úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar f körfuknattleik, þriðjudaginn
19. aprfl 1988.
Gangur leiksins: 0:3, 2:8, 4:14, 4:18, 8:19, 11:25, 20:29, 27:84, 31:34, 35:36, 87:39,
39:42, 46:50, 61:50, 66:52, 60:68, 64:60, 64:63, 66:66, 69:71, 74:78, 77:77, 79:79,81:
83, 86:87, 88:90, 91:90, 91:92.
Stig UMFN: Vaíur Ingimundarson 38, Teitur örlygsson 22, Hreiðar Hreiðarsson 12,
Sturla örlygsson 7, ísak Tómasson 7, Helgi Rafnsson 6, Friðrik Ragnarsson 4.
Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 43, Henning Henningsson 16, fvar Ásgfmsson 14, Ingi-
mar Jónsson 6, ívar Webster 6, Reynir Kristjánsson 4, Ólafur Rafnsson 3.
Áhorfendur: 800.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Ómar Scheving og dœmdu þeir erfiðan leik vel.
Hvað sögðu þeir?
í.,nr lllnhuf-—
ivar woDswor:
„Ég var orðin útkeyrður þegar ég
varð að fara af leikvelli undir lok-
inn með 5 villur, enda búinn að
vera inn á allan leikin. Þetta var
erfitt en skemmtilegt, svona eiga
úrslitaleikir að vera.“
Hálfdán Markússon aAstoð-
arþfálfaH Hauka:
„Dagskipunin þjá okkur var að
hætta aldrei, Við gerðum okkur
grein fyrir því að möig mistök
yrðu gerð í leik sem þessum og
ef menn gerðu mistök þá þýddi
ekki að æðrast heldur að halda
áfram og gera betur næst. Þetta
tókst hjá strákunum og við erum
að sjálfsögðu I sjöunda himni. En
þetta var einn af þeim leikjum þar
manni finnst leitt að annað liðið
skuli þurfa að bíða ósigur.“
Inglmar Jónsson:
„Vömin var góð hjá okkur í leikn-
um og baráttan var í lagi. Það
hafði l(ka mikið að segja að fara
ekld á taugum { framlengingun-
um. Við komum til þessa leiks
með því hugarfari að sigra og það
tókst."
nonning nOTningison;
„Þetta var spuming um að hafa
HAUKAR ÍSLANDSMEISTARAR FYRSTASINNI
qi - __ _ # » iviorgunDiaoio/tinar raiur
sigurgiMi Hauka var mikil og hér dansar Henning Henningsson við bikarinn glæsilega. Ólafur Rafnsson Reynir
Knstjánsson og Pálmar Sigurðsson fylgjast með.
Otmleg spenna
Tvíframlengdur úrslitaleikur í Njarðvík — Reynir Kristj-
ánsson tryggðu Haukum sigur á síðustu sekúndunum
HAUKAR tryggðu sér f gœr-
kvöldi íslandsmeistaratitilinn f
körfuknattleik í fyrsta sinn,
með slgri á Njarðvfkingum í
stórkostlegum úrslitaleik f
fþróttahúsinu í Njarðvík.
Allt var á suðupunkti í íþrótta-
húsinu í Njarðvík í gærkvöldi
á lokasekúndunum { leik Njarðvík-
inga og Hauka, staðgn 91:90
^■■■■1 Njarðvíkingum ( vil,
Bjöm eftir að leiknum
Blöndal hafði verið fram-
skrifar lengt tvívegis. Valur
Ingimundarson
hafði þá skorað tvö stig og á klukk-
unni mátti sjá að 11 sekúndur voru
til leiksloka. Haukar hófu leikinn
og Njarðvíkingar hugsuðu aðeins
um að Pálmar Sigurðsson gæti ekki
tekið skot, en hann hafði verið þeim
erfiður ljár í þúfu enda búinn að
skora 43 stig. Þar með losnaði um
Reynir Kristjánsson sem fékk bolt-
ann í góðu færi og hann lét ekki
segja sér tvisvar hvað gera skyldi
og sendi boltann ömgglega í körfu
Njarðvíkinga og tryggði með þvl
liði s(nu Islandsmeistaratitilinn. í
þann mund rann leiktíminn út og
Haukar og aðdáendur þeirra fögn-
uðu óvæntum meistaratitli innilega.
Þar með var einhveijum mest
spennandi körfuboltaleik sem hér
hefiir verið leikinn lokið.
„Meistaraheppni var með okkur að
þessu sinni og hún skipti sköpum
í þessum leik. Eins var það að
menn áttuðu sig á því í Hafnarfírði
á sunnudaginn að Njarðvíkingar em
ekki ósigrandi. Það er erfitt að vera
á toppnum lengi, því allir vilja sigra
meistarana," sagði Pálmar Sigurðs-
son þjálfari og leikmaður Hauka
eftir leikinn. „Við vomm einfaldlega
ekki nægilega hungraðir eftir að
veija titilinn, það var ástæðan fyrir
að okkur tókst ekki að sigra í þess-
um leik. Þeir em með gott lið, en
við emm, betri og eigum að geta
unnið þá á eðlilegum degi,“ sagði
Valur Ingimudarson leikmaður og
þjálfari UMFN sem var óhress með
úrslitin.
