Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988 Minning: Jón Þór Jónsson Fæddur 23. ágúst 1971 Dáinn 9. apríl 1988 Láttu smátt, en hyggðu hátt. Heilsa kátt, ef áttu bágt Leik ei grátt við minni mátt. Mæltu fátt og hlæðu lágt. (Einar Benediktsson) Þessar ljóðlínur komu upp í hug minn þegar ég frétti hið sviplega andlát Jóns Þórs fyrrum nemanda míns. Jón Þór var einn af nemendum mínum í H-bekknum í Kópavogs- skóla í 7 ár. Þetta var afskaplega kraftmikill og skemmtilegur hópur og margar ánægjustundir áttum við saman þessi ár bæði í leik og námi. Jón Þór var raunar hægur og dulur en hann naut sín samt vel með hópnum og átti þar sína bestu vini, sem fylgja honum nú hinsta sinni. Hann var afar hjálpsamur og sam- viskusamur og það var hægt að treysta honum í hvívetna. Mér eru minnisstæð skólaslitin síðastliðið vor. Þá mættu nemendur með blendnar tilfínningar eins og ævinlega. Þeir hlökkuðu til að tak- ast á við ný og öðruvísi verkefni heldur en skyldunámið býður upp á en vissu jafnframt að hópurinn mundi tvístrast „vík yrði milli vina“. Við Jón Þór kvöddumst og þökkuð- um hvort öðru samfylgdina þessi ár. Ég vonaði svo sannarlega að við ættum eftir að hittast seinna á lífsleiðinni. Ég frétti af honum öðru hvoru þessa mánuði sem liðnir eru frá kveðjustund okkar. Hann hafði val- ið að reyna sig úti á vinnumarkaðn- um. Þar veit ég hann hefur reynst „drengur góður" til hinstu stundar. Vík er milli viha, stærri og meiri en nokkum óraði fyrir síðastliðið vor. Ég þakka Jóni Þór allar sam- verustundimar og minnist orða frelsarans sem vip lásum saman í biblíusögutíma, „Ég er upprisan og lífíð, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi“, og þannig mun Jón Þór lifa áfram, aðeins á öðru til- verustigi. Og hann lifír einnig í minningunni hjá okkur. Foreldmm hans og öðrum ástvin- um sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minnig hans. Valdís Þorkelsdóttir Jón Þór, vinur okkar og bekkjar- félagi, hefíir nú kvatt okkur. Frá 6 ára aldri fylgdumst við að í gegnum langa og litríka skólagöngu. í fyrra skildust leiðir þegar við útskifuð- umst saman úr 9. bekk. Svo fór hver í sína átt og byijaði að takast á við framtíðina eftir áhyggjuleysi grunnskólans. Við höfðum gaman af því að spá í hvað yrði úr bekkjar- félögunum og síst af öllu datt okk- ur í hug að einn af okkur myndi falla frá, aðeins 16 ára. Þegar við fréttum af andláti Jóns Þórs þá brá okkur mjög, því dauðinn er svo fjar- lægur okkur á þessum aldri. Jón Þór var sannur vinur vina sinna og vinsamlegur við alla. Hann var hlédrægur, ljúfur og það fór lítið fyrir honum. A tímabili var hann á kafí í hestamennsku, og þeir sem voru með honum þar sáu þá að hann var mikill dýravinur og jafn ljúfur við menn og málleys- ingja En eins og hjá mörgum ungl- ingsstráknum viku hestamir fyrir mótorhjólunum. Jón Þór var mjög hraustur og stundaði vaxtarraékt af kappi. Samt var hann spar á krafta sína og tók aldrei á móti t KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR, Faxaskjóli 10, andaðist þann 18. apríl. Þórunn Árnadóttir, Hólmfríður R. Árnadóttir, Svala Eyjólfsdóttir, Jón R. Árnason og aðrir vandamenn. t Elskulegur eiginmaöur mipn, JÓN HJÁLMARSSON, Laugateigi 11, andaðist 18. