Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988 7 Arnarflug fær nýja þotu: Hefja beint flug til Mílanó í júní Á LAUGARDAG kom hingað til lands ný þota Arnarflugs af gerðinni Boeing 737 - 200. Flug- félagið hefur þotuna á leign til sex mánaða til að byrja með, og verður hún meðal annars notuð á nýrri ásetlunarleið til Mílanó. Arnarflug hyggst hefja beint flug þangað 24. júní. Að sögn Kristins Sigtryggsson- ar, framkvæmdastjóra Amarflugs, er þotan sömu gerðar og eldri þota félagsins, en er eingöngu innréttuð til farþegaflutninga. Gamla þotan getur bæði flutt fragt og farþega. Þotan er leigð til sex mánaða, með framlengingar- og kauprétti. Hún tekur 112 farþega í sæti. Kristinn sagði að beint flug til Mílanó hæfist 24. júní. „Það var fyrst og fremst vegna mikillar eft- irspumar ítala sjálfra, sem við ákváðum að taka upp beint flug,“ sagði Kristinn. ^Síðasta sumar komu jafnmargir Italir og Hollend- ingar til fslands, þótt við gætum flogið beint með Hollendingana en ítalimir þyrftu að fara krókaleiðir. Það er nú þegar búið að bóka svo mikið hjá okkur í sumar að nokkr- ar ferðir eru orðnar yfirfullar." Morgunblaðið/Pétur P. Johnson Þotur Amarflugs á flugi yfir Reykjavík á laugardaginn. Nýja þotan er fjær á myndinni. Morgunbla4ið/Ámi Sœberg Myndin var tekin í Hjólbarðahöll- inni í Reykjavík, þar var orðið annasamt við dekkjaskiptin, þótt mesta ösin sé ekki enn komin. Tími nagla- dekkjanna að renna út Nú er tími nagladekkjanna senn útrunninn á þessum vetri. Allir bilar eiga að vera komnir á ónegld dekk þann 1. maí, eftir 10 daga. Margir höfuðborgarbú- ar eru þegar búnir að skipta og setja sumardekkin undir bíla sína, þótt ekki sé orðið sumarlegt veðrið. Að sögn Inga Ú. Magnússonar gatnamálastjóra er talið að dregið hafi úr notkun negldra hjólbarða um 15% frá síðasta ári eða úr 75% bifreiða í 60%. í fjárhagsáætlun borgarinnar er gert ráð fyrir um 100 milljónum króna til viðhalds á þessu ári og verður hafist handa í næsta mánuði og gert við aðal umferðargötur borgarinnar sem víða eru illa famar. Um 600 vísur íbaráttuna gegn tóbaki Tóbaksvarnanefnd efndi til vísnasamkeppni fyrir skömmu þar sem óskað var eftir vísum eða textum í baráttuna gegn tó- baksnotkun. Til stóð að kynna úrslit fyrir reyklausa daginn, 7. apríl 8.1. , en þar sem mjög mikið barst af vísum, eða 60 talsins, var ekki unnt að ljúka úrvinnslu fyrir þann tíma. Unnið er að því að velja úr það sem nefndin hyggst nota, en að lokinni úrvinnslu verður kynnt nið- urstaða um verðlaunavfsumar. Fyrstu verðlaun eru 50 þús. kr., 2.verðlaun, 30 þús. kr. og þriðju verðlaun eru 20 þúsund krónur. Yálrygging gegit fjárdrœtti Fjárdráttur getur valdið fyrirtækjum, félögum og stofnunum verulegu fjárhagstjóni. í minni fyrirtækjum eru fjármál oft á einni hendi og í stórum fyrirtækjum og stofnunum fara stundum geysilegar fjárhæðir um hendur fólks sem ber mjög takmarkaða ábyrgð. Starfsmaður sem hefur leiðst út í að draga sér fé er sjaldnast borgunarmaður fyrir því tjóni sem hann veldur. Sjóvá býður nú vátryggingu gegn fjárdrætti. Fyrirtæki, félög og stofnanir geta tryggt sig gegn slíkum skakkaföllum, hvort sem refsað er fyrir fjárdráttinn eða ekki. Vátrygging gegn fjárdrætti dregur úr rekstraráhættu og skapar traustan starfsgrundvöll. Markaðsdeild Sjóvá veitir allar nánari upplýsingar um vátryggingu gegn fjárdrætti. Tryggingarfélag í einu og öllu. Sjóvátryggingarfélag íslands hf., Suöurlandsbraut 4, sími (91)-692500.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.