Morgunblaðið - 20.04.1988, Page 21

Morgunblaðið - 20.04.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988 21 lengd til Akureyrar og Reykjavíkur. Eða hvers eiga Húsvíkingar og Þingeyingar yfírleitt að gjalda ef þeir þyrftu að sækja dómþing til Akureyrar? Gert er ráð fyrir 3—6 dómurum á Akureyri. Væri ekki betra að þeir héldu sínum þremur dómurum og hinir 3 dreifðust á . aðrar byggðir Norðurlands? Hvemig fer t.d. ef maður er handtekinn og settur í gæsluvarð- hald og lögregla álítur nauðsynlegt vegna rannsóknar málsins að halda honum lengur en sólarhring? Sam- kvæmt gildandi lögum má ekki hafa neinn lengur má ekki hafa neinn lengur í haldi án dómsúr- skurðar, þ.e. úrskurðar þar sem forsendur beiðnarinnar eru vegnar og metnar og niðurstaða samkvæmt því. Nú er ekki alltaf sól og sumar þegar rannsókn mála hefst. Komið hefír fyrir að stórhríð geisaði þá stundina. Hvemig á að sækja dóm- arann? A kannski að fara svolítið í kringum lögin og senda beiðni gegnum tölvukerfíð og fá þannig úrskurð eða bara að sleppa mannin- um svolitla stund og handtaka hann aftur svo öllum lagaákvæðum sé fullnægt? Eða hreint út sagt ætlar löggjafinn að koma málum þannig fyrir, að lögin neyði yfírvöld til mannréttindabrota? Handtekinn maður á sinn rétt. Hann er ekki ' sekur fyrr en dómur er genginn, jafnvel þótt við „vitum" að hann hafi brotið lögin. Mönnum er yfír- leitt ekki stungið inn fyrir umferð- aryfírsjónir nema til þess að lofa þeim að sofa úr sér vímuna, ef því er til að dreifa. Ef þeir em settir í gæsluvarðhald, er oftast um alvar- legra brot að ræða en hjá Akur- eyringnum, sem ók á 68 km hraða þar sem hann mátti aka á 50 km, þ.e. innanbæjar. Hann viðurkenndi brotið en vildi ekki greiða smásekt, eins og við öll eða flest gemm, ef okkur verður á að gefa aðeins of mikið inn. Hann leitaði „réttar" síns og fann lögmann sem vildi sýna fáfróðum löndum sínum að útlend- ingar hegðuðu sér ekki svona „sveitalega“ að dæma mann til þess að greiða sekt fyrir brot, sem hann hefír þegar viðurkennt. En „utanstefnur viljum vér engar hafa“. Ég er lögfræðingur í starfí hjá ríkinu. Sem slíkur ber mér sam- kvæmt íslenskum lögum að greiða stéttarfélagsgjald til félags lög- fræðinga í ríkisþjónustu. Það félag hefír ekkert með mín kjör að gera, en lögin segja þetta og meðan lögin em svona, ber að hlýða þeim. Ef ég man rétt, leituðu tveir breskir verkamenn til mannréttindadóm- stólsins með þá spumingu hvort þeir þyrftu nauðsynlega að vera í stéttarfélagi og greiða þar félags- gjöld, ef þeir ættu að fá vinnu í landi sínu. Mannréttindadómstóll- inn komst að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Sem frjálsir borgarar í frjálsu landi væri slík krafa ekki samrýmanleg almennum mannrétt- indum. Ef til vill verður þetta næsta baráttumál þessa hugumprúða hæstaréttarlögmanns. Að lokum þetta. Við eigum að vinna að bættu réttarfari á öllum sviðum stig af stigi, m.a. með meira sjálfstæði dómstóla og tíma að búa sómasamlega að þeim, bæði hvað launakjör dómara snertir og allan ytri aðbúnað. Líka á þeim sviðum, sem nú er hvað mest áberandi, að gengið er miskunnarlaust að þeim tiltölulega fáu einstaklingum, sem ekki kunna fótum sínum forráð í efnahagslegu tilliti og þeir rúnir inn að skyrtunni, svo margir eiga sér ekki viðreisnar von. En þetta verður ekki gert með því að færa þessa þjónustu frá fólkinu til fárra staða á landinu og um þetta snýst deilan. Hún er ekki um „bætta“ dómskip- an, öll viljum við góða dómstóla, heldur um hvort byggja eigi nokkra fáa fílabeinstuma í landinu, svo sauðsvartur almúginn lúti valdinu í auðmýkt eða hvort þjónustan sé hjá fólkinu sjálfu, í bæ og byggð svo viðkomandi yfírvöld, dóms og stjómsýslu, hafí ákveðið aðhald af skoðunum almennings sem fæst m.a. með því að dvelja meðal fjöld- ans og skynja vilja hans og lífsvið- horf. Höfundur er sýslumaður á Blönduósi. , Sértílboð: Helgarverð frá kr. 21.147,- i Vikuverð frá kr. 34.116,- 3 Innifalið í verði: Flug, gisting og morgunverður. Hótelmöguleikar: Y-HOTEL, BAILEYS, GRAFTON, KENILWORTH, METROPOL, CLIFTON FORD, GLOUCESTER OG MÖRG FLEIRI. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. * Gildistími til 15. maí 1988. ** Gildistími til 31. október 1988. Bæði verðin miðast við einstakling í tveggja manna herbergi á Y-Hótelinu P.S. LONDON er allt sem þér dettur í hug! FLUGLEIDIR -fyrír þíg- Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100. FERDASKRIFSTOFAN InmosTbDiN SQÖQ dttO(VtM( POLARIS Aðalstræti 9, Sími: 28133 Suðumðtu 7. V _ VSími: 624040 Hallveigarstig 1, Stmi: 28388 Kirkjutorgi4 Sími622 011 Konica UBIX UÓSRITUNARVÉLAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.