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Hulda Þorsteinsdóttir. t Fósturmóðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA JÓHANNESDÓTTIR frá Umsvölum, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 22. apríl kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti Hallgríms- kirkju eða líknarstofnanir njóta þess. Steinunn G. Kristiansen, Jónas Jóhannsson, Ásrún Þórhallsdóttir, börn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir og sonur, GUÐMUNDUR INGIMARSSON, Skólagerði 46, Kópavogi, lést í Landspítalanum 19. apríl. Arnþrúður G. Guðmundsdóttir, Örn G. Guðmundsson. Ingimar Finnbjörnsson. strákunum í bekknum þegar þeir voru að fljúgast á, svona til gam- ans. En aftur á móti sannaði hann yfírburði sína í sjómanni. Fráfall Jóns Þórs er mikill missir fyrir okkur sem vorum í bekknum en við getum huggað okkur við það að við hljótum að hitta hann aftur — einhvers staðar, einhvem tímann, f öðru lífí. Við vottum aðstandendum og nánustu vinum hans okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd H-beklq'arins úr Kópavogsskóla Þráinn, Kristján Þór og Hrund. Minning: Kveðjuorð: Þórður Loftsson frá Bakka Þórður frá Bakka í Landeyjum lést 10. mars sl. Lokið er ævi góðs drengs í háro elli. Þórður fæddist á Bakka 31. maí 1906. Foreldrar hans voru Kristín Sigurðardóttir (1874-1957) Hall- dórssonar bónda og formanns í Álf- hólahjáleigu í Vestur-Landeyjum og Loftur Þórðarson (1867—1954) Brynjólfssonar. Loftur og Kristín tóku við búi á Bakka 1905 og bjuggu þar til 1941. Þá tóku við búi Sigurður og Bjöm, bræður Þórðar. Þeir bmgðu búi 1947 og Bakkafólk fluttist að Hellu á Rangárbökkum. Ég man Þórð Brynjólfsson sem bjó á Bakka 1893—1905. Kona hans var Jómnn Loftsdóttir frá Klasbarða í V-Landeyjum. Þórður kom eitt sinn um vetur til okkar að Rimakoti, hressilegur karl og orðheppinn. Pabbi sýndi honum heyin og lömbin, sem þá var siður. í heygarði föður míns mátti varla sjá laust strá og þótti mér nóg um þá nostursemi. Um leið og Þórður kvaddi seildist hann í vasa sinn, dró upp buddu sína pijónaða, þá einu sem ég hef séð þeirrar gerðar, og gaf mér krónu; ég má segja þá fyrstu sem ég eignaðist. Hverfíð okkar, Hólmahverfið, var um margt merkilegt samfélag. í Hólmum bjó Gunnar hreppstjóri. Andrés, sonur Gunnars, kom fram með „hugmynd að skuttogara fyrst- ur manna í heiminum svo vitað sé“ Elínmundur Ólafs Fæddur 28. maf 1901 Dáinn 10. apríl 1988 Afí minn Elínmundur Ólafs lést í Borgarspítalanum þann 10. apríl sl. á 87. aldursári. Afí fæddist í Pálsbæ á Seltjamar- nesi þann 28. maf árið 1901. Hann var sonur hjónanna Runólfs Ólafs skipstjóra og útgerðarmanns og Elínar Ólafsdóttur húsmóður. Afí var yngstur Qögurra systkina, elst var Karólína, þá Ólafur og Ólafía. Árið 1927 kvæntist afí ömmu, Karólfnu Fríðsteinsdóttur Ólafs. Hún fæddist þann 6. maí árið 1903 en andaðist þann 22. apríl árið 1970. Foreldrar hennar voru hjónin Fríðsteinn Guðmundur Jónsson í Fagurlist í Vestmannaeyjum og Ástrfður Hannesdóttir. Með þeim afa og ömmu voru miklir kærleik- ar. Þeim varð tveggja sona auðið, þeirra Björgvins og föður míns Runólfs Más en hann lést þann 31. maí árið 1973. Ég og bróðir minn Ólafur kynnt- umst afa best síðustu 15-20 árin. Það var okkur dýrmætur tfmi þar sem afi var sérstaklega vandaður maður. Maðus sem fyigdist vel með þjóðmálum og tækninýjungum og hafði ákveðnar skoðanir á málum. Ekki var hann mjög mannbiendinn hin síðari ár en leið ætíð vel innan um sitt fólk. Sérstaklega birti yfír honum þegar bamabömin léku sér i kringum hann. Afí var alla tíð ef undan eru skil- in síðustu árin