Morgunblaðið - 20.04.1988, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.04.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988 25 Borgarfj örður: Nýjung í ræktun græðl- inga fyrir skjólbelti UMRÆÐA um nýjar búgreinar hefur fylgt í kjölfarið á offram- leiðslu í hefðbundnum búgrein- um. Garðyrkjubændur hafa ekki farið varhiuta af offram- leiðslu garðávaxta, svo sem nýj- ustu dæmin sanna með kartöfl- ur og áður tómata og gúrkur. Það er því eðlilegt, að gróður- húsa- og garðyrkjubændur ieiti sem viðast fyrir sér til þess að styrkja starfsgrundvöll og af- komu sína betur en verið hefur. Einn af þessum bændum er Bemhard Jóhannesson í Sól- byrgi í Reykholtsdal. Hefur hann hafið ræktun á græðling- um til sölu, og er þetta nýjung í starfi garðyrkjubænda. Bemhard setti niður græðlinga í nokkuð stórt flæmi hjá sér. Þessa græðlinga segir hann, að selja megi mun ódýrar en hingað til hefur verið, þegar menn eru að koma upp skjólbeltum hjá sér, svo sem í kringum sumarbústaði og annað í þá veruna. Þessir græðlingar eru settir nið- ur í gegnum svart plast, sem lagt er ofan á jörðina, eftir að hún hefur verið stungin upp. Eru græð- lingamir settir með hæfílegu milli- bili niður í gegnum plastið. Plastið gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar heldur það rakanum í jarð- veginum og jafnframt hitar það úpp jarðveginn og vamar því, að gras kaffæri græðlingana á meðan þeir em að komast upp úr jörðinni. Að ári liðnu er plastið fjarlægt og em plöntumar þá orðnar um hálfur metri á hæð og eiga að bjarga sér úr því. Þannig geta menn sagt, að þeir hafí ræktað plöntumar sjálfír og slíkt er alltaf skemmtilegra að geta sagt. Þessi aðferð sparar bæði tíma og peninga, og það er einmitt það sem þarf til þess að skjólbelti verði almenningseign. Ætlar Bemhard að selja fólki græðlinga og plast. Jafnframt fylgja leiðbeiningar með, hvemig bezt sé að standa að verkinu. Verða margs konar víðitegundir í boði. Tilraunareitur hefur verið aust- ur á Lágafelli hjá Magnúsi Finn- bogasyni og sagði Bemhard, að hann hefði gefízt vel, þar sem græðlingum hefði verið stungið í gegnum plast. Með þessari aðferð væri komið í veg fyrir að gras yxi upp yfír plöntumar og kæfði þær. Hingað til hafa þær farið á kaf í grasi og sinu. Með því að stinga þeim svona í plast er búið að fyrir- byggja það, og því spara menn sér peninga með því að plöntumar drepast ekki í grasi og þurfa auk þess ekki að reyta gras. Það em e.t.v. ekki allir, sem gera sér grein fyrir því, að á árinu 1985 var gerð breyting á jarðrækt- arlögum, þar sem ákveðið var, að skjólbelti á bújörðum skyldu njóta styrks, sem má nema allt að 75% af kostnaði við plöntukaup og 50% af kostnaði við nauðsynlegar girð- ingar. Skilyrði fyrir framlagi er þó, að verkið sé unnið í samræmi við áætlun, sem héraðsráðunautur og ráðunautur Skógræktar ríkis- ins í skjólbeltaræktun hafa gert og Skógrækt ríkisins samþykkt. Þess vegna geta bændur, sem em að velta búháttabreytingum fyrir sér hafið tijárækt með skjólbelt- um. Margir halda, að skógrækt og tijárækt sé eitt og hið sama. EHjMjUBIX UOSRITUNARVELAR En þama er munur á milli. Rækt- un tijáa í minni þyrpingum og skjólbeltum telst tijárækt. Skjólbeltaræktun hefur áhrif á jarðvegshita til hitahækkunar, sem getur numið allt að tveimur gráðum. Þessi skjól- og hitaáhrif hafa aukið uppskem nytjaplantna margfalt, draga úr upphitunar- kostnaði íbúðarhúsa og veita bú- smala skjól í hrakviðmm. Ávinn- ingurinn er mikill í hvívetna, hvar sem litið er á. Bemhard Jóhannesson á græðl- ingaakrinum. Svart plast er yfir öllu og græðlingarnir standa upp úr, tilbúnir til þess að fara í eitt- hvert skjólbeltið í vor, þegar klaka leysir úr jörð. Morjfunblaðið/Pétur Þorsteinsson NÝR VERSLUNARMATI GEFUR ÞÉR KOST Á AÐ KAUPA BANDARÍSKAR GÆÐAVÖRUR Á ALGJÖRU BOTNVERÐI! Nú eru neytendur óspart hvattir til aö gera verðsamanburð og hagstæð innkaup. Sölusýningin „Vorleikur ’88“ á 3ju hæð Kringlunnar er markviss og róttæk aðgerð sem sannar að með hagstæðum innkaupsaðferðum, lítilli yfirbyggingu og hóflegri álagningu er hægt að bjóða bandarískar gæðavörur á algjöru botnverði. Ef þú kemur í Kringluna fyrir n.k. laugardag getur þú valið þá vörn sem þú vilt kaupa. Við gerum við þig kaupsamning, pöntum vöruna beint frá framleiðanda og afhendum þér hana fyrir 31. maí n.k. Engin útborgun. Þú getur dreift afborgunum á allt að 11 mánuði. GARÐHÚSGÖGN SLÁTTUVÉLAR VFSA Fjölbreytt úrval garðhúsgagna úr rauðviði. Einstaklega falleg viðartegund sem vex aðeins í Kaliforníu. Hvernig væri að lífga upp á garðhúsið, sumarbústaðinn eða veröndina? 4 gerðir bensínsláttuvéla. Ódrepandi hörkutól sem létta þér verkin við að halda snyrtilegum. Viðhalds- og varahlutaþjónusta á íslandi. GASGRILL Eldamennskan verður einföld og hreinleg. 6 gerðir, vönduð vara á einstæðu verði. *Verð frá ^Aabnujlousí Sendum í póstkröfu Símar: 686337 og 686204 *M.v. gengi 15. mars 1988. OPNUNARTIMAR: Miðvikudagur 20. april kl. 10 - 22 Fimmtudagur 21. april (Lokað) Föstudagur 22. apríl kl. 10-22 Laugardagur 23. april kl. 10 - 22 Verð frá REIÐHJOL Yfir 20 gerðir af reiðhjólum sem sum hver hafa aldrei sést á íslandi. BMX reiðhjól með TURBO gír, fjallareiðhjól o.fl. Viðhalds- og viðgerðar- þjónusta á íslandi. *Verð frá FELLIHYSI 5 gerðir af stórglæsilegum felli- hýsum á sterkri grind. Sannkallaðir sumarbústaðir á hjólum. Viðhalds- og varahlutaþjónusta á íslandi. *Verð frá í Kringlunni 16,- 23. apríl — ÞETTA TILBOÐ STENDUR AÐEINS TIL 23. APRÍL!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.