Haukamir komu Njarðvíkingum í
opna skjöldu með kraftmiklum leik
og þeir náðu fljótlega 12 stiga for-
skoti, en undir lok hálfleiksins tókst
Njarðvíkingum að minnka muninn
í 2 stig. Njarðvíkingar voru ótrúiega
lengi í gang og það tók þá 3 mínút-
ur að skora fyrstu stigin.
Slðari hálfleikur var hnífjafn, Hauk-
amir oftast með undirtökin, én
Njarðvíkingar vom aldrei langt
undan. Undir lok leiksins náðu
Njarðvíkingar síðan 3ja stiga for-
skoti og allt virtist stefiia í enn einn
sigurinn hjá þeim, en Pálmar Sig-
urðsson jafnaði með glæsilegri 3ja
stiga körfu og jafnaði leikinn. Þá
varð að framlengja í 5 mínútur og
undir lok þeirrar framlengingu vora
Njarðvíkingar með 2ja stiga for-
skot, en tvö vítaskot ívars Ás-
grímssonar jöfnuðu leikinn og þvf
varð að framlengja honum aftur
um 5 mínútur. Það var svo á síðustu
sekúndum þeirrarV framlengingu
sem ReyTiir Kristjánsson tryggði liði
sínu sigur eins og áður sagði. „Ég
komst í gott færi, það var enginn
Njarðvíkingur fyrir framan mig og
í stöðunni var ekki um annað að
ræða en' að taka skotið og það
tókst," sagði Reynir um þetta mikil-
væga augnablik.
Pálmar Sigurðsson var maður þessa
leiks og réðu Njarðvíkingar ekkert
við hann. Pálmar skoraði 43 stig í
leiknum og þar af vora 11 þriggja
stiga körfur. ívar Webster var einn-
ig góður að þessu sinni, náði
aragrúa frákasta og var eins og
klettur í vörninni. Henning Henn-
ingsson var góður f fyrri hálfleik
og ívar Ásgrímsson var einnig góð-
ur, skoraði mikilvæg stig á réttum
augnablikum.
Njarðvíkingar vora ekki í essinu
sínu að þessu sinni og e.t.v. hafa
þeir talið Haukana auðvelda bráð.
Valur Ingimundarson var þeirra
besti maður ásamt Teiti Örlygssyni
og Hreiðari Hreiðarssyni en aðrir
náðu sér ekki á strik.
viljann til að sigra og hann var
okkar megin að þessu sinni. Loks-
ins sáum við árangur margra ára
þjálfunnar, þetta var hreint út
sagt frábært."
Ólafur Rafnsson:
„Mér gekk ekki sérlega vel að
þessu sinni, en sigurinn er jafn-
kærkomin fyrir því. Við náðum
ótrúlega góðum leik í upphafi sem
hefur ef til vill sett þá út af lag-
inu, en vömin var góð og það
ásamt hittni Pálmars réðu bagga
mun að þessu sinni."
Tattur örlygsson:
„Þetta var spuming um sekúndur
undir lokin, við einbeitum okkur
að Pálmari og gieymdum að gæta
Reynis sem náði að skora fyrir
bragðið. Þetta var æsispennandi
leikur og gat farið á hvom veginn
sem var.“
Sturla Öriygsson:
„Betra liðið vann. Pálmar var
óstöðvandi í leiknum og það héldu
honum engin bönd. Ég var ekki
ánægður með mfna frammistöðu,
komst aldrei inn í leikinn."
ísak Tómasson:
„Þetta var slakur leikur af okkar
hálfu og dæmið gekk einfaldlega
ekki upp hjá okkur að þessu sinni.
En það kemur dagur eftir þennan
dag og við komum tvíefldir til
næsta leiks."
Fffiðrlk Raonarmson:
„Það var erfitt að koma inn (Ieik
sem þennan, en það hjálpaði mér
að hafa fengið tækifæri í fyrri
leikjum. Leikurinn var ótrúlega
spennandi frá upphafí til enda og
það var gaman að fá tækifæri
þrátt fyrir ósigurinn."
HralðarHraiðarsson:
„Pálmar Sigurðsson var hreint út
sagt frábær í þessum leik og það
héldu honum engin bönd og hittni
hans hreint ótrúleg. Ég held að
þessi leikur verði lengi í minnum
hafður, enda bauð hann upp á
allt sem hægt er að hugsa sér í
einum úrslitaleik."
Hilmar Hafatelnsson aðstoð-
srMálfaHUMFN:
„Ég hef tekið þátt í mörgum
spennandi leikjum um dagana, en
þessi slær þeim öllum við. Hauk-
amir vora á réttu róli að þessu
sinni og þeir höfðu Pálmar Sig-
urðsson."