mjög heilsuhraustur. Eftir að amma lést bjó afí á Lauga- teigi 3 hér f borg allt þar til að á miðju ári 1986 að hann flutti f þjón- ustufbúð í Seljahlíð við Hjallasel. Þar leið honum vel og vil ég koma á framfæri þökkum til starfsfólks þar fyrir alll það sem gert var fyr- ir afa. Einnig vil ég koma á framfæri sérstöku þakklæti til móður minnar Magneu Þorsteinsdóttur og eigin- manns hennar Þórs Vignis Stein- grímssonar fyrir alla þá vináttu og hlýju er þau ætíð sýndu afa. Gest- risni þeirra í garð afa var einstök og hjá þeim leið afa vel. Sérstak- lega em mér minnisstæð sfðustu áramót. Afí sem var vanur að fara snemma í háttinn síðustu árin vildi ekki fyrir nokkum mun missa af þeirri ljósadýrð sem sjá mátti frá heimili þeirra þegar við fögnuðum nýju ári saman. Blessuð sé minning afa mfns. Þorsteinn Ólafs (íjóðv. 20. sept. 1987). Á Bakka bjó Loftur, orðlagður smiður og Kristín ljósmóðir. I Hólmahjáleigu var á þessum ámm bamaskóli og þar bjó lengi Jónas, aflasæll for- maður með skipið Svan. Á Önund- arstöðum bjó Ársæll og Anna, syst- ir Lofts á Bakka. Þar minnist ég þess að tvær gamlar konur lágu í kör. Þá var ekki til siðs að senda þá öldmðu og útslitnu á stofnanir. Þórður Loftsson fór til náms í Flensborgarskóla 1924 og lauk prófi sem gagnfræðingur. Það var litið upp til Flensborgara í þá daga; sumir urðu bamakennarar og fam- aðist vel í starfi. Ég hygg að Þórð- ur hefði kosið lengri skólagöngu þó ekki væri um það rætt. Hann var kennari í A-Landeyjum tvo vet- ur, síðar skólastjórí á Hellu nokkur ár og sfðast kennari við bamaskól- ann í Þykkvabæ tvö skólaár. Eftir 1930 fluttum við aftur í nágrenni við Bakkafólkið. Tókust þá góð kynni með okkur Þórði. Hann var félagshyggjumaður og starfaði mikið að félagsmálum í héraðinu. Þórður var lengi í félagi umf. Dagsbrún í A-Landeyjum. Kreppa í landi en ekki í félagstarfínu í Dagsbrún. Þetta var hópur ungs fólks sem átti ekkert nema bjartsýni, sam- heldni og lífsgleði. Frá þessum ámm er margs að minnast þó fátt verði skráð. Eg var samferða Þórði á nokkur héraðs- þing íþróttasambandsins Skarphéð- ins. Ég naut þá reynslu Þórðar frá fyrri þingum, er var mér gott vega- nesti. Flest vom þessi þing háð í Haukadat á þessum ámm. Að koma þar í fyrsta sinn var ævintýri fyrir mig fávísan sveitapilt, og þá sér í lagi að kynnast hinni eftirminnilegu kempu Sigurði Greipssyni og skól- anum hans. Og svo að sjá Geysi í fyrsta sinn þó ekkert væri gosið. Sigurður sagði um hverina: „Hver- imir em mér mjög nákomnir. Það er nefnilega þannig að sériiver hef- ur sinn róm.“ En fleira er mér í minni frá fyrstu ferð minni f Haukadal. T.d. fyrsta borðhaldið með skólasveinum. Að því loknu stóð Sigurður á fætur og mælti: Nú stöndum við upp, tök- umst í hendur og segjum: Njóttu heill." Eða þá þegar strákamir komu upp úr lauginni og veltu sér í snjónum í hörkufrosti. Öðm sinni stóð svo á að Dags- brún „færði upp“, eins og það var kallað, Mann og konu, valda leik- þætti. Þórður var þar í hlutverki t Móðir, fósturmóðir, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, Mýrum, Villingaholtshreppi, er lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 13. apríl, verður jarðsungin frá Villingaholtskirkju laugardaginn 23. apríl kl. 14.00. Guðmunda Sigurðardóttir, Kristinn Sigurðsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Margrét Sigurgeirsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.