Morgunblaðið - 20.04.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988
Reykjavík:
V esturbæjarskól-
inn í nýtt húsnæði
í HAUST flytur Vesturbæjar- Á næsta ári verður gengið frá
skóli í nýtt húsnæði á horni samkomusal, leikfímissal, böðum
Bræðraborgarstígs og Hring- og búnigsklefum á fyrstu hæð.
brautar, sem þá verður að mestu Hönnuður skólans er Ingimundur
tilbúið. Að sögn Guðmundar Sveinsson arkitekt, og verkfræði-
Páima Kristinssonar forstöðu- stofan Forsjá sér um verkfræðiþjón-
manns byggingardeildar ustu. Verktaki er Öm Felixson.
Reykj avíkurborgar, er gert ráð
fyrir að þá verði allar kennslu-
stofur tilbúnar og aðstaða fyrir
kennara. Kostnaður við fram-
kvæmdimar er um 90 milljónir
króna en heildarkostnaður er
áætlaður um 152 milljónir króna.
Guðmundur sagði, að verkinu
miðaði vel áfram. Byggingin er um
það bil fokheld og væntanlegar inn-
réttingar í smíðum. í haust verða
þijár kennslustofur teknar í notkun
á neðri hæð hússins og níu á efri
hæð, þar af þrjár sérkennslustofur.
Ennfremur verður gengið frá að-
stöðu kennara og vinnurými á neðri
hæð.Gert er ráð fyrir að skólinn
rúmi 350 nemendur.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Gert er ráð fyrir að Vesturbæjarskólinn flytji í nýtt húsnæði í haust, á horni Bræðraborgarstígs og
Hringbrautar.
Ekki
svínapest
STAÐFEST hefur verið að það
var ekki svínapest sem fimm svín
í búi á Kjalamesi sýktust af fyr-
ir rúmum hálfum mánuði. Ekki
er yóst við hvað er að eiga eða
hveijar smitleiðir eru. Sýni voru
send til ræktunar í Danmörku
og er niðurstaðan sú að ekki er
um svínapest að ræða. Fóður
hefur verið rannsakað en sótt-
kveikjan ekki fundist. Ný tilfelli
veikinnar hafa ekki greinst í
rúman hálfan mánuð en einangr-
im dýra hefur ekki verið aflétt
af búinu.
„Þetta er ekki svínapest eins og
sú sem við var að eiga hér á landi
fyrir um 30 árum,“ sagði Brynjólfur
Sandholt héraðsdýralæknir. „Þar
var um bráðsmitandi veiki að ræða
og milli 70 og 80% dýra á búunum
veiktust." Aðspurður um hvort or-
sök veikinnar væri kvikasilfurseitr-
un í fóðri sagðist Brynjólfur ekki
kannast við að nokkuð hefði komið
fram við rannsókn sem benti til
slíks. Hann sagði að næsta skref
væri að senda utan sýni úr ósýktum
dýrum til mótefnamælingar.
Noregur:
Nýlög
um áfengi
og tóbak
samþykkt
Óaló, Reuter.
NORSKA þingið samþykkti á
mánudag tvenn lög, sem að
líkindum koma við kaunin á þeim
fjórum milljónum Norðmanna,
sem neyta tóbaks og áfengis.
Norðmenn eru meðal mestu
reykingamanna í heiminum, en frá
1. júlí verða þeir að hætta reyking-
um á opinberum stöðum, nema sér-
stök svæði hafí verið afmörkuð fyr-
ir þá í veitingahúsum og á hótelum,
samkvæmt nýju lögunum. Fjórir af
hveijum tíu Norðmönnum reykja,
og greiða næstum 30 norskar krón-
ur (183 íslenskar) fyrir vindlinga-
pakkann. Norska stjómin fékk
einnig samþykkt lög sem banna
ijölgun áfengisverslana næstu tvö
árin, auk þess sem áfengi hækkar
í